Fotbolti.net
@fotboltinetLárus Ingi Magnússon
Lárus Ingi Magnússon
Pepsi-deild Karla
Nettóvöllurinn
SSV 9 m/sek og skýjað.
Keflavík
Keflavík
1 - 0
ÍBV
ÍBV
Jóhann Birnir Guðmundsson 64'1 - 0
Dómari: Garðar Örn Hinriksson
0. mín
Velkominn í beina textalýsingu frá Keflavík þar sem mætast Keflavík og ÍBV í Pepsi-deild karla. Veður til knattspyrnuiðkunar er ágætt utan smá vinds, sem er fágætt hér um slóðir. Það vekur athygli að Tryggvi Guðmundsson er að hita upp en er skv. leikskýrslu á ksi.is ekki í leikmannahópi ÍBV. Það má eiga von á hörku leik og við komum með allt það helsta um leið og hægir fingur fréttaritara hafa slegið því inn á textalýsingu. Góða skemmtun.
1. mín
Leikurinn hafinn
8. mín
Hér eru tæpar 8 mín liðnar af leik og það sem hefur gerst er....... ekkert
11. mín
Arnór Ingvi átti fyrsta skot í átt að marki fyrir Keflavík en skotið himinnhátt yfir
13. mín
Ágæt sókn Eyjamanna endar með skoti frá Ian Jeffs, en Ómar vel staðsettur í marki Keflvíkinga
17. mín
Eyjamenn eru heldur sprækari hér í Keflavík og rétt í þessu komst Aron Spear í gott skotfæri en hitti boltann illa og skotið vel yfir mark heimamanna.
20. mín
Brynjar Gauti í dauðafæri í markteig heimamanna en hitti ekki boltann
21. mín
Guðmundur Steinars með hörkuskot beint úr aukaspyrnu en Eyjamenn bjarga í horn.
Keflavík
29. mín
InnMagnús Þór Magnússon (f)
ÚtEinar Orri Einarsson
Vegna meiðsla
35. mín
Arnór Eyvar komst hér í upplagt færi en skot hans rétt framhjá tveimur samherjum og marki Keflavíkur.
Keflavík
36. mín
Gult spjald

Magnús Þór Magnússon (f)

Garðar búinn að lyfta fyrsta spjaldinu
39. mín
Víðir Þorvarðarson komst í sannkallað dauðafæri eftir stungusendingu frá Ian Jeffs en Ómar Jóhannsson markvörður Keflavíkur varði vel.
44. mín
Styttist í kaffisopann
45. mín
Kominn hálfleikur í Keflavík og staðan jöfn 0-0. Aaron Spear átti síðasta færi hálfleiksins en slakt skot hans utan teigs lak yfir endalínuna
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn og vonandi fjörið um leið. Vantar mark hér til að lyfta þessu upp.
Keflavík
48. mín
Gult spjald

Grétar Atli Grétarsson

Brot
55. mín
Jóhann Birnir með skot í hliðarnetið eftir ágæta sókn heimamanna. Annars er hér Íslandsmóti í háloftaspyrnum og spretthlaupum.
57. mín
Matt Garner með hörku skot yfir mark Keflavíkur úr fínu færi
Keflavík
58. mín
Gult spjald

Jóhann Ragnar Benediktsson

brot
Keflavík
64. mín
MAAAARK!

Jóhann Birnir Guðmundsson

Eftir langt innkast frá hægri mistókst Eyjamönnum að hreinsa frá marki. Boltinn barst til Jóhanns Birnis sem átti gott skot sem Abel virtist vera með í höndunum en á óskiljanlegan hátt missti hann knöttinn innfyrir marklínuna. Hrikalegur klaufaskapur gestanna.
70. mín
Ómar tvisvar að blaka knettinum yfir slánna eftir hornspyrnu Eyjamanna.
ÍBV
73. mín
Gult spjald

Tonny Mawejje

ÍBV
73. mín
InnChristian Olsen
ÚtIan Jeffs
Keflavík
75. mín
InnSigurbergur Elísson
ÚtGuðmundur Steinarsson
Keflavík
79. mín
InnHilmar Geir Eiðsson
ÚtBojan Stefán Ljubicic
ÍBV
84. mín
InnRagnar Leósson
ÚtAaron Spear
85. mín
Hér er miðjuþóf í forgrunni og knattspyrnan sem boðið er uppá er frekar slök.
ÍBV
87. mín
InnEyþór Helgi Birgisson
ÚtVíðir Þorvarðarson
88. mín
Ragnar Leósson með ágætis skalla að marki Keflavíkur, eftir góða sendingu frá Arnóri en skallinn yfir markið
89. mín
Christian Olsen í dauðafæri en skot hans fer yfir markið
ÍBV
89. mín
Gult spjald

Rasmus Christiansen

Keflavík
94. mín
Rautt spjald

Jóhann Ragnar Benediktsson

Tvö gul og seinna fyrir að tefja
95. mín
Leik lokið. Komum með viðtöl seinna í kvöld
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.