


Laugardalsvöllur
Undankeppni EM 2020
Aðstæður: Logn og napurt
Dómari: Gianluca Rocchi (Ítalía)
Áhorfendur: Birkir Bjarnason
Maður leiksins: Birkir Bjarnason









Olivier Giroud skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 66. mínútu leiksins eftir að Griezmann hafði fallið í teignum.
Fyrsta tap Íslands á Laugardalsvelli í keppnisleik í mörg ár!
Takk fyrir mig í kvöld. Fótbolti.net heldur áfram að færa fréttir héðan úr Laugardalnum í allt kvöld.
Hamrén kallinn ekkert alltof sáttur með þennan bolta frá Arnóri og stappar hressilega í jörðina.
Hannes verið virkilega flottur á milli stanganna.
Birkir Bjarna er kannski án felags en þvÃlÃki leikurinn sem hann hefur átt!
— Ingimar H. Finnsson (@ingimarh) October 11, 2019


Barca 101 hja Griezmann,alltaf i jörðinni. 🤮
— damir muminovic (@damirmuminovic) October 11, 2019
Ben Yedder og Griezmann leika sín á milli, Ben Yedder lætur vaða af stuttu færi en Hannes vel staðsettur og ver þetta vel.

Það er agalegt að tapa leiknum á þessari vÃtaspyrnu sem var à raun gjöf hjá okkar mönnum.Þvà miður klaufalegt. Brekka framundan. Hetjuleg barátta.Eina.
— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) October 11, 2019
Matuidi neglir boltanum í andlitið á Guðlaugi Victori sem að hrynur í jörðina og fær aðhlynningu.

Matuidi setur boltann í stöngina eftir snyrtilegan undirbúning frá Coman! Ari Freyr kemur boltanum burt.

Grautfúlt. En hrikalega er Giroud góður. Alvöru gæði þegar hann skallaði út á Griezmann à aðdragandanum. Vel vanmetinn leikmaður sem spilar alltaf vel gegn Ãslandi #fotboltinet
— Magnús Már Einarsson (@maggimar) October 11, 2019


Sendir Hannes Þór í vitlaust horn. Öryggið uppmálað hjá framherjanum knáa.
Griezmann fellur og úr fréttamannastúkunni leit þetta út eins og algjör dýfa hjá Griezmann og Rocchi fellur í gildruna! Eftir að hafa séð þetta í endursýningu var snerting en Griezmann datt á mjög svo undarlegan hátt!
Griezmann liggur sárkvalinn eftir en ákvörðunin stendur!

Birkir Bjarnason er fÃnasti kantmaður en hann er gjörsamlega frábær miðjumaður. Bossað þetta miðsvæði hingað til
— Hörður S Jónsson (@hoddi23) October 11, 2019
Betra en í fyrri hálfleik!
Þessi leit vel út í loftinu en að lokum svífur boltinn yfir mark Frakkanna.
Ég held ég hafi sofið àsængurveri sem er eins og frönsku búningarnir. #fotboltinet
— Óskar Daði Pétursson (@oskardp) October 11, 2019
Aldrei nokkur hætta!
Frakkarnir eru ekki lengi að ná boltanum til baka!
Fyrirgjöf frá Lucas Digne, Giroud kemst í boltann en setur hann framhjá markinu.
Kári skallar hornspyrnu Griezmann í burtu.
Kolli fær boltann, lætur vaða en boltinn fer af Lenglet og aftur fyrir. Hornspyrna!
Hannes vel á verðinum og kýlir boltann burt.
Ragnar tekur létta öxl í öxl við Griezmann á sprettinum, Griezmann fellur og Rocchi flautar. Þetta var svo ,,soft!"
Við tökum það!
Kolbeinn vann 10 skallabolta à fyrri hálfleik, tapaði 2 #fotboltinet
— Konráð S. Guðjónsson (@konradgudjons) October 11, 2019
Síðari hálfleikur kominn af stað og nú eru það Frakkarnir sem að hefja leik með boltann. Bæði lið óbreytt.
@karibestmeister svo solid að hann nær að halda mÅnnum með byssunum! #islfra #fotboltinet
— Gudmundur Hafthorsso (@GummiHaff) October 11, 2019
Fínt að halda núllinu inn í hálfleikinn og það verður spennandi að sjá hvort að liðið haldi áfram á sömu braut í þeim síðari eða hvort Hamren og hans menn geri einhverjar áherslubreytingar.
Sjáumst í síðari!

Lucas Digne með fasta fyrirgjöf inn í teig, Antoine Griezmann lætur vaða í fyrsta en Hannes grípur boltann í annari tilraun. Góð sókn gestanna!
Ekkert að þessum hálftÃma. Rúnar vel vocal og flottur á miðjunni, Birkir að lesa nokkrar sendingar Frakkana, Kolli eldskarpur, stuttir fÃnir spilkaflar og þeir fá ekki færi. Núllið fram à hálfleik, takk.
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) October 11, 2019
Þetta er allt í áttina.
Íslendingar nálægt því að taka forystuna!!!
Boltinn dettur fyrir Jón Daða fyrir utan teig Frakkana, Jón fer framhjá tveimur og lætur vaða en Mandanda ver!

Vilja meina að Kári hafi handleikið knöttinn en Ítalinn ekki sammála. Giroud er brjálaður og uppsker gult spjald fyrir tuð!
Jón Daði hóf meistaraflokksferilinn á Selfossi á vinstri kantinum. Ekki ný staða fyrir hann. Hér stöðvaður af @saevarfreyr à leik fyrir tÃu árum. Held að Pavard lendi à meira basli með hann à kvöld #fotboltinet pic.twitter.com/pdTzEhsMXD
— Magnús Már Einarsson (@maggimar) October 11, 2019
Gylfi Þór fær boltann í höndina. Griezmann stillir sér upp og ætlar að láta vaða. 25 metra færi sirka.
Ætli það hræði sóknarlÃÂnu Frakka að hafa Bikarmeistara àvörninni okkar?
— Magnús (@muggsson) October 11, 2019
Eða eins og #Didier sagði við strákana fyrir leik “Je de du dela du de #Mjólkurbikarinn du la #Vikingur†#IslFra #Fotboltinet
Tekin stutt, Griezmann fær hann í fætur og kemur með hræðilega fyrirgjöf sem fer aftur fyrir. Uppsker lófaklapp íslenskra stuðningsmanna.
Finn rosalega til með Jóa Berg #fotboltinet
— Gudmundur Asgeirsson (@gummi_aa) October 11, 2019

Jói nýkominn úr meiðslum og þetta leit ekki vel út. Vonandi sjáum við Jóa í eldlínunni sem allra, allra fyrst.
Andsk..... þetta má ekki gerast! Lítur verr út með Jóa. Gylfi virðist vera í lagi.
Digne með háan bolta ætlaðan Kingsley Coman en Ari gerir vel, kemst fyrir sendinguna og skallar boltann í hendur Hannesar.
Sennilega of hátt uppi með hendurnar.
Frakkar mikið með boltann þessa stundina!
BÃddu hvað erum við Barcelona? ÞvÃlÃk fyrsta mÃnúta! Sennilega okkar albesta.
— Jói Skúli (@joiskuli10) October 11, 2019
Íslenska liðið heldur betur að byrja þennan leik af krafti. Sundurspila gestina áður en að Ari Freyr kemur með fyrirgjöf sem fer framhjá öllum pakkanum inni í teig og afturfyrir!
Það eru Íslendingar sem að hefja leik og sækja í átt að Þróttaraheimilinu!
Ãfram Ãsland. #fotboltinet pic.twitter.com/9uSL23DAy2
— Thorsteinn Gunnars (@thorsteinngu) October 11, 2019
Gianluca Rocchi og hans menn auðvitað fremstir í flokki. Íslendingar spila í sínum bláu treyjum á meðan Frakkarnir eru hvítir.
Þetta er að breeeeesta á!
N'Golo Kante meiddist í upphitun og getur ekki tekið þátt. Moussa Sissoko tekur hans sæti í liðinu. Frank Lampard eflaust í skýjunum með þessar fréttir!
Frönsku stuðningsmennirnir eru hressir og kátir, byrjaðir að syngja og tralla. Tólfumeðlimir eru að setja sit í stellingar.
,,Guðlaugur Victor er búinn að vera í myndinni hvað varðar þessa stöðu síðan í mars. Það er búið að 'drilla' hann í þetta hlutverk síðan þá," segir Freyr Alexandersson í viðtali við RÚV.
,,Af mörgum ástæðum gafst núna tækifærið til að gefa honum sénsinn. Það er stórt próf en hann er hugrakkur drengur sem er tilbúinn í slaginn. Hann tikkar í mörg box varðandi þessa stöðu."
La compo de ce match important dans la course à la qualification pour l'EURO 2020 face à l'Islande ! 👊 Coup d'envoi à 20H45 sur TF1 ! #ISLFRA #FiersdetreBleus pic.twitter.com/dq0KJ5cBn4
— Equipe de France ââ (@equipedefrance) October 11, 2019
Við getum svo sannarlega ekki kvartað yfir veðrinu hér í kvöld. Verður ekkert mikið betra á þessum tíma ársins.
Didier Deschamps og Erik Hamrén eru búnir að hitta hvorn annan og virðast vera mestu mátar!
Lucas Hernandez, vinstri bakvörður Bayern Munchen, er á bekknum en hann hefur verið að glíma við meiðsli. Lucas Digne, liðsfélagi Gylfa er því í vinstri bakverðinum.
Antoine Griezmann er stillt upp úti á hægri kanti en Olivier Giroud leiðir sóknarlínuna.
Athygli vekur að Guðlaugur Victor Pálsson er notaður í hægri bakverði í þessum leik.
Birkir Bjarnason byrjar þrátt fyrir að vera án félags og Kolbeinn Sigþórsson er í fremstu víglínu. Gylfi Þór Sigurðsson er rétt fyrir aftan Kolbein en Gylfi er með fyrirliðabandið í fjarveru Arons Einars Gunnarssonar.
Hélt á bolla með te-i í.
Direction le stade de Reykjavik ! 🇮🇸 #ISLFRA #FiersdetreBleus pic.twitter.com/zKa2BQkRvu
— Equipe de France ââ (@equipedefrance) October 11, 2019
Stjörnuveðurfræðingurinn Theódór Hervarsson segir að kuldinn geti þó farið niður í þrjár gráður síðar í kvöld.
,,Spárnar eru sammála um að vindur verði hægur í Laugardalnum og ekki verði þörf fyrir regnfatnað. Það verður þó ekkert sérlega hlýtt. Þar erum við að tala um 5-6 gráður þegar flautað verður til leiks, en hitinn gæti svo skriðið niður að 3 gráðum í leikslok."
@footballiceland vs @equipedefrance
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) October 11, 2019
Laugardalsvöllur Stadium, ReykjavÃk
Tonight at 18:45 ISL time@UEFAEURO qualification
🇮🇸⚽ï¸ðŸ‘ pic.twitter.com/bCF8txUAHH
Á annað hundrað fjölmiðlamanna munu starfa í kringum leikinn og vegna fjöldans hefur þurft að útbúa mikið stærri aðstöðu á Laugardalsvelli fyrir fjölmiðlamenn en vanalega. Fréttamannafundir eftir leik verða svo haldnir í Baldurshaga þar sem skylmingaræfingar fara alla jafna fram.
Griezmann lofaði að fara à klippingu ef þeir vinna ekki á morgun.#fotboltinet pic.twitter.com/vgF3dlTW2j
— Arnar Laufdal (@AddiLauf) October 10, 2019
,,Við búumst við mikilli baráttu en við munum leggja áherslu á að spila góðan fótbolta með hröðum sendingum. Við viljum láta spilið ganga hratt þegar við erum með boltann. Við munum passa föst leikatriði sérstaklega hjá íslenska liðinu. Aukaspyrnur, hornspyrnur, innköst og þess háttar."
,,Þetta er gott lið og við búumst við mjög erfiðum leik. Við þekkjum íslenska liðið og berum virðingu fyrir því. Leikurinn á morgun er mjög mikilvægur fyrir okkur og við leggjum allt í sölurnar til að vinna."
18:45 Andorra - Moldóva
18:45 Tyrkland - Albanía
Vægast sagt áhugaverð viðureign í Tyrklandi þar sem Albanir kíkja í heimsókn. Tyrkjar á toppi riðilsins á meðan ekki er öll von úti fyrir Albani.
,,Íslendingar hafa sýnt að þeir eru betri á heimavelli og aðstæðurnar eru öðruvísi. Ég býst við líkamlega erfiðum leik.
,,Ísland spilar mjög beinskeyttan fótbolta og er með hættulegt lið í föstum leikatriðum, til dæmis í löngum innköstum. Þeir eiga margar hættulegar útfærslur í innköstum. Ísland er hættulegt lið, sérstaklega á heimavelli."
Ég er yfirleitt úber jákvæður à garð kk landsliðsins og held þvà áfram (slæmt að missa samt the captain) en ég ætla að spá
— Matti Matt (@mattimatt) October 10, 2019
2 - 2 sem væru fÃn úrslit. #TheSig og #kolb með mörkin. #fotboltinet. Ef það verður 3 - 2 sigur að þá er það #alfreð sem sér um það að bæta þvà við.
,,Þetta er opinn leikvangur með frjálsíþrótta hlaupabrautum og ég held að það verði mjög kalt. Ég veit ekki um gæðin á vellinum. Aðstæður gæti verið svolítið öðruvísi. Við verðum að aðlagast því af því að við erum atvinnumenn," sagði Giroud og Mandanda tók í sama streng.
,,Þetta verður mjög erfitt með rokið og rigninguna. Þeir spila líka með öðruvísi stíl heima en þegar þeir spila úti."
Les Bleus viennent d’atterrir en Islande 🇮🇸🇫🇷. #FiersdetreBleus pic.twitter.com/fmQv5pRDWI
— Equipe de France ââ (@equipedefrance) October 10, 2019
Síðustu mínúturnar fór að halla undan fæti hjá íslenska liðinu og Frakkar nýttu sér það. Antoine Griezmann, Kylian Mbappe og Olivier Giroud skoruðu allir og að lokum sigraði franska liðið örugglega, 4-0.
,,Við töpuðum fyrri leiknum 4-0. Við spiluðum ekki eins og við verum anir í þeim leik. Frakkar léku mjög vel en á sama tíma vorum við slakir og ég er nokkuð viss um að það sama verði ekki uppi á teningnum á morgun."
,,Síðustu 5-6 árin hefur verið erfitt að vinna okkur heima, sérstaklega í undankeppnum. Við vorum að ræða um þetta um daginn og ég man ekki hvenær við töpuðum síðast í undankeppninni á heimavelli. Vonandi heldur það áfram."
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands, þurfti að draga sig útúr landsliðshópnum um síðustu helgi eftir að hafa orðið fyrir groddaralegri tæklingu í katörsku úrvalsdeildinni. Aron verður frá í einvern tíma en Gylfi Þór Sigurðsson mun bera fyrirliðabandið í fjarveru hans.
Hann dæmdi úrslitaleik Evrópudeildarinnar fyrr á þessu ári, þegar Chelsea og Arsenal áttust við. Rocchi var valinn dómari ársins 2018 í ítölsku A-deildinni en sama ár starfaði hann við dómgæslu á HM í Rússlandi.
Þeim leik lauk með 1-1 jafntefli. Líkt og nú þá voru Frakkar ríkjandi heimsmeistarar þegar þeir mættu til Íslands í þann leik. Ríkharður Daðason kom Íslandi í forystu eftir rúmlega hálftíma leik en Rikki skallaði boltann þá í autt markið eftir skógarúthlaup frá Fabien Barthehz, markverði Frakka.
Christophe Dugarry skoraði jöfnunarmark Frakka tæpum þremur mínútum eftir mark Rikka.
Það eru þó stór skörð hoggin í franska liðið en þrjár stórstjörnur eru frá vegna meiðsla en það eru þeir Paul Pogba (Manchester United), Kylian Mbappé (PSG) og Hugo Lloris (Tottenham).
Tyrkland - 15 stig og 12 mörk í plús
Frakkland - 15 stig og 15 mörk í plús
Ísland - 12 stig og 1 mark í plús
Albanía - 9 stig og 1 mark í plús
Moldóva - 3 stig og 15 mörk í mínus
Andorra - 0 stig og 14 mörk í mínus
Framundan er viðureign Íslands og Heimsmeistara Frakka á Laugardalsvelli í undakeppni fyrir EM 2020. Leikurinn hefst 18:45 að staðartíma.
Verið með frá byrjun, takið þátt í umræðunni á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #fotboltinet og það er aldrei að vita nema einhverjir vel valdir póstar rati inn í þessa textalýsingu.







