SKÝRSLAN: Alex betri en Aleix í Víkingaslagnum
Hvað réði úrslitum?
Alex Freyr Hilmarsson var besti maður vallarins í dag og hann sá um markaskorun. Sóknarlotur Ólsara voru hugmyndasnauðar á meðan Víkingar voru öllu beittari og höfðu gæðin hjá Alexi til að klára leikinn í síðari hálfleik. Til þess fengu þeir þó hjálp frá varnarmönnum
og markverði Ólafsvíkinga.
Bestu leikmenn
1. Alex Freyr Hilmarsson - Víkingur R.
Skoraði bæði mörkin og var sá sem ógnaði mest hjá Víkingi Reykjavík.
2. Ívar Örn Jónsson - Víkingur R.
Öflugur í vinstri bakverðinum og kórónaði leik sinn með stoðsendingu á Alex í síðara markinu.
Atvikið
Fyrri hálfleikurinn var mjög tíðindalítill og ljóst var að fyrsta markið myndi skipta sköpun í leiknum. Það gerði Alex Freyr með skoti beint úr aukaspyrnu. Ólsarar naga sig í handarbökin yfir vandræðaganginum í aðdraganda hennar.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur Reykjavík er í fjórða sæti deildarinnar eftir að hafa náð í ellefu stig í fimm leikjum undir stjórn Loga Ólafssonar. Fjör í Fossvogi þessa dagana. Fjörið er minna í Ólafsvík en Víkingarnir þar sitja á botninum með sjö stig.
Vondur dagur
Ejub lét varnarmenn sína heyra það í viðtali eftir leik fyrir einbeitingarleysi. Spænsku félagarnir Aleix Egea og Cristian Martinez gerðu báðir afdrífarík mistök í fyrsta markinu. Markið kom eftir röð mistaka en Alex Freyr skoraði eftir að Aleix braut klaufalega af sér í vörninni þegar boltinn var farinn framhjá honum. Cristian átti síðan að verja aukaspyrnuna þar sem hún var í markmannshornið.
Dómarinn - 7.5
Nokkuð þægilegur dagur á skrifstofunni hjá Helga. Undir lok fyrri hálfleiks sauð allt upp úr en Helgi náði að róa menn. Hann veifaði þá þremur gulum spjöldum á þá sem voru æstastir.



