Fotbolti.net
@BaldvinBorgarsBaldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Pepsi Max-deild karla
Norðurálsvöllurinn
ÍA
ÍA
2 - 1
ÍBV
ÍBV
Einar Logi Einarsson 44'1 - 0Tryggvi Hrafn Haraldsson (víti) 62'2 - 02 - 172' Gary John Martin
Dómari: Þorvaldur Árnason
Myndir: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

SKÝRSLAN: ÍBV fallið (Staðfest)

Hvað réði úrslitum?

ÍA tók yfir leikinn eftir flottar 30 mínútur hjá ÍBV og kláraði tvö af nokkrum færum sínum, Eyjamenn geta nagað sig í handabakið að hafa ekki komist yfir í leiknum á fyrsta hálftímanum.

Bestu leikmenn

1. Viktor Jónsson (ÍA)

Viktor var öflugur í framlínu Skagamanna, lagði upp markið á Einar Loga en var samt í rauninni klaufi að skora ekki þá, svo átti hann stórkostlega sendingu á Gonzi sem sótti vítaspyrnuna. Hélt varnarmönnum Eyjamanna við efnið og lét þá hafa fyrir sér. Öflugur leikmaður þegar hann spilar vel.

2. Einar Logi Einarsson (ÍA)

Var eins og klettur í vörn Skagamanna og skoraði fyrsta mark leiksins af mikilli eftirfylgni.

Atvikið

Mark Gary Martin var heldur betur skrautlegt, skoraði gullfallegt mark en það fagnaði ekki nokkur maður á Akranesi eða í Borgarnesi, það hljóp enginn til Gary að fagna eða neitt.

Hvað þýða úrslitin?

ÍA skýtur sér upp í 25 stig og frá fallpakkanum, ÍBV er hinsvegar tölfræðilega fallið og munu enda í neðsta sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Eyjamenn eru staðfest fallnir, myndi segja að þetta sé vondur dagur fyrir alla Eyjamenn.

Dómarinn - 9

Þorri og félagar alveg drullu flottir í dag, vítið hárrétt og ekkert vesen!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.