SKÝRSLAN: Toppliðið leiddi botnliðið til slátrunar
Hvað réði úrslitum?
Valsmenn stjórnuðu leiknum frá A-Ö og sigur þeirra var síst of stór miðað við síðari hálfleikinn. Skagamenn vörðust vel í fyrri hálfleik en um leið og fyrsta markið kom var ekki spurning hvoru megin sigurinn myndi enda. Valsmenn léku á als oddi í síðari hálfleik og hefðu auðveldlega getað skorað mörk. Mörkin dreifðust á milli manna. Tveir varnarmenn skoruðu og Kristinn Ingi skoraði loksins sitt fyrsta mark í sumar.
Bestu leikmenn
1. Guðjón Pétur Lýðsson - Valur
Mark og tvær stoðsendingar. Var mjög öflugur á miðjunni.
2. Sigurður Egill Lárusson - Valur
Margir Valsmenn gera tilkall hér. Siggi Lár fær þetta. Skoraði, lagði upp og var ógnandi.
Atvikið
Sjötta mark Vals gladdi stuðningsmenn liðsins eflaust mest! Kristinn Ingi Halldórsson skoraði loksins sitt fyrsta mark í sumar eftir að hafa fengið fjölmörg færi. Óli Jó lofaði því eftir leik að mörkin komi á færibandi eftir þetta.
Hvað þýða úrslitin?
Valsmenn eru með átta stiga forskot á toppnum en FH getur minnkað bilið í sjö stig með sigri á KA á laugardag. Skagamenn eru á botninum með níu stig, fjórum stigum frá öruggu sæti. Svört staða á Skaganum.
Vondur dagur
Margir leikmenn ÍA gera tilkall hér. Varnarleikur Skagamanna í heild sinni var hörmulegur í síðari hálfleiknum og augljós uppgjöf í gangi. Ingvar Þór Kale hefði átt að gera betur í fyrsta markinu og hann átti einnig misheppnaða spyrnu fram völlinn í aðdragandanum á marki númer tvö. Þessi mörk komu Valsmönnum á bragðið og Ingvar er væntanlega ekki sáttur með sinn þátt í þeim.
Dómarinn - 7.5
Hafði fín tök á leiknum. Hefði þó mögulega getað sent Þórð út af þegar hann traðkaði á Patrick eftir að búið var að flauta aukaspyrnu.



