Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Víkingur R.
Víkingur R.
Mjólkurbikar karla
Víkingsvöllur
skýjað hægur vindur og fínn völlur
0 - 1
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
0 - 188' Sasha Uriel Litwin Romero
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson

SKÝRSLAN: Víkingur er frá Ólafsvík

Hvað réði úrslitum?

Skipulag og agi fleytir liðum oft ansi langt. Reykvíkingar áttu afar dapran leik gegn sterku varnarliði Ólafsvíkinga sem gerðu sitt vel og nýttu tækifærið sem gafst undir lokin þegar heimamenn reyndu að sækja á mörgum mönnum, komust í skyndisókn, skoruðu gott mark og kláruðu leikinn.

Bestu leikmenn

1. Eli Keke

Frábær í sínum leik í dag og áttu framliggjandi menn Reykvíkinga ekkert í hann allan leikinn. Frábær leikmaður sem er í Pepsi klassa.

2. Sasha Romero

Varnarmenn gestanna áttu heilt yfir góðan leik en Sasha skoraði markið sem skilur hér á milli og fær þetta sæti.

Atvikið

Sigurmarkið. Leikurinn bauð ekki uppá mikið en hnitmiðuð skyndisókn gegn fáliðaðri vörn skilaði marki.

Hvað þýða úrslitin?

Einfalt Reykvíkingar úr leik en gestirnir frá Ólafsvík fá leik gegn Blikum í undanúrslitum og eru til alls líklegir.

Vondur dagur

Alltof freistandi að setja lið heimamanna sem heild hér en ég ætla að taka Nikolaj Hansen hér út fyrir sviga. Kom akkurat ekki neitt út úr honum og komst lítt áleiðis gegn gríðargóðri vörn Ólsara.

Dómarinn - 6,5

Guðmundur var fínn í fyrri hálfleik en Arnar Þór Stefánsson sem kom inn fyrir meiddan Guðmund í seinni hálfleik virkaði stressaður og óöruggur á köflum og tók nokkrar skrýtnar ákvarðanir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.