Fotbolti.net
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjólkurbikar karla
Boginn
Gervigras innanhúss, Logn
Þór
Þór
3 - 0
Magni
Magni
Sölvi Sverrisson 25'1 - 0Fannar Daði Malmquist Gíslason 47'2 - 0Aðalgeir Axelsson 90'3 - 0
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Áhorfendur: 137
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Góður sigur Þórs á baráttuglöðum Magnamönnum

Hvað réði úrslitum?

Þórs liðið er einfaldlega sterkara lið. Nýttu sér mistök hjá Magna.

Bestu leikmenn

1. Fannar Daði Malmquist Gíslason

Var líflegur í kvöld. Kom sér í færin sem skilaði einu marki.

2. Ólafur Aron Pétursson

Var mjög flottur á miðjunni hjá Þór í kvöld. Ógnaði mikið með skotum og flottum hornspyrnum.

Atvikið

Þegar Magna bekkurinn varð vitlaus við síðustu skiptingu Þórsrara og vildi meina að þeir væru búnir með skiptingarnar.

Hvað þýða úrslitin?

Þór komið áfram í næstu umferð Mjólkurbikarsins. BIkarævintýri Magna stutt í ár.

Vondur dagur

Það er erfitt að taka einhvern einn fyrir. Magnamenn létu finna fyrir sér í fyrri hálfleik. Svo þegar leið á misstu þeir einbeitinguna og Þórs liðið komst á bragðið.

Dómarinn - 8

Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson dómari leiksins átti flottan leik. Það var mikill hiti í mönnum en hann hafði góða stjórn á öllu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.