Leik lokið!
Þessu er lokið hjá okkur í dag, vallarþulurinn segir dómnefnd hafa valið Jón Vigni mann leiksins.
Við þökkum hins vegar fyrir okkur frá Selfossi.
93. mín
Viktor með skot sem fer i horn. Selfyssingar koma þessu frá.
90. mín
Viktor á aukaspyrnu inn á teig sem endar hjá Stefáni í markinu, þarna voru sóknarmenn ÍR ekki á tánum.
86. mín
InnHelgi Freyr Sigurgeirsson
ÚtKristján Jóhannesson
81. mín
Dauða dauðafæri! Kenan á skot sem var á leiðinni í mark. en Brynjar ver gælsilega. Hornspynan er svo líka nálægt því að fara inn. Selfyssingar ekki alveg hættir.
76. mín
Gult spjald
Viktor Örn Guðmundsson
Fer yfir málin á of hreinni íslensku við Sigurð Scram, AD2. Hann fékk ekkert innkast en fékk þó gult spjald.75. mín
MAAAARK!
Ívan Óli Santos (stoðsending: Viktor Örn Guðmundsson )
Viktor tekur aukaspyrnuna beint á kollinn á Ívan sem skorar. Þessi leikur lifi!74. mín
Gult spjald
Gylfi Dagur Leifsson
Gylfi aðeins og seinn í þessa tæklingu og fær engan afslátt hjá Gunnari þó hann sé nýkominn inná völlinn.72. mín
InnGylfi Dagur Leifsson
ÚtValdimar Jóhannsson
71. mín
Báðir þjálfarar að gera breytingar, ÍR-ingar eru búnir að vera töluvert framar í síðari hálfleik, enda í leit að marki.
68. mín
InnÍsak Óli Helgason
ÚtRóbert Andri Ómarsson
68. mín
InnGunnar Óli Björgvinsson
ÚtÁgúst Freyr Hallsson
67. mín
InnÍsak Óli Helgason
ÚtBergvin Fannar Helgason
67. mín
InnAxel Kári Vignisson
ÚtÁstþór Ingi Runólfsson
67. mín
InnIngi Rafn Ingibergsson
ÚtArnar Logi Sveinsson
63. mín
MAAAARK!
Arnar Logi Sveinsson
Tokic fær boltann inn á teig og rúllar honum aftur út á Arnar Loga sem tekur skot í varnarmann og fylgir eftir sjálfur og nú finnur hann netið.62. mín
Axel Kári á svakalegt skot og Stefán Þór á sjónvarpsvörslu. Ágúst fylgir eftir en Arnar Logi rennir sér fyrir boltann. Besta færi ÍR til þessa!
60. mín
Gult spjald
Reynir Haraldsson
Fyrir brot á Arnari Loga á sama stað á hinum enda vallarins. Þór á aukaspyrnu sem fer í varnarþvöguna og mómentið er farið.57. mín
Gult spjald
Arnar Logi Sveinsson
Brýtur af sér nokkra metra frá vinstra vítateigshorninum, aukaspyrna á hættulegum stað sem ekkert verður úr.48. mín
Darraðardans!
ÍR í hörku sókn, nú eru blautir gluggarnir ekki að hjálpa neitt því við sáum ekki hver átti þetta fína skot sem Stefán gerði vel í að verja. Boltinn gekk svo á liðanna á milli innan vítateigs. Selfyssingar bægja þó hættunni frá að lokum.
46. mín
Gestirnir úr neðra Breiðholti hefja hefja siðari hálfleik. Nú fáum við að sjá hvað þjálfararnir hafa teiknað upp í hálfleik.
45. mín
Það er heldur búið að bæta í rigninguna og Gunnar Oddur hleypir mönnum til klefa. Við hlýðum Gunnari og tökum okkur smá hle.
44. mín
Gult spjald
Valdimar Jóhannsson
Er að þvælast fyrir í aukaspyrnu.42. mín
MAAAARK!
Hrvoje Tokic (stoðsending: Þorsteinn Daníel Þorsteinsson )
MAAARK!!!! Þorsteinn Daníel er á auðum sjá á hægri kantinum og sendir fyrir markið. Þar er Tokic í baráttu við varnarmann en nær skallanum á markið. Ég sagði ykkur að það væru enn mörk í þessum leik.40. mín
Jökull á sendingu inn á Valdimar sem skóflar boltanum yfir. Það eru mörk í þessum leik enn þá.
36. mín
Halldor liggur í annað skiptið á stuttum tíma, sjúkraþjálfari ÍR grandskoðar hann. Virðist hafa fengið högg á höfuðið.
34. mín
Úff, Tokic heldur boltanum vel inna teig og rúllar honum til hliðar þar sem Kenan á hörku skot sem Brynjar gerir mjög vel í að verja.
31. mín
Arnar Logi á hörkuskot sem fer af varnarmanni afturfyrir. Þór tekur hornspyrnuna á kollinn á Kenan sem skalla rétt framhjá.
31. mín
Gult spjald
Kenan Turudija
Fær gult fyrir að hafa of miklar skoðanir á dómgæslu.29. mín
ÍR-ingar fara í ævintýraferð upp völlinn þar sem Ágúst Freyr á gullfallegt skot frá vítateigsboga, þetta fór ekki langt framhjá. Við munum aldrei vita hvort Stefán Þór var með allt á hreinu þarna, það virtist þó vera.
24. mín
Rangstöðumark!
Þór Llorens með geggjaða aukaspyrnu lengst utanaf velli og sá ekki hver framlengdi inn í mark, en AD2 var með þetta í tréskeið. Markaskorarinn dæmdur rangur.
21. mín
Þarna eiga ÍR-inga hættulega sendinu upp allann völlinn og þarf Stefán Þór markvörður að hlaupa út ur teignum á móti Ágústi og sparka boltanum í innkast.
19. mín
Markið hefur ekki haft teljandi áhrif á skipulag liðanna, þetta er áfram barningur og Selfyssingar eru heldur meira með boltann. Lítið að gerast, en Kenan átti þó skot framhjá markinuu fra vítateigsboganum.
13. mín
MAAAARK!
Valdimar Jóhannsson (stoðsending: Hrvoje Tokic)
Valdimar gefur boltann á Tokic, en boltinn hrekkur af Tokic áfram inn i teig þar sem Valdimar heldur hlaupinu áfram og klárar þetta færi vel framhjá Brynjari.10. mín
Þessar fyrstu 10 mínútur voru tíðindalausar, ef svo má segja.
Að því sögðu á Viktor Örn sendingu inn fyrir sem Þorsteinn Daníel bjargar í horn sem ekkert verður úr.
9. mín
Gult spjald
Jónatan Hróbjartsson
Fer groddalega í fyrirliðann Arnar Loga sem var kominn á fulla ferð.1. mín
Þetta er farið í gang og á svipuðum tíma byrjar mjög létt rigning.
Fyrir leik
ÍR er allt annað en búið að tryggja áframhaldandi veru sína í deildinni. Þeir hafa aðeins unnið einn af síðustu 7 leikjum.
Selfoss er hins vegar eitt heitasta liðið á Íslandi í dag, þeir hafa unnið 7 leiki í röð og eru búnir að jafna Kórdrengi að stigum í efsta sæti.
Væntanlega skemmtilegur leikur framundan eins og næstum allir leikir í þessari skemmtilegustu deild sumarsins 2020.
Fyrir leik
Fyrir þau ykkar sem viljið meira en áhugamanna textalýsingu, þá verður leikurinn í beinni á Selfoss.TV
https://www.youtube.com/watch?v=HR5yJAEMbEw
Fyrir leik
Velkomin með okkur í sveitaferð. Hér verða verður farið yfir helstu atvik á Jáverk vellinum.
Toppbaráttan í 2. deildinni virðist vera komin í nýjan fasa, toppliðin eru búin að slíta sig frá pakkanum og eru að grinda inn sigra. Nú snýst allt um að misstíga sig ekki.


