0. mín
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Fram og Hauka í Borgunarbikar karla. Leikurinn hefst klukkan 19:15.
0. mín
Fram leikur í Pepsi-deildinni eins og flestum er kunnugt en Haukar eru í 1. deildinni. Ólafur Jóhannesson þjálfar lið Hauka en þetta er hans fyrsti leikur á Laugardalsvelinum síðan hann hætti með íslenska landsliðið.
0. mín
Framarar gera eina breytingu á sínu liði frá tapleik gegn KR. Orri Gunnarsson kemur inn í byrjunarliðið í stað Kristins Inga Halldórssonar sem skoraði mark Fram í leiknum gegn KR.
0. mín
Ólafur Jóhannesson gerir þrjár breytingar á Haukaliðinu frá jafntefli gegn Þrótti R. í síðustu umferð.
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson er meiddur og verður því aðstoðarþjálfari í kvöld, Aron Freyr Eiríksson og Enok Eiðsson eru síðan á bekknum.
Anton Bjarnason, Magnús Páll Gunnarsson og Hróar Sigurðsson koma inn í byrjunarliðið í þeirra stað.
0. mín
Fram og Haukar mættust í Visa-bikar karla árið 2007 á gervigras-vellinum að Ásvöllum. Þá léku Framarar í efstu deild en Haukar í 2.deildinni.
Sá leikur endaði 1-1 og fór því í framlengingu, bæði lið skoruðu sitt markið hvort í framlengingunni og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni. Þar fór Amir Mehica markvörður Hauka á kostum og tryggði Haukum sigur.
Igor Pesic og og Alexander Steen skoruðu mörk Fram á meðan Goran Lukic og Ásgeir Þór Ingólfsson skoruðu mörk Hauka.
0. mín
Liðin eru byrjuð að hita upp sem og dómararnir.
0. mín
Liðin eru að ganga inn í búningsklefana og gera sig tilbúin fyrir leikinn.
0. mín
Liðin eru rétt í þessu að ganga inn á völlinn. Leikurinn fer að byrja.
1. mín
Leikurinn er hafinn. Haukar sækja að Laugardalslauginni.
6. mín
Á meðan leikurinn er í rólegri kantinum er hægt að fræða ykkur lesendur góðir að því, þetta er fyrsti leikur Fram í bikarnum á meðan Haukar unnu Snæfel í fyrstu umferð, 31-0. Það er því nokkuð ljóst að Haukar fara líklega ekki með mínus markatölu útúr þessari bikarkeppni.
9. mín
Haukar eiga fyrsta færi leiksins. Viktor Smári Segatta sendi góða sendingu innfyrir vörn Fram, Aron Jóhannsson tók gott hlaup og lék á Ögmund í markinu, en snerting hans á boltanum fór örlítið til hliðar, og þegar hann náði skoti að marki þá var varnarmaður Fram kominn til varnar og renndi sér fyrir boltann, og boltinn í horn.
Ekkert varð úr horninu.
21. mín
Gult spjald
Gunnlaugur F. Guðmundsson
27. mín
Virkilega tíðinda lítið hér fyrstu 27 mínútur leiksins...
37. mín
Samuel Hewson átti hér fyrsta alvöru skotið sem Daði Lárusson þurfti að hafa fyrir að verja.
Framarar tóku innkast á miðjum vallarhelmingi Hauka, sem Haukarnir virtust eiga að fá, Framarnir voru fljótir að taka það, Samuel Hewsson geystist upp völlinn og inn í teig, lét síðan vaða á markið en Daði varði.
39. mín
Gult spjald
Anton Bjarnason
Fyrir brot við miðjulínuna.41. mín
Sókn Framara er farin að þyngjast. Komast þeir yfir fyrir hálfleik?
45. mín
Hálfleikur. Bragðdaufur fyrri hálfleikur er lokið. Hvorugt liðana hafa náð að skapa sér afgerandi færi.
46. mín
Seinni hálfleikurinn er hafinn. Engar breytingar á liðunum í hálfleik.
53. mín
Framarar mun meira með boltann en ná ekki að skapa sér neitt. Stuðningsmaður Framara allt annað en sáttur í stúkunni og öskrar á Framarana að hætta þessu dútli í vörninni og fara að sækja!
69. mín
MAAAARK!
Steven Lennon
Orri Gunnarsson lenti í samstuði við Daða Lárusson inn í markteignum, og þaðan datt boltinn fyrir fætur Steven Lennon sem þurfti ekki annað en að pota boltanum inn fyrir línuna.72. mín
InnAron Freyr Eiríksson
ÚtAnton Bjarnason
Aron Freyr kemur inn á í stað Antons. Aron Freyr fer þar af leiðandi á vinstri kantinn, og Hróar Sigurðsson fer í vinstri bakvörðinn í stað Antons.
75. mín
InnSveinbjörn Jónasson
ÚtOrri Gunnarsson
Sveinbjörn fer upp á topp og Steven Lennon væntanlega á kantinn.
78. mín
InnBjörgvin Stefánsson
ÚtAron Jóhannsson
89. mín
Hilmar Trausti Arnarsson tók hornspyrnu sem Björgvin Stefánsson skallaði rétt framhjá fjærstönginni,
90. mín
93.mínúta:
Víti. Hlynur Atli Magnússon brýtur á Alexander Frey inn í teig.
90. mín
MAAAARK!
Hilmar Trausti Arnarsson
94.mínúta: Hilmar Trausti skorar úr miklu öryggi. Ögmundur fór í hitt hornið.90. mín
Gult spjald
Hlynur Atli Magnússon
93.mínúta: Fékk gult spjald fyrir brotið á Alexander Frey.90. mín
InnKristinn Ingi Halldórsson
ÚtHalldór Hermann Jónsson
Framlengingin er hafin. Kristinn Ingi kemur inn fyrir Hallór Hermann.
96. mín
Almarr Ormarson fínt skot að marki sem Daði ver vel í horn.
105. mín
Hálfleikur.
106. mín
Seinni hálfleikurinn er hafinn.
111. mín
InnEnok Eiðsson
ÚtViktor Smári Segatta
Enok fer á toppinn í stað Viktors. Framarar sóttu meira í seinni hálfleik en ekkert náð að skapa sér, Haukar ná fáum sendingum sín á milli.
114. mín
InnHólmbert Aron Friðjónsson
ÚtSamuel Hewson
115. mín
Gult spjald
Hilmar Trausti Arnarsson
119. mín
Gult spjald
Benis Krasniqi
Fyrir brot á Sveinbirni, á vítateigslínunni.120. mín
Steven Lennon tók aukaspyrnuna við vítateigslínuna, hann ætlaði að rífa netið svo kraftmikið var skotið, en boltinn rétt yfir markið, fjærhornið réttara sagt.
120. mín
Vítaspyrnukeppni.
120. mín
Þorvaldur og Ólafur þjálfarar liðana að ákveða hverjir ætla taka vítin fyrir liðin.
120. mín
Vítin eru tegin að átt að Þróttaraheimilinu og Hilmar Trausti tekur fyrsta víti Hauka.
120. mín
MAAAARK!
Hilmar Trausti Arnarsson
Hilmar Trausti skorar.120. mín
MAAAARK!
Sam Tillen
Tillen skorar. Daði í annað horn.120. mín
Enok klikkar. Ögmundur ver.
120. mín
Sveinbjörn klikkar. Daði ver.
120. mín
Magnús Páll skýtur yfir.
120. mín
MAAAARK!
Steven Lennon
Steven Lennon skorar. Daði í vitlaust horn.120. mín
MAAAARK!
Alexander Freyr Sindrason
Alexander Freyr skorar. Ögmundur í vitlaust horn.120. mín
MAAAARK!
Hólmbert Aron Friðjónsson
Hólmbert Aron skorar.120. mín
MAAAARK!
Gunnlaugur F. Guðmundsson
Gunnlaugur Fannar skorar.120. mín
MAAAARK!
Almarr Ormarsson
Almarr tryggði Fram sigurinn. Daði fór í vitlaust horn.


