Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Pepsi-Max deild kvenna
Nettóvöllurinn
Sunny Kef stendur undir nafni en hann blæs aðeins og 7 stiga hita.
Keflavík
Keflavík
0 - 3
Selfoss
Selfoss
0 - 145' Brenna Lovera0 - 266' Brenna Lovera (víti)0 - 381' Hólmfríður Magnúsdóttir
Dómari: Atli Haukur Arnarsson
Áhorfendur: 50

SKÝRSLAN: Brenna sökkti Keflavík

Hvað réði úrslitum?

Lið Selfoss vildi þetta hreinlega meira. Fóru af krafti í alla bolta og virtust vera á undan í öll návígi. Fótboltinn var kannski ekki sá fallegasti en krafturinn og vinnumsemin fleytti þeim heim og vel það.

Bestu leikmenn

1. Brenna Lovera

Gerði tvö mörk í dag en þau hefðu hæglega getað orðið fleiri. Olli varnarlínu Keflavíkur miklum vandræðum og verður spennandi að sjá til hennar í sumar.

2. Hólmfríður Magnúsdóttir

Þarf lítið að kenna henni í fótbolta og þvílík gleðitíðindi að hún ætli að taka slaginn í sumar. Fyririgjöf sem leiðir til marks. vítaspyrna sótt og mark skorað. Þarf eitthvað meira?

Atvikið

Vítadómurinn eftir 65 mín var umdeildur á vellinum og hliðarlínunni. Var ekki í bestu aðstöðunni til að sjá sjálfur en heyrði það að leik loknum að hann hafi verið glórulaus. Selfyssingum er sama, Brenna skoraði úr vítinu og slökkti í vonum Keflavíkur að koma til baka og þar við situr.

Hvað þýða úrslitin?

Selfoss hefur mótið á sigri. Eitthvað sem þær hafa ekki gert fyrr en nú undir stjórn Alfreðs.
Keflavík er án stiga .

Vondur dagur

Tiffany Sornpao virkaði á köflum óörrugg í markinu og var oft í vandræðum með spyrnunar sínar. Eflaust eitthvað sem hægt að er skrifa á stress og fyrsta leik í nýjum aðstæðum en ég á ekki von á öðru en að hún mæti tvíelfd til leiks í næsta leik.

Dómarinn - 5

Sleppur en það rétt svo. Vítadómurinn fær að njóta vafans en heilt yfir var línan oft út á þekju og ég átti í raun í erfiðleikum með að sjá einhverja línu sem hann var að fylgja. Verður samt að hafa í huga að dómarar eins og leikmenn þurfa leikform og ég treysti því á að Atli Haukur verði solid með flautuna í sumar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.