0. mín
Verið velkominn í beina textalýsingu Fótbolta.net frá leik KR og ÍBV í Pepsi-deild karla. Um er að ræða lokaleik 9. umferðar sem fór fram 6. júlí en þessum leik hafði verið frestað vegna þátttöku liðanna í Evrópukeppni.
Við minnum á að valdar færslur af samskiptavefnum Twitter um leikinn gætu ratað hér inn. Notið #fotbolti svo eftir færslunni sé tekið.
0. mín
Ásgeir Örn Ólafsson kemur inn í byrjunarliðið þrátt fyrir að hafa verið erlendis og mun hann aðeins spila þennan eina leik áður en hann fer erlendis. Ætla má að hann spili hægri bakvörð og að Aron Bjarki verði miðvörður með Grétari.
Hjá KR vantar sterka menn, Skúli Jón Friðgeirsson er meiddur, eins og Magnús Már Lúðvíksson og Óskar Örn Hauksson. Þá er Jordao Diogo farinn frá félaginu.
Hjá ÍBV er ein breyting frá síðasta leik en Guðmundur Þórarinsson kemur inn fyrir Brynjar Gauta Guðjónsson en þeir eru báðir í U21 árs landsliðinu sem valið var í gær.
0. mín
Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem ætlaði að spila með ÍBV í sumar en ákvað svo að spila með Norrkoping í Svíþjóð er kominn með tvö mörk eftir tuttugu mínútur í sænsku úrvalsdeildinni gegn Djurgarden. Gunnar hefur verið að spila og hefði án nokkurs vafa nýst Eyjamönnum afar vel!
0. mín
Það viðrar til þess að fá góða skemmtun hérna í kvöld. Eyjamenn komast á toppinn með sigri en KR-ingar auka forskot sitt og fara í góða stöðu með sigri.
0. mín
Eyjamenn spila í rauðum búning í kvöld en KR-ingar eru eins og vanlega í sínum röndóttu svart/hvítu búningum.
0. mín
KR hefur unnið báða leiki þessara liða hér í Frostaskjóli eftir að Eyjamenn komu aftur í deild þeirra bestu!
0. mín
Leikmenn eru að ganga inná völlinn og það styttist í að skemmtunin fari af stað hér í Frostaskjólinu!
1. mín
Leikurinn er farinn stað en KR-ingar sækja að KR-heimilinu í fyrri hálfleik!
3. mín
Eyjamenn byrja á að pressa vel á KR-inga og láta Grétar Sigfinn bera upp boltann sem skilar honum illa frá sér. Eyjamenn að nota taktík sem Valsmenn byrjuðu á og virkaði vel!
11. mín
Eyjamenn byrja leikinn af krafti, Tony Mawejje með skot rétt framhjá en Hannes var með hlutina á hreinu.
17. mín
KR-ingar eru að komast betur og betur inn í leikinn og fara mikið upp vinstri kantinn!
20. mín
Þarna voru HK ingar nálægt því að skora. Orri Sigurður ÓMarsson átti langa sendingu fram þar sem Jóhann Andri Kristjánsson kom á ferðinni en rétt missti af boltanum. Hefði líklega átt að ná boltanum og koma honum framhjá Róberti. Þá átti Haukur Ólafsson skalla eftir hornspyrnu Kristjáns Ara sem Ögmundur varði
22. mín
MAAAARK!
Atli Sigurjónsson
Guðjón Baldvinsson er búinn að koma KR-ingum yfir. Baldur Sigurðsson skaut að marki ÍBV og Albert Sævarsson varði en missti boltann afar klaufalega niður og Guðjón var á tánum og setti boltann í netið! Afar slysalegt hjá Alberti sem byrjaði á að sparka í einkast og upp úr því fengu KR-ingar sóknina.30. mín
KR-ingar virðast vera að ná tökum á leiknum eftir markið og sóknarleikur Eyjamanna er tilviljunarkenndur en liðið hefur í allt sumar spilað án þess að vera mel hreinræktaðan framherja.
33. mín
Tryggvi Guðmundsson vildi fá vítaspyrnu er hann féll í teignum í viðskiptum við Grétar Sigfinn. Tryggvi fór full auðveldlega niður og Þóroddur sleppti því að dæma!
38. mín
Gult spjald
Tonny Mawejje
Tony Mawejje fær gult spjald fyrir brot á Aroni Bjarka. Réttilega dæmt hjá Þóroddi!39. mín
Gult spjald
Haukur Heiðar Hauksson
Ásgeir fær brot fyrir á Tryggva Guðmundssyni, annað gula spjaldið á tveimur mínútum.45. mín
Fyrri hálfleik er lokið og fara KR-ingar með 1-0 forskot til búningsherbergja!
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn en hvorugur þjálfari gerði breytingar á sínu liði!
53. mín
MAAAARK!
Tryggvi Guðmundsson
Tryggvi Guðmundsson er búinn að jafna fyrir ÍBV með stórkostlegu marki úr aukaspyrnu sem fór beint upp í vínkilinn. Brotið sem Þóroddur dæmdi úr var hinsvegar gjöf!67. mín
Einhver þreytumerki virðast vera farinn að gera vart við sig hjá KR-ingum en álgaið á liðið hefur verið mikið í nánast allt sumar!
68. mín
Gult spjald
Gunnar Már Guðmundsson
69. mín
InnDofri Snorrason
ÚtHaukur Heiðar Hauksson
72. mín
Gult spjald
Viktor Bjarki Arnarsson
73. mín
Gult spjald
Tryggvi Guðmundsson
74. mín
InnEgill Jónsson
ÚtViktor Bjarki Arnarsson
75. mín
Gult spjald
Kjartan Henry Finnbogason
78. mín
MAAAARK!
Atli Sigurjónsson
Guðjón er búinn að skora í annað sinn fyrir KR í dag. Kjartan Henry gaf fyrir frá hægri á Björn Jónsson sem skaut að marki en Albert varði út í teiginn þar sem Guðjón var mættur og renndi boltanum í netið.81. mín
InnBrynjar Gauti Guðjónsson
ÚtAndri Ólafsson
81. mín
InnAaron Spear
ÚtIan Jeffs
82. mín
Gult spjald
Andri Ólafsson
84. mín
Það eru sex mínútur eftir af leiknum og spurning hvort Eyjamenn nái að jafna eða auka KR-ingar forystuna eða fer leikurinn 2-1. Kemur í ljós!
86. mín
Gult spjald
Atli Sigurjónsson
87. mín
InnGunnar Þór Gunnarsson
ÚtBjörn Jónsson
89. mín
InnKjartan Guðjónsson
ÚtGuðmundur Þórarinsson
90. mín
MAAAARK!
Aaron Spear
Aaron Spear jafnar fyrir Eyjamenn og skömmu síðar flautar Þóroddur leikinn af! jafntefli niðurstaða


