Fotbolti.net
@BastiiSSebastían Sævarsson Meyer
Borgunarbikar karla
Víkin
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 0
Fjölnir
Fjölnir
Kristinn J. Magnússon 10'1 - 0Hjörtur Júlíus Hjartarson 33'2 - 0
Dómari: Leiknir Ágústsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Góða kvöldið kæru lesendur og velkomnir í beina textalýsingu frá leik Víkings og Fjölnis í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins í Víkinni.
0. mín
Byrjunarliðin eru komin í hús en þau má sjá hér til hliðar.
0. mín
Bæði lið eru í 1. deildinni þar sem Fjölnir er í öðru sæti en Víkingur er í því fimmta. Fjölnismenn hafa verið ansi drjúgir í markaskorun í ár en þeir hafa skorað 11 mörk í fjórum fyrstu leikjum leiktíðarinnar. Aftur á móti hefur Víkingur einungis skorað tvö mörk en þó aðeins fengið eitt mark á sig.
0. mín
Jæja það styttist í leik og liðin eru mætt á völlinn. Hér er allt til reiðu...
1. mín
Leikurinn er hafinn! Heimamenn byrjuðu með boltann.
5. mín
Róleg byrjun hér í Víkinni. Bæði lið reyna að finna taktinn í leiknum.
7. mín
Hjörtur Hjartar með fyrsta skot leiksins en það fer framhjá marki Fjölnismanna.
Fjölnir
8. mín
Gult spjald

Geir Kristinsson

Geir var of seinn í tæklingu á Hirti Hjartar á miðju vallarins og fékk réttilega gult spjald fyrir.
Víkingur R.
10. mín
MAAAARK!

Kristinn J. Magnússon

Boltinn flýgur fyrir markið eftir aukaspyrnu frá hægri þar sem Tómas Guðmundsson á skalla í stöngina en fyrirliðinn Kristinn Jóhannes Magnússon nær frákastinu og potar boltanum í netið. Heimamenn leiða 1-0.
17. mín
Víkingar eru nú meira með boltann. Schwartz kemst í skotfæri en skot hans er laust og Steinar Örn á ekki í neinum vandræðum með það í marki Fjölnis.
24. mín
Lítið að gerast þessa stundina en Víkingar eru áfram með undirtökin. Fjölnismenn hafa varla skapað sér nein færi.
26. mín
Marteinn Briem kemst í skotfæri í teig Fjölnismanna en hittir boltann illa sem Steinar Örn handsamar auðveldlega.
Fjölnir
29. mín
Gult spjald

Steinar Ö. Gunnarsson

Frábær sending innfyrir frá Sigurði Agli á Martein Briem. Steinar Örn æðir út úr markinu og fellir Martein. Aukaspyrna dæmd og markvörðurinn hlítur gula spjaldið. Kristinn tók spyrnuna og Þorvaldur Sveinn skallaði rétt framhjá.
Víkingur R.
33. mín
MAAAARK!

Hjörtur Júlíus Hjartarson

Hjörtur er búinn að koma Víkingum í 2-0!! Vel gert hjá framherjanum sem stýrði knettinum í netið úr þröngu færi eftir sendingu fyrir markið frá Evan Schwartz.
37. mín
Snilldar stungusending frá Guðmundi Karl á Egil Gaut sem er sloppinn í gegn. Egill fer þó illa að ráði sínu og reynir að lyfta boltanum yfir Skúla í marki Víkinga og boltinn hittir ekki á rammann.
45. mín
Hálfleikur! Hér gerðist lítið markvert á lokakafla fyrri hálfleiks. 2-0 forysta heimamanna er verðskulduð.
Víkingur R.
45. mín
InnHelgi Sigurðsson
ÚtHjörtur Júlíus Hjartarson
Hjörtur var tekinn útaf fyrir Helga Sigurðs í hálfleik.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn.
51. mín
Schwartz með lúmskt skot fyrir utan teig yfir Steinar Örn en boltinn hafnar í þverslánni!
Fjölnir
57. mín
InnÞórir Guðjónsson
ÚtÁgúst Örn Arnarson
Fjölnir
57. mín
InnÓmar Hákonarson
ÚtEgill Gautur Steingrímsson
Fjölnir með tvöfalda skiptingu.
59. mín
Evan Schwartz sendir boltann á Helga Sigurðsson sem er í ákjósanlegu færi en lætur Steinar Örn verja frá sér.
60. mín
Seinni hálfleikur hefur verið ansi fjörlegur. Nú voru Fjölnismenn ansi nálægt því að minnka muninn þegar Bjarni Gunnarsson þrumaði knettinum yfir markið úr góðu færi.
66. mín
Þórir Guðjónsson fær góða sendingu fyrir markið og reynir skot en Kristin Jens nær að stíga fyrir og fara í veg fyrir skotið.
Fjölnir
66. mín
Gult spjald

Marinó Þór Jakobsson

68. mín
Þórir Guðjónsson hefur verið sprækur eftir innkomu sína og kemst aftur í færi en skot hans ratar framhjá markinu.
Víkingur R.
72. mín
Gult spjald

Evan Schwartz

Víkingur R.
72. mín
InnÞórður Rúnar Friðjónsson
ÚtMarteinn Briem
Fjölnir
75. mín
InnÁsgeir Aron Ásgeirsson
ÚtBjarni Gunnarsson
80. mín
Fjölnismenn liggja í sókn í augnablikinu og skapa sér mikið af færum.
Víkingur R.
88. mín
InnAgnar Darri Sverrisson
ÚtEvan Schwartz
89. mín
Þetta er allt saman að fjara út. Víkingar eru á leið í 16-liða úrslit.
92. mín
Pablo Punyed með hörkuskot en Skúli ver vel í marki heimamanna.
Leik lokið!
Víkingar eru komnir í næstu umferð Borgunarbikarsins eftir 2-0 sigur á Fjölni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.