Fotbolti.net
Arnar Laufdal Arnarsson
Arnar Laufdal Arnarsson
Pepsi Max-deild karla
Extra völlurinn
Sólin skín, trén hreyfast ekki og grasið lítur fáranlega vel út
Fjölnir
Fjölnir
1 - 4
Breiðablik
Breiðablik
0 - 14' Thomas Mikkelsen0 - 239' Alexander Helgi SigurðarsonGrétar Snær Gunnarsson 66'1 - 21 - 376' Thomas Mikkelsen1 - 479' Viktor Karl Einarsson
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson

SKÝRSLAN: Öruggur sigur Blika í Grafarvogi

Hvað réði úrslitum?

Yfirburðir Blika voru rosalegir fyrir utan kannski fyrstu 15-20 mínúturnar í seinni en þá skapaði Fjölnir sér ekki neitt reyndar... Blikarnir líka bara nýttu sín færi sem þeir fengu

Bestu leikmenn

1. Thomas Mikkelsen

Var geggjaður fyrir Blika í dag, var stanlaust að koma sér í færi og alltaf mikil ógn, 2 mörk og stoðsending frá honum í dag, geggjaður

2. Höskuldur Gunnlaugsson

Lagði upp í dag og var næst hættulegasti maður Blika og var alltaf að ógna úti á vinstri kanti hvort það voru fyrirgjafir eða skot utan af velli, virkilega flottur

Atvikið

Klippu markið hans Mikkelsen, lasið mark sem kom Blikum í 3-1 og gerði út um þennan leik!

Hvað þýða úrslitin?

Blikar fara í 2. sæti með 23 stig og Fjölnir eru ennþá neðstir með aðeins 4 stig

Vondur dagur

Örvar Eggertsson, var rosalega slakur í dag og það kom mjög lítið úr honum fram á við og var ekki að finna samherja þegar hann fékk boltann í lappir

Dómarinn - 5

Egill átti svona la la leik í dag, var stundum að sleppa við að dæma á hluti sem var klárt brot og virtist bara ekki vera með góð tök á leiknum, dæmdi samt réttilega ekki víti fyrir Fjölni þegar þeir vildu víti, hrós fyrir það
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.