Fotbolti.net
Einar Matthías Kristjánsson
Einar Matthías Kristjánsson
Pepsi deild karla
Selfossvöllur
Góðar
Selfoss
Selfoss
0 - 1
Valur
Valur
0 - 160' Matthías Guðmundsson
Dómari: Kristinn Jakobsson
Myndir: Fótbolti.net - Gunnar Már Hauksson
0. mín
Sæl og velkomin í beina textalýsingu frá Selfossvelli en hér fer fram áhugaverður leikur milli heimamanna og Valsmanna. Bæði lið hafa verið í ströggli undanfarið og því mikið undir í kvöld. Byrjunarliðin eru hér til hliðar
0. mín
Selfyssingar hafa tekið aðeins til í sínum hópi og nýtt vikuna til að berja liðið saman eftir lélegt gengi. Þeir Ndiaye og Joe Tillen eru farnir frá félaginu, sá fyrrnefndi í Hamar á láni og Tillen er líklega á leið til Valsmanna á morgun. Á móti hafa fjórir nýjir leikmenn gegnið til liðs við Selfoss og eru þrír þeirra í hóp í dag. Egill Jónsson kemur á láni frá KR og er á bekkinum, Hafþór Þrastarson kemur á láni frá FH og fer beint í miðvörðinn og Marko Hermo kemur frá Noregi og fer í stöðu vinstri bakvarðar. Auk þeirra er talað um að Dofri Hermannsson komi á láni frá KR en hann kemur ekki nálægt leiknum í dag.
0. mín
Bæði lið hafa misst menn í bann fyrir þennan leik, Robert Sandnes er í banni hjá Selfossyngum vegna spjaldasöfnunar en hjá Valsmönnum er Haukur Páll í banni eftir tæklinguna sína í síðasta leik.
0. mín
Valsmenn unnu fyrri viðureign liðana á Vodafone vellinum 3-1 með mörkum frá Herði Sveins, Matta Guðmunds og Rúnari Má en Royrane skoraði laglegt mark fyrir Selfyssinga.
0. mín
Skýrslan var ekki alveg rétt hjá KSI því Kolbeinn Kára er í byrjunarliði og fer beint upp á topp fyrir Ásgeir Þór Ingólfsson sem er á bekknum.
0. mín
Selfoss Ismet Brenne - Brons - Hafþór - Hermo Babacar - Royrane Tommi Leifs - Jón Daði - Óli Kalli Viðar
0. mín
Valur Ólafur Þór Næs - Halldór - Atli Sveinn - Nesta Matti - Þórir - Rúnar Már - Kristinn - Guðjón Kolbeinn
0. mín
Allt klárt á Selfossi og Kiddi Jak fer fyrir liðunum inn á völlinn meðan Már Ingólfur Másson skeleggur vallarkynnir á Selfossi kynnir liðin.
0. mín
Valsmenn spila í varabúningum sínum í dag og af einhverjum mjög illskiljanlegum ástæðum ákváðu Valsmenn að hafa varabúninginn sinn blláan. Þeir sækja að frjálsíþróttavellinum og byrja með boltann.
1. mín
Kolbeinn Kára bíður Marko Hermo vinstribakvörð Selfyssinga velkominn í deildina og spólaði framhjá honum strax í fyrstu sókn en heimamenn náðu að bægja hættunni frá.
5. mín
Valsmenn mun sprækari til að byrja með og reyna mikið að sækja upp hægri kantinn á Hermo sem er óöruggur hérna á upphafsmínútunum.
Selfoss
9. mín
Gult spjald

Ólafur Karl Finsen

Ólafur Karl fær gult fyrir leikaraskap, verður frólegt að sjá þetta í sjónvarpi því þetta virkaði nú sem brot.
10. mín
Hermo er í smá balsi, svo miklu reyndar að hann tók vitlaust innkast.
14. mín
Flott sókn hjá Selfyssingum sem endar með skalla frá Jóni Daða yfir markið. Heimamenn eru aðeins að hressast.
15. mín
Akaspyrna rétt fyrir utan teig sem Ólafur Karl setti rétt framhjá markinu.
20. mín
Viðar Kjartans fær aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. EN Jón Daði nýtti hana ekki vel og skaut hátt yfir markið.
Valur
25. mín
Gult spjald

Halldór Kristinn Halldórsson

26. mín
Töluvert annað að sjá Selfyssinga í þessum leik heldur en oft undanfari,ð liðið er að spila betur og halda boltanum innan liðsins. Valsmenn vilja heldur bíða og sækja hratt fram þegar færi gefst og eiga nokkur hættuleg uppphlaup.
27. mín
Rúmar Már átti hættulegan skalla frír inni á teig en setti boltan framhjá markinu.
28. mín
Ólafur Karl komst einn í gegn en Ólafur Þór varði í tvígang frá honum en færið var nokkuð þröngt. Rúnar Már áttu hörkuskot hinumegin rétt framhjá.
37. mín
Tómas Leifsson setur boltann yfir úr dauðafæri eftir frábæran undirbúning Viðars Kjartans.
45. mín
Hálfleikur á Selfossi. Þetta hefur verið nokkuð jafnt í fyrri hálfleik þó heimamenn hafi kannski verið ívið sterkari. Greinilegt að mikið hefur verið tekið til í þeirra hópi því það er allt annað að sjá Selfoss heldur en í undanförnum leikjum.
46. mín
Leikurinn er hafin að nýju og bæði lið eru óbreytt.
48. mín
Kristinn Freyr komst einn í gegn og átti hörkuskot að marki sem Ismet varði vel. Stuttu seinna heimta Valsmenn víti fyrir brot á Kolbeini Kára en fengu ekkert
49. mín
Selfyssingar í stórsókn sem endar með skoti frá bæði Viðari Kjartans og Tomma Leifs en Ólafur Þór varði vel í bæði skiptin. Besta færi leiksins til þessa.
50. mín
Leikurinn er mjög fjörugur í augnablikinu, nú var Rúnar Már með hörkuskot fyrir utan sem sveif rétt yfir markið.
54. mín
Valsmenn mun sterkari í augnablikinu og hafa átt þrjár álitlegar sóknir sem Selfyssingar hafa hreinsað frá í hálfgerðri nauðvörn.
Valur
56. mín
Gult spjald

Matthías Guðmundsson

Matti fær gult fyrir leikaraskap inni í vítateig og er afar ósáttur við það.
Selfoss
57. mín
Gult spjald

Ingvi Rafn Óskarsson

Fyrir brot á Rúnari Má sem liggur eftir en er þó að standa upp aftur.
58. mín
Matthías Guðmunds er að herja mikið á Hermo vinstri bakvörð Selfoss og er að skapa töluverðan usla í vítateig heimamanna trekk í trekk.
Valur
60. mín
MAAAARK!

Matthías Guðmundsson

Hann var búinn að hóta þessu í nokkrar mínútur og skorar gott skallamark óvaldaður í teignum eftir sendingu frá Rúnari Má
Selfoss
68. mín
InnLuka Jagacic
ÚtÓlafur Karl Finsen
Selfoss
68. mín
InnMoustoupha Cissé
ÚtJon Andre Royrane
Logi gerir breytingar á sínu liði, Egill Jónsson spilar sinn fyrsta leik með Selfoss og Cisse líklega sinn síðasta en hann ku vera að fara á láni til Start í Noregi á morgun.
77. mín
Selfyssingar hafa farið nokkuð illa með færin í dag en öll skot á markið fara himinhátt yfir markið. Nú síðast var það Tómas Leifsson. Jón Daði fékk stuttu seinna hörku færi en skot hans fór rétt framhjá.
Valur
78. mín
InnHörður Sveinsson
ÚtJónas Tór Næs
Valur
81. mín
Gult spjald

Guðmundur Þór Júlíusson

Fyrir brot á Endre Brenne
Valur
82. mín
InnHafsteinn Briem
ÚtGuðmundur Þór Júlíusson
89. mín
Þetta er að fjara út hjá heimamönnum og Valsmenn sigla þessum þremur stigum líklega í hús. Uppbótartími eftir.
Selfoss
90. mín
InnMagnús Ingi Einarsson
ÚtTómas Leifsson
Magnús Ingi að spila seinn fyrsta leik í Íslandsmóti kemur inn fyrir þreyttan Tómas Leifsson sem var sprækur í dag.
Selfoss
91. mín
Gult spjald

Luka Jagacic

Fyrir að stoppa sókn fyrir peysutog
Selfoss
93. mín
Gult spjald

Jón Daði Böðvarsson

Pirringur í Jóni Daða sem sparkaði boltanum í burtu eftir að hann var farinn útaf.
94. mín
Leik lokið með sigri Valsmanna. Þeir voru sterkari í seinni hálfleik og sigldu þessu nokkuð örugglega í land í restina. Góð barátta hjá heimamönnum og ágæt spilamennska á köflum dugði ekki til og því orðið ljóst að liðið vann ekki deildarleik í júní og júlí.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.