0. mín
Sæl og velkomin í beina textalýsingu frá leik Selfoss og Grindavíkur sem hefst klukkan 19:15 hér á Selfossvelli. Það er aðeins vindur á Selfossi en þurrt og ágætar aðstæður til að spila fótbolta.
0. mín
Byrjunarliðin eru klár, fljótt álitið er óbreytt lið hjá heimamönnum en gestirnir gera þrjár breytingar frá tapi gegn Stjörnunni. Scott Ramsey, Pape Faye og Óli Baldur fara á bekkinn og inn koma Alexander Magnússon sem var í banni, Matthías Örn og Alex Freyr.
0. mín
Hvetjum notendur samskiptamiðilsins twitter endilega til að nota hashtag-ið #fotbolti þegar þið tístið um leikinn og reyndið endilega að hafa léttleikann í fyrirrúmi. Aldrei að vita nema valin tíst fljóti með hér í umfjölluninni.
0. mín
Síðast þegar þessi lið mættust í Pepsi deildinni var í lokaleik tímabilsins 2010 í grenjandi rigningu á Selfossi. Selfoss sem var fallið sigraði Grindavík örugglega 5-2 í þeim leik að viðstöddum heilum 217 áhorfendum. Við vonumst nú til að sjá fleiri hér í kvöld þó veðrið sé ekki mjög mikið skárra núna.
0. mín
Það er slúðrað um það á Selfossi að Pape Mamadou Faye sé ekki í hóp í dag þar sem hann hafi mætt of sent. Seljum það þó ekki dýrar en við keyptum það.
0. mín
Ágætis mæting á Selfossi í dag og mér heyrist Grindvíkingar vera mættir syngjandi í stúkuna og sama má segja um Skjálfta sem er að þramma syngjandi í stúkuna.
1. mín
Leikur hafinn á Selfossi örlítið á eftir áætluðum kick off tíma. Heimamenn sækja í átt að Tíbrá og verða undan vindi í fyrri hálfleik.
9. mín
Þetta fer frekar rólega af stað og mikið miðjumoð. Vörn Grindvíkinga er mjög þétt og það er ljóst að þá að skrúfa fyrir í dag.
11. mín
Fyrsta alvöru færi leiksins og það fékk Viðar Örn sem komst einn í gegn en var allt of lengi að athafna sig og þetta rann út í sandinn. Selfyssingar virðast vera að taka leikinn aðeins yfir.
14. mín
MAAAARK!
Jón Daði Böðvarsson
Takk fyrir og góðan daginn, Jón Daði Böðvarsson klíndi aukaspyrnu rétt fyrir utan teig í markhornið óverjandi fyrir Óskar í marki Grindvíkinga. Frábært mark.18. mín
Gult spjald
Loic Ondo
Fyrir að hindra Babacar úti við endalínu. Jón Daði tók spyrnuna sem fór rétt framhjá markinu. Lúmskt skot hjá Jóni Daða.27. mín
MAAAARK!
Matthías Örn Friðriksson
Grindvíkingar jafna metin eftir aukaspyrnu. Matthías Örn Friðriksson náði að moka boltanum yfir línuna eftir mikið hnoð í teignum.28. mín
Leikurinn stopp í smá stund meðan Magnús dómari ræðir við Guðjón Þórðarson
31. mín
Grindvíkingar hafa verið sterkir eftir að Selfoss skoraði og eru hættulegir í föstum leikatriðum og senda boltann mikið langt fram á Ameobi sem er nautsterkur einn uppi á toppi í liði Grindavíkur.
36. mín
Alexander Magnússon í hörkufæri inni á vítateig en skaut boltanum yfir.
38. mín
Gult spjald
Sindri Pálmason
38. mín
Gult spjald
Alexander Magnússon
Sandnes og Alexander fá báðir gult fyrir minniháttar rifrildi. Óþarfa spjöld að sjá.43. mín
Viðar Örn í hörkufæri eftir aukaspyrni Stefáns Ragnars en hitti boltann illa.
45. mín
Hálfleikur á Selfossi, hörkuleikur í gangi. Jafnræði með liðunum heilt yfir. Selfoss byrjaði betur og skoraði gott mark en hleypti Grindavík inn í leikinn og þeir jöfnuðu leikinn og enduðu hálfleikinn betur. Allt opið í þessu fyrir seinni hálfleik.
45. mín
Það er farið að rigna hérna á Selfossi og því má búast við nokkrum hressilegum rennitæklingum í seinni hálfleik og ennþá meira fjöri.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
47. mín
MAAAARK!
Ólafur Karl Finsen
Hörkuskot hjá Ólafi Karli Finsen fyrir utan teig sem Óskar réð ekki við á blautum vellinum. Mjög gott mark hjá Ólafi og heimamenn byrja með látum.50. mín
Gult spjald
Ólafur Karl Finsen
Var of seinn í tæklingu59. mín
Dauðafæri hjá heimamönnum eftir gott upphlaup, Jón Daði virtist skjóta að marki en skotið misheppnað og fann Viðar á auðum sjó inn í teig en hann potaði boltanum rétt framhjá.
63. mín
Ólafur Örn fyrirliði Grindvíkinga með hörkuskot sem silgdi yfir markið. Það eru 534 áhorfendur á leiknum í kvöld.
65. mín
InnScott Ramsay
ÚtLoic Ondo
66. mín
Ivar Skjerve virðist hafa verið sólaður upp úr skónum, a.m.k. datt hann af honum.
71. mín
InnJoe Tillen
ÚtÓlafur Karl Finsen
TIllen komst strax í hörkusókn og sendi boltann fyrir markið meðfram marklínunni en sóknarmenn Selfoss náðu ekki að nýta færið.
71. mín
InnÓli Baldur Bjarnason
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
75. mín
MAAAARK!
Stefán Ragnar Guðlaugsson
Stefán Ragnar náði að skalla í boltann eftir hornspyrnu Joe Tillen og boltinn lak í netið. Það var eins og Óskar hafi búst við því að þessi bolti væri á leið framhjá.78. mín
InnTómas Leifsson
ÚtJon Andre Royrane
78. mín
InnDaníel Leó Grétarsson
ÚtGavin Morrison
85. mín
MAAAARK!
Alexander Magnússon
Skallaði af öryggi í netið eftir langa aukaspyrnu90. mín
MAAAARK!
Óli Baldur Bjarnason
Óli Baldur náði að pota boltanum í netið eftir horspyrnu Scott Ramsey. Magnaður endasprettur Grindvíkinga sem hafa dælt boltanum látlaust inn í teig með háum spyrnum.90. mín
Leik lokið. Jón Daði var mjög nálægt því að skora í restina en skot hans hafnaði í stöng. Viðtöl og umfjöllun koma inn seinna í kvöld.



