Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Lengjudeild karla
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
2 - 1
Þór
Þór
Stefán Ingi Sigurðarson 11'1 - 01 - 129' Jóhann Helgi HannessonNökkvi Már Nökkvason 65'Guðjón Pétur Lýðsson (misnotað víti) 89'Guðjón Ernir Hrafnkelsson 92'2 - 1
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: Sól og blíða og völlurinn flottur

SKÝRSLAN: Einn með öllu á Hásteinsvelli

Hvað réði úrslitum?

Stórt er spurt eftir svona leik og í raun ómögulegt að svara öðru en lukka. En menn skapa sér sína eiginn lukku og vinna fyrir því sem þeir fá.

Bestu leikmenn

1. Guðjón Ernir Hrafnkelsson

Kom inn á í erfiðri stöðu, Eyjamenn nýbúnir að missa mann út af með rautt. Barðist eins og ljón og mætti á réttan stað á réttum tíma og tryggði heimamönnum stigin þrjú.

2. Guðjón Pétur Lýðsson

Hann klúðraði vissulega víti á ögurstundu en þegar upp er staðið kom það ekki að sök. Gaui er hrikalega góður í fótbolta og er prímusmótor í spili ÍBV

Atvikið

Lokamínútur leiksins voru æsilegar, vítadómur, vítaklúður og sigurmark í uppbótartíma frá liðinu sem var einum færri.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV hoppar upp í 5.sæti deildarinnar og bíður leikur við lið Fjölnis þeirra næst. Þór situr í 8.sæti.

Vondur dagur

Alvaro Montejo virkaði pirraður á velli og lét mótlætið fara vel í taugarnar á sér. Hefur átt betri daga og vill eflaust kveðja Þór á betri nótum.

Dómarinn - 7.5

Það var hiti í leiknum stóran part hans og menn vel gíraðir. Jóhann hélt ágætlega um stjórnartaumana í leiknum þrátt fyrir það. Ákvarðanir hér og þar sem má setja spurningamerki við en heilt yfir fannst mér hann höndla verkefnið vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.