

Laugardalsvöllur
Undankeppni EM 2020
Aðstæður: Úrhelli - 8 m/s
Dómari: Joao Pinheiro (Portúgal)
Maður leiksins: Ari Freyr Skúlason









Kolbeinn, Jón Daði og Birkir Bjarnason með mörkin þrjú. Það var í raun aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi enda. Næsta verkefni er í Albaníu á þriðjudag!
Fótbolti.net heldur áfram að flytja fréttir hér úr Laugardalnum fram eftir kvöldi! Takk fyrir mig í dag.
Djöfull er Aron Einar búinn að vera góður
— SigurÄ‘ur Gìsli (@SigurdurGisli) September 7, 2019
Úrslitin ráðin og mér sýnist bæði lið vera nokkuð meðvituð um það.

Skot fyrir utan teig og Hannes þarf að verja í fyrsta skipti í leiknum!
Tvær hornspyrnur í röð.



Stoðsending: Ari Freyr Skúlason
3-0=Dagskrárlok á Laugardalsvelli!
Frábært spil íslenska liðsins. Ari Freyr með fasta fyrirgjöf inná teig gestanna og boltinn fer í varnarmann Moldóva, þaðan í Jón Daða og svo í netið.
Ekki flottasta mark Jóns á ferlinum en hvað með það?
Mér sýnist Hamren vera að undirbúa skiptingu.
Svo virðist sem að hann hafi meitt sig eitthvað við það að fá boltann í sig. Fær aðlynningu.
Ætli það séu mörg dæmi um það að leikmaður skori landsliðsmark án þess að vera hjá félagsliði? #fotboltinet
— Lalli (@larusjon) September 7, 2019



Emil Hallfreðsson kemur inn fyrir markaskorarann Kolbein Sigþórsson!
Fyrirgjöf frá Gylfa beint á Birki sem að skallar rétt yfir markið. Þetta hefði verið eitthvað.
BB skorar mark þótt hann se ekki buinn að vera frábær à leiknum, honum fyrirgefst ýmislegt#fotboltinet
— Matti Matt (@mattimatt) September 7, 2019

Hinn atvinnulausi Birkir Bjarnason tvöfaldar forskot íslenska liðsins!
Frábær hornspyrna frá Ara Frey beint á kollinn á Ragga Sig sem að skallar að marki, Kosolev ver út í teig, þar er Birkir mættur og setur boltann í autt markið af stuttu færi!
Þú þarft ekkert að vera í félagsliði til þess að skora fyrir íslenska landsliðið!
Hornspyrna íslenska liðsins.
Jón Daði skorar hér um bil aldrei fyrir landsliðið... En hvað á hann margar stoðsendingar? 10? #fotboltinet
— Konráð S. Guðjónsson (@konradgudjons) September 7, 2019
Með fyrirgjöf frá vinstri meðfram jörðinni og það eru þrír leikmenn íslenska liðsins sem reyna að ná til boltans en enginn nær til hans og Moldóvar ná að bægja hættunni frá.
Þetta var spurning um sentímetra!
Ekkert verður úr hornspyrnunni.
Nú eru það gestirnir sem hefja leik með boltann. Bæði lið eru óbreytt.
Það er hætt að rigna í Laugardalnum, þvílík veisla.
Kolbeinn Sigþórsson kom liðinu yfir á 31. mínútu eftir undirbúning frá Jóni Daða.
Sjáumst í síðari hálfleik!
Gylfi setur boltann meðfram jörðinni á Kolbein sem setur hann aftur á Gylfa. Gylfi á fyrirgjöf sem er skölluð burt, boltinn berst á Arnór Ingva sem lúrir fyrir utan teig og skýtur á markið en boltinn fer yfir.
Fór þó á markið.

Catalin Carp fellir Ara Frey á leið sinni inn í vítateig og Carp fær að líta gula spjaldið.
Hamren tilraunin umdeilda að skila sér! Hamren veit! Kolbeinn 1-0! #fotboltinet pic.twitter.com/M63xbbJcf6
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) September 7, 2019
Aron Einar og Gylfi spila boltanum á milli sín inní teig Moldóva. Gylfi á síðan skot sem að markvörður gestanna ver aftur fyrir.
He's back! Fyrsta mark Kolbeins à mótsleik sÃðan 3. júlà 2016. Það mark kom à 5-2 tapi gegn Frakklandi á EM #fotboltinet https://t.co/sTNUsnspEH
— Guðmundur Aðalsteinn Ãsgeirsson (@gummi_aa) September 7, 2019
Lúmskt skot hjá Gylfa Þór. Fær boltann fyrir utan teig og tekur hann á lofti en boltinn svífur rétt yfir.
Kolbeinn Sigþórsson og Ãslenska landsliðið er bara dæmi sem gengur upp! 🤷ðŸ»â€â™‚ï¸
— Runólfur Trausti Þórhallsson (@Runolfur21) September 7, 2019

Stoðsending: Jón Daði Böðvarsson
Dömur mínar og herrar, Kolbeinn Sigþórsson!
Boltinn berst á Jón Daða inní vítateig sem er með tvo Moldóva í bakinu, Jón Daði gerir frábærlega og finnur Kolbein með stuttri hælsendingu, Kolbeinn er einn á auðum sjó og setur boltann hnitmiðað í vinstra hornið.
Framherjaparið á þetta mark skuldlaust!
Þarna hefði ég viljað sjá Gylfa negla þessu á rammann.
Pjúra gæði hjá Gylfa.
Kolbeinn er að fara að setja eitt ! Lásuð það fyrst hér ! #fotboltinet #island #fyririsland
— Birna Rut Björnsdótt (@Birna040986) September 7, 2019
Koseslev ver og boltinn fer í Birki og þaðan aftur fyrir. Þrjár fínar tilraunir hjá íslenska liðinu á stuttum tíma!
Íslenska liðið er að færast nær.
Hjörtur með fyrirgjöf frá hægri, beint á kollinn á Jón Daða sem að stekkur hæst í teignum en skallinn frá Jóni rétt yfir markið.
Fær hælinn á Gylfa Þór í andlitið.
Kolbeinn var í fínni stöðu.
Fær boltann úti hægra megin og hefur nægan tíma til þess að koma með fyrirgjöf sem og hann gerir, alltof mikill kraftur í sendingunni og hún endar í innkasti hinum megin.
Ekki oft sem Ãsland mætir liði à ljótari treyjum en við. Skulum öll njóta þess meðan það varir.
— Gunnar P. Hauksson (@gunnarph) September 7, 2019
Markspyrna frá marki Moldóva.
Aftur er það Aron Einar sem að skallar boltann burt.
Hvaða skelfilega mæting er þetta á Laugardalsvöll? #Fotboltinet
— orri rafn (@OrriRafn) September 7, 2019
Hjörtur Hermannsson með fastan bolta inn á teiginn, Gylfi tekur tekur hann á kassann en fyrsta snerting með löppinni svíkur hann. Flott tilraun.
Tekur á móti boltanum hægri handleggnum. Það má ekki.
Það íslenska liðið sem að hefur leik með boltann og sækir í átt að Laugardalshöll. Gylfi Þór á fyrstu spyrnu leiksins.
Blessuð sé minning Atla.
Íslenska liðið að sjálfsögðu í sínum bláu aðalbúningum í dag á meðan Moldóvar eru gulir. Dómaratríóið svartklætt.
Áhorfendur rísa úr sætum og hlýða á þjóðsöngva.
Ingó í íslensku landsliðstreyjunni með derhúfu í íslensku fánalitunum. Þetta er bara gæsahúð!
Afskaplega fáir mættir á völlinn nú þegar stundarfjórðungur er í flaut.
Ef að hann fær að líta gult spjald í dag þá mun hann taka út leikbann í leiknum gegn Albaníu á þriðjudag.
But I won't lie, 4-4-2 with Jón Daði and Kolbeinn is going to be fun #fotboltinet
— Lucas Arnold (@FotboltiLucas) September 7, 2019
Í sömu andrá mætir íslenska liðið út í upphitun. Það mun líklega ekki taka mjög langan tíma fyrir leikmenn að blotna í gegn.
Siggi Dúlla er á stuttermabolnum. Hvaða rugl er það?
Menn láta veðrið ekki á sig fá, enda yfirbyggð stúka svo að það eru engar afsakanir.
Við erum Birki Má (að spila aðeins betur?) og meiðslum Jóa Berg frá þvà að byrja með sama lið og gegn Portúgal á EM 2016. Magnað.
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) September 7, 2019
Vörnin er sú sama og í leikjunum tveimur í júní; Hannes í markinu og fyrir framan hann eru Hjörtur, Raggi og Kári, Ari Freyr.
Á miðjunni eru Aron Einar og Gylfi og á köntunum eru Arnór Ingvi Traustason og Birkir Bjarnason. Framlínan minnir óneitanlega á EM 2016. Kolbeinn Sigþórsson og Jón Daði Böðvarsson eru fremstir.
This is how we start our @UEFAEURO qualifying game against Moldova today!#fyririsland pic.twitter.com/ca3BmTeg5d
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) September 7, 2019
,,Þetta er í annað sinn í undankeppninni sem við mætum liði sem er með nýjan þjálfara. Það gerðist líka gegn Albaníu. Við höfum njósnað um þá hingað til í undankeppninni en nú er spurning hvort þeir hafi breytt skipulaginu eða hvað," sagði Erik Hamren á blaðamannafundi í gær.
Það viðrar vel til knattspyrnu, yndislegt. #Fotboltinet
— Pétur Örn GÃslason (@peturgisla) September 7, 2019
Í hádeginu í dag voru um það bil 1000 miðar eftir á leikinn. Ekki er ólíklegt að lausu miðunum hafi fækkað eitthvað síðan þá.
Ómar Smárason, fjölmiðlafulltrúi KSÍ, tók til máls á fréttamannafundi í gær og óskaði eftir því að áhorfendur mæti snemma á völinn á morgun og verði mættir í sæti sín þegar Atla verður minnst.
Megi Atli hvíla í friði.
Þá er Arnór Sigurðsson frá vegna meiðsla sem að hann varð fyrir í leik með CSKA Moskvu í síðasta mánuði.
Sverrir Ingi Ingason dró sig úr landsliðshópnum og inn í hans stað kom Grindvíkingurinn Daníel Leó Grétarsson.
,,Þetta er lið sem er 140 sætum fyrir neðan okkur á heimslistanum. Við Íslendingar eigum það til að falla í þá gildru að vera aldrei nógu stórir fyrir sjálfa okkur. Stundum þurfum við líka bara að setja kassann út í loftið og segja 'þetta er bara lið sem við eigum að vinna og allt annað er stórslys," sagði Einar
Hann hefur verið að klífa upp stigann hjá FIFA og dæmt í forkeppni Evrópudeildarinnar og Meistaradeildarinnar.
Hann dæmdi í sumar leik Maribor og Vals í undankeppni Evrópudeildarinnar en Maribor vann þann leik 2-0.
Ionita spilar með Cagliari í Serie A á Ítalíu. Artur hefur lengi spilað í Serie A en hann var liðsfélagi Emils Hallfreðssonar hjá Hellas Verona á sínum tíma.
Ionita leikur á miðsvæðinu en hann hefur byrjað báða leiki Cagliari í deildinni. Hann er 29 ára gamall. Ionita gekk í raði Cagliari árið 2016 frá Hellas Verona.
Hann segir að jafntefli hér í dag væru góð úrslit fyrir sitt lið.
,,Við værum mjög ánægðir með jafntefli en við ætlum samt að berjast fyrir sigri. Við vitum að íslenska liðið er mjög sterkt og jafntefli væri mjög gott," sagði Altman á blaðamannafundi í gær.
Moldóva hefur aðeins unnið einn í riðlinum en sá sigur kom á móti Andorra í júní, lokatölur í þeim leik 1-0.
Liðið tapaði sannfærandi gegn Heimsmeisturum Frakka, 1-4, en stærsta tapið hingað til í riðlinum var gegn Tyrkjum 4-0. Þá tapaði liðið gegn Albaníu, 2-0. Eftir fjóra leiki er uppskeran þrjú stig.
Frakkland - 9 stig
Tyrkland - 9 stig
Ísland - 9 stig
Albanía - 6 stig
Moldóva - 3 stig
Andorra - 0 stig
Klukkan 16:00 hefst leikur Íslands og Moldóvu í H-riðli í undankeppni EM allstaðar 2020. Leikurinn fer fram á þjóðarleikvanginum í Laugardal, Laugardalsvelli.
Við hvetjum ykkur til þess að taka þátt í umræðunni og nota myllumerkið #fotboltinet á samfélagsmiðlum. Ekki ólíklegt að einhver vel valin tíst verði birt hér á meðan leik stendur!







