Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Pepsi Max-deild karla
Origo völlurinn
Heiðskírt en napurt
Valur
Valur
2 - 0
ÍA
ÍA
Patrick Pedersen 55'1 - 066' Ísak Snær ÞorvaldssonKristinn Freyr Sigurðsson 72'2 - 0
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 200 - Í tveimur hólfum!
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Valur fann vængina eftir hlé

Hvað réði úrslitum?

Skagamenn mættu baráttuglaðir inn í leikinn og í miklum varnargír. Á endanum reyndust Valsmenn þó sterkari. Meistararnir stilltu saman strengi í hálfleik, fundu miklu betri takt í sóknarleiknum og unnu verðskuldað.

Bestu leikmenn

1. Patrick Pedersen - Valur

Heimamenn fundu Patrick ekkert í fyrri hálfleik en í seinni sýndi hann gæði sín með marki og stoðsendingu.

2. Kristinn Freyr Sigurðsson - Valur

Flott byrjun á tímabilinu. Skoraði seinna mark Vals.

Atvikið

Þegar Valur braut ísinn. ÍA hafði lokað vel á meistarana og gefið sárafá færi á sér. En stungusending Kaj Leo splundraði vörninni, Patrick slapp í gegn og þá er ekki að spyrja að leikslokum.

Hvað þýða úrslitin?

Valsmenn byrja sumarið á sigri en það er þétt leikjaprógramm framundan í maí. Næst er komið að stórleik gegn FH. Skagamenn eiga Víking næst.

Vondur dagur

Margir Skagamenn sem áttu flottan fyrri hálfleik urðu skugginn af sjálfum sér í þeim síðari. Ísak Snær sem átti flottan fyrri hálfleik nældi sér í rautt spjald í seinni hálfleiknum og eftir það áttu þeir gulu ekki möguleika.

Dómarinn - 8,5

Ekki auðveldur leikur að dæma. Það var hart barist en þriðja liðið stóð sig vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.