Fotbolti.net
Baldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Lengjudeild karla
Framvöllur
Fram
Fram
4 - 2
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
Albert Hafsteinsson (víti) 1'1 - 0Tryggvi Snær Geirsson 4'2 - 0Frederico Bello Saraiva 5'3 - 0Frederico Bello Saraiva 51'4 - 04 - 160' Kyle Douglas McLagan (sjm)4 - 281' Harley Bryn Willard (víti)
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson

SKÝRSLAN: Sambabolti í Sambamýrinni!

Hvað réði úrslitum?

Framarar gjörsamlega keyrðu yfir Ólsara sem basically voru ekki með fyrstu 5 mínútur leiksins, það er ansi dýrt að byrja leiki 3-0 undir og það varð gestunum algjörlega að falli.

Bestu leikmenn

1. Albert Hafsteinsson (Fram)

Albert var langbesti maður vallarins, sannkallaður umferðarstjóri hjá Fram og tók yfir leikinn í byrjun.

2. Fred Saraiva (Fram)

Hrikalega góður leikmaður, skoraði tvö góð mörk! Það eru hinsvegar margir Framarar sem gera tilkall hér, tildæmis Indriði Áki, Alex Freyr og Tryggvi...

Atvikið

Fyrstu sekúndurnar, Albert fær boltann og vippar í gegn á Indriða sem er brotið á og Fram fær víti... Hrikalega slöpp byrjun hjá Víkingum og setti tóninn fyrir næstu mínútur.

Hvað þýða úrslitin?

Fram tyllir sér í topp deildarinnar ásamt Fjölnismönnum, en þetta er bara fyrsti leikur af 22!

Næstu leikir liðanna eru ÍBV - Fram. og Víkingur Ó - Afturelding.

Vondur dagur

Víkingar heilt yfir ansi slappir allir í byrjun, varnarlínan hrikalega slöpp og Konni mátti verja þriðja markið sem var skot á nær... Bessi, Hlynur, Alex, Eli, Dale, Ingi Kort, Kareem... Mega allir taka þetta til sín bara!

Dómarinn - 7,5

Virkilega solid leikur hjá Agli og hans mönnum!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.