Fotbolti.net
@maggimarkMagnús Þór Jónsson
Magnús Þór Jónsson
Pepsi-deild karla 2017
Kópavogsvöllur
Tíu stiga hiti, létt gola á annað markið, Bö-vélin með völlinn kláran í hvað sem er sýnist mér. 10 stiga hita og sólarlaust...eðalaðstæður!
Breiðablik
Breiðablik
0 - 0
Grindavík
Grindavík
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Markalaust Kópavogsfjör

Hvað réði úrslitum?

Færanýting! Blikar fengu mörg fín færi en gestirnir líka upp úr skyndisóknum, í raun alvega hundfurðulegt að þessi leikur endi markalaus.

Bestu leikmenn

1. Kristian Jajalo

Feykiöruggur í marki Grindvíkinga. Varði allt sem á rammann kom, hirti fullt af fyrirgjöfum og yfirvegunin uppmáluð í öllum leiknum.

2. Gísli Eyjólfsson

Bestur Blika, átti fín skot og tengdi vel varnarleik og sóknarleik liðsins í kvöld.

Atvikið

Í blálokin komst Aron Bjarnason framhjá bakverði Grindavíkur og mundaði skotfótinn. Í því virtist stigið í veg fyrir hann með þeim afleiðingum að hann féll við. Ívar alveg klár á því að ekkert væri athugavert...við lítinn Blikafögnuð!

Hvað þýða úrslitin?

Grindavík minnkar muninn á Valsara niður í tvö stig á toppnum og eru fjórum stigum ofan við Stjörnuna í þriðja sæti. Blikar eru enn í 8.sæti en nú með 11 stig.

Vondur dagur

Fínn fótboltaleikur í alla staði en sóknarmenn Blika fara ekki sáttir að sofa. Lund Pedersen og Tokic áttu að nýta sín færi betur.

Dómarinn - 8,5

Flottur leikur hjá tríóinu. Öll spjöld rétt og stóru ákvarðanirnar voru fáar. Vissulega þarf mat hans í atvikinu að hafa verið rétt...sem það líklega var. Annars frekar einfaldur leikur að dæma, en það þarf líka að dæma þá vel!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.