SKÝRSLAN: Fjölnir var með stjórnina gegn Þrótti
Hvað réði úrslitum?
Fjölnismenn voru mikið meira með boltann. Þróttur náði að verjast vel á móti öflugri sókn Fjölnis. En eftir að þriðja markið kom hjá Fjölni og Hreinn Ingi fékk rautt spjald þá var þessi leikur alveg búinn.
Bestu leikmenn
1. Guðmundur Karl Guðmundsson
Gummi Kalli var mjög sprækur.
2. Arnór Breki Ásþórsson
Arnór Breki fékk átti tvær stoðsendingar í leiknum úr hornspyrnum, hann átti líka almennt mjög fínan leik.
Atvikið
Atvikið í leiknum er þegar markvörður Fjölnis, Sigurjón Daði, gefur boltann á Ford í teignum fyrir framan markið.
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnismenn fara fagnandi frá Laugardalnum með þrjú stig í hús eftir fyrsta leik. Þróttarar náðu ekki að koma sér á blað..
Vondur dagur
Það var enginn sem átti sýnilegan vondan dag, en maður verður að setja þetta á Hrein Inga sem fékk rautt annan leikinn í röð. Fyrst í Mjólkurbikarnum á móti Víkingi Ó. og svo í þessum leik. Svo fékk George Ford færi á silfurfati í fyrri hálfleik sem hann náði bara ekki að klára, það gæti hafa komið Þrótturum í góða stöðu
Dómarinn - 7,5
Dómarinn var ekki hræddur í að veifa upp spjöldum í þessum leik. Hann átti fínan leik.



