Fotbolti.net
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pepsi Max-deild karla
Domusnovavöllurinn
7°C, smá gola og skýjað. Klassískt mánudagskvöld í Breiðholtinu.
Leiknir R.
Leiknir R.
0 - 2
KR
KR
0 - 16' Pálmi Rafn Pálmason 0 - 250' Kjartan Henry Finnbogason
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: 298
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Hvítir sokkar, styttri lokkar og ofboðslega sannfærandi sigur KR

Hvað réði úrslitum?

KR var eftir fyrsta markið með svo gott sem fullkomna stjórn á leiknum fyrir utan stuttan kafla eftir hálftíma leik. Eina sem vantaði í leik gestanna voru fleiri mörk. Leiknisliðinu gekk illa að tengja og réði illa við massífa Vesturbæinga.

Bestu leikmenn

1. Kristján Flóki Finnbogason (KR)

Flóki var að mínu mati bestur á vellinum, hann og Kjartan Henry báðir góðir í því að djöflast og vinna eitthvað upp úr engu. Skoraði eiginlega mark sem Kjartan ákvað að ræna á línunni og skráist á Kjartan.

2. Pálmi Rafn Pálmason (KR)

Vél á miðjunn og stýrði samherjunum. Fer ekki alltaf hratt yfir en er á réttum stöðum þegar þess þarf. Skoraði markið sem breytti gangi leiksins í upphafi leiks. Kennie og Ægir fá tilnefningu, erfitt að velja í öflugu KR liði í dag.

Atvikið

Annað markið. Frábær sókn sem endar á því að Ægir þræðir boltann inn á Flóka sem vippar framhjá Guy í úthlaupi. Boltinn er á leiðinni í netið og Kjartan Henry rændi markinu á línunni með því að þruma boltanum í netið. Mér fannst rangstöðulykt af þessu á vellinum.
Seinkunin í upphafi leiks fær einnig tilnefningu, bæði lið voru í dökkum sokkum og var ekki hægt að hefja leik á réttum tíma vegna þess. Hvítir sokkar voru græjaðir á gestina og hófst leikurinn um þremur mínútum of seint.

Hvað þýða úrslitin?

Annað tap Leiknis í röð og fyrsta tapið á heimavelli. Á sama tíma annar sigur KR í röð og virkuðu KR-ingar ansi sannfærandi.

Vondur dagur

Það voru eiginlega margir í Leiknisliðinu sem voru daprir í kvöld. Ég ætla að vera leiðinlegur og segja að Daníel Finns hafi átt off dag og Sævar Atli komst í lítinn sem engan takt við leikinn.
Þetta var einnig vondur dagur fyrir þá sem vildu sjá síða hárið hans Óskars Arnar í Breiðholtinu, hann mætti með talsvert minna hár eftir landsleikjahléið.

Dómarinn - 7

Heilt yfir bara vel dæmdur leikur og ég tók ekki mikið eftir Sigga í leiknum. Fannst framkvæmdin á gula spjaldinu á Gyrði skrítin og ansi hart að spjalda Kjartan Henry fyrir pressuna á Guy í seinni hálfleik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.