0. mín
Góða kvöldið kæru lesendur fótbolta.net. Eftir rúmar 20 mínútur hefst leikur ÍR inga og HK inga á ÍR velli í Breiðholtinu. Heimamenn geta sent HK inga endanlega niður í 2.deildina með sigri eða jafntefli í kvöld en HK á ennþá tölfræðilega möguleika vinni þeir leikinn í kvöld.
0. mín
HK spilar í Ljósbláum og svörtum varabúningum sínum á meðan ÍR ingar spila í hefðbundnu hvítu og bláu.
1. mín
Þá hefur Leiknir Ágústsson dómari flautað til leiks 2 mínútum á eftir áætlun.
6. mín
HK menn vilja fá vítaspyrunu á 6.mínútu eftir að Eyþór Helgi Bigisson féll í teignum eftir að hafa unnið boltann á eigin vallarhelmingi og tekið góðan sprett inní vítateig.
9. mín
Eyþór Helgi nálægt því að koma HK yfir. Hann skaut föstuskoti af 20-25 metra færi en Róbert Örn varði í horn.
10. mín
Gestirnir úr Kópavoginum virka mikið mun ákveðnari og Róbert Örn þarf að hafa sig allan við í marki ÍR inga. Hefur í tvígang náð að slá boltanum frá eftir hornspyrnur þar sem gestirnir voru aðgangsharðir.
18. mín
Nú voru það heimamenn sem vildu fá vítaspyrnu þegar Sindri Snær Magnússon féll í teignum. Held að Leiknir hafi tekið hárréttar ákvarðanir í bæði skiptin og látið leikinn halda áfram.
23. mín
HK menn fá vítaspyrnu. Brotið af Leifi Andra Leifssyni. Afar klaufalegt.
23. mín
MAAAARK!
Eyþór Helgi Birgisson
Eyþór Helgi skoraði örugglega úr vítinu. Róbert kastaði sér reyndar í rétt horn en boltinn var fastur.28. mín
Jón Gísli Ström komst í ágætis færi en Ögmundur nær að blaka boltanum yfir markið í horn.
32. mín
Eyþór Helgi átti hér hörkuskota að marki ÍR sem Róbert Örn varði meistaralega í horn.
33. mín
Gult spjald
Jóhann Andri Kristjánsson
Jóhann Andri fær gult spjald en hann stöðvaði vænlega skyndisókn hjá ÍR ingum. Hárréttur dómur hjá Leikni.37. mín
Gult spjald
Haukur Ólafsson
Fær gult spjald fyrir nákvælmega það sama og Jóhann Andri í HK liðinu. Stöðva vænlega skyndisókn.44. mín
ÍR ingar voru rétt í þessu að brenna af algjöru dauðafæri. Kristján Ari fyrirliði ÍR inga sendi þá boltann fyrir þar sem Sindri Snær var einn inní markteig HK inga en skaut yfir. Þau gerast ekki mikið betri færin en þetta.
45. mín
HK ingar í góðu færi. Jóhann Andri Kristjánsson brunaði upp hægri kanntinn og átti góða sendingu á Stefán Jóhann sem kastaði sér á boltann en boltinn fór framhjá. Bakvörðurinn knái Sefán Jóhann er kominn í fremstu víglínu. Þá átti Eyþór Helgi fyrirgjöf sem Róbert Örn rétt náði að verja í horn.
45. mín
Leiknir Ágústsson dómari leiksin hefur flautað til hálfleiks hér í Breiðholti. Gestirnir leiða verðskuldað 0-1
46. mín
Jæja þá er síðari hálfleikurinn hafinn. Fyrri hálfleikurinn var fjörugur og skemmtilegur og við búumst við fleiri færum og mörkum og vonandi áframhaldandi skemmtun.
47. mín
ÍR ingar fá fyrsta tækifæri síðari hálfleiks. Kristján Ari Halldórsson fyrrum leikmaður HK og fyrirliði ÍR inga átti aukaspyrnu sem fór beint á Ögmund í markinu sem átti ekki í miklum vandræðum með hana.
53. mín
Gult spjald
Sindri Snær Magnússon
Var að fá gult spjald fyrir brot. Klaufalegt og algjörlega óþarfi.57. mín
Lítið að gerast inná vellinum þessa stundina. Mikil barátta. Helst það að Halldór Arnarson fékk blóðnasir og þurfti að skipta um treyju í kjölfarið. Hann er nú í treyju númer 30
58. mín
HK að fá vítaspyrnu aftur. Jóhann Andri komst í dauðafæri og skaut föstu skoti Karl Brynjar ver boltann með höndinni hárréttur dómur. Karl Brynjar liggur þó eftir og heldur um andlit sér og var ekki sáttur með spjaldið sem hann fékk.
59. mín
Gult spjald
Karl Brynjar Björnsson
Karl fær gula spjaldið og er ósáttur59. mín
MAAAARK!
Eyþór Helgi Birgisson
Aftur er það Eyþór sem tók vítið og skoraði örugglega. Staðan orðin vænleg fyrir Kópavogsbúa.60. mín
Hinn ungi Stefán Þór Pálsson var nálægt því að minnka muninn en Ögmundur varði vel.
64. mín
InnAtli Valsson
ÚtJóhann Andri Kristjánsson
Jóhann var gríðarlega duglegur í frammlíu HK manna og fær mikið lof fyrir frammistöðu sína í þessum leik.
64. mín
InnElías Ingi Árnason
ÚtKristján Ari Halldórsson
64. mín
InnGuðjón Gunnarsson
ÚtHeimir Snær Guðmundsson
76. mín
MAAAARK!
Eyþór Helgi Birgisson
Eyþór Helgi er að fullkomna þrennu sína í þessum leik. Eftir langt innkast tók Eyþór boltanum á lofti og negldi boltanum í netið. Vel gert.77. mín
InnDavíð Már Stefánsson
ÚtHaukur Ólafsson
77. mín
InnAron Bjarnason
ÚtOrri Sigurður Ómarsson
84. mín
Varamaðurinn Atli Valsson var nálægt því að bæta við fjórða marki HK en skot hans fór framhjá markinu.
86. mín
InnÍvar Örn Jónsson
ÚtHafsteinn Briem
87. mín
Gult spjald
Halldór Arnarsson
Fyrir kjafbrúk eftir ábendingu aðstoðardómarans.88. mín
Ívar Örn Jónsson var ekki lengi að koma sér í gott færi. Stakk sér milli miðavarða ÍR inga og fékk gott færi en skaut framhjá.
90. mín
Leiknir Ágústsson dómari leiksins hefur flautað hér til leiksloka sem endar með öruggum 3-0 sigri gestanna í Kópavogi og ennþá er smá vonarglæta hjá HK mönnum.



