Fotbolti.net
@haflidibHafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Pepsi-deild karla
Fylkisvöllur
Dúnalogn, 13 gráðu hiti og alskýjað.
Fylkir
Fylkir
3 - 3
Stjarnan
Stjarnan
0 - 110' Ellert Hreinsson Jóhann Þórhallsson 33'1 - 11 - 238' Mark DoningerDavíð Þór Ásbjörnsson 63'2 - 22 - 372' Halldór Orri Björnsson Ingimundur Níels Óskarsson 82'3 - 3
Dómari: Erlendur Eiríksson
0. mín
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá Fylkisvelli þar sem Fylkir tekur á móti Stjörnunni í Pepsi-deild karla. Leikurinn hefst 19:15 og liðin eru komin hér sitthvorum megin við textann.
0. mín
Leikurinn er minningarleikur um Jón Ellert Tryggvason sem var ötull starfsmaður Fylkis. Hann lést á aðfangadag en hefði verið 45 ára í dag. Í tilefni dagsins er Geir Ólafsson stórsöngvari mættur í Árbæinn og hefur verið að undirbúa sig undir að syngja lagið You\'ll never walk Alone sem margir þekkja sem Liverpool lagið. Jón Ellert var mikill Liverpool stuðningsmaður.
0. mín
Fylkismenn gera eina breytingu á liði sínu sem vann 0-2 sigur á Keflavík í síðustu umferð. Jóhann Þórhallsson kemur inn fyrir Árna Frey Guðnason. Stjarnan gerði 1-1 jafntefli við KR í síðustu umferð. Tryggvi Sveinn Bjarnason kemur inn í liðið fyrir Baldvin Sturluson sem er í leikbanni og það er eina breytingin hjá þeim. Mark Doninger sem kom frá ÍA um daginn er aftur varamaður hjá Stjörnunni.
0. mín
Finnur Ólafsson og Davíð Þór Ásbjörnsson eru miðverðir hjá Fylkismönnum í kvöld eins og í síðasta leik gegn Keflavík.
0. mín
Liðin eru komin út á völl og nú hefur farið fram mínútu þögn til minningar um Fylkismannin Jón Ellert Tryggvason sem lést á aðfangadag í fyrra. Hann hefði orðið 45 ára í dag. Nú syngur Geir Ólafs lagið You\'ll never walk alone og í kjölfarið mun leikurinn hefjast.
1. mín
Leikurinn er hafinn. Stjörnumenn byrja með boltann og leika í átt að verslun Krónunnar.
2. mín
Lars Lagerback landsliðsþjálfari Íslands og Heimir Hallgrímsson aðstoðarmaður hans eru mættir á Fylkisvöll. Báðir voru þeir búnir að fjárfesta í hamborgara og sódavatni á svæðinu og nærast núna í byrjun leiks.
Fylkir
3. mín
Gult spjald

Kjartan Ágúst Breiðdal

Fylkismenn láta vel finna fyrir sér í byrjun leiks. Ásgeir Börkur er búinn að fá tiltal nú þegar og Kjartan Ágúst fékk núna áminningu fyrir brot á Kenny Chophart.
Stjarnan
10. mín
MAAAARK!

Ellert Hreinsson

Garðbæingar eru komnir yfir. Jóhann Laxdal sendi boltann inn í teiginn á Ellert Hreinsson sem skallaði inn. Fjórða mark Ellerts í sumar.
20. mín
Það er ekkert stórkostlegt búið að vera að gerast. Liðin eru að þreifa fyrir sér og reyna að skapa færi. Ellert var að skalla yfir mark Fylkis úr fínu færi eftir sendingu Halldórs Orra.
Fylkir
21. mín
Gult spjald

Jóhann Þórhallsson

Jóhann fær áminningu fyrir að tækla Jóhann Laxdal þegar hann ætlaði á undan honum í boltann en náði ekki.
Stjarnan
28. mín
Gult spjald

Jóhann Laxdal

Jóhann fær áminningu fyrir að slá boltann úr höndum Finns Ólafssonar sem var að taka innkast.
30. mín
Kenny Chophart komst í dauðafæri gegn Bjarna Þórði en skaut framhjá marki Fylkis.
31. mín
Fylkismenn búnir að eiga sitt fyrsta skot á mark. Jóhann Þórhallsson átti það en það var veikt og beint á Ingvar í markinu.
Fylkir
33. mín
MAAAARK!

Jóhann Þórhallsson

Jóhann Þórhallsson jafnar metin. Oddur Ingi Guðmundsson átti fast skot utan af velli sem Ingvar varði en náði ekki að halda boltanum og Jóhann náði frákastinu og skoraði framhjá Ingvari.
Stjarnan
34. mín
InnMark Doninger
ÚtGarðar Jóhannsson
Garðar þarf að fara af velli og Doninger kemur inn í hans stað. Áhorfendur í Árbænum bauluðu þegar Doninger kom inná.
Stjarnan
38. mín
MAAAARK!

Mark Doninger

Jóhann Laxdal búinn að leggja upp annað mark. Nú sendi hann boltann frá hægri inn í teiginn, Ellert Hreinsson lét boltann fara og Mark Doninger fékk hann á auðum sjó utarlega í teignum og skoraði.
Stjarnan
43. mín
Gult spjald

Atli Jóhannsson

Atli fær áminningu fyrir brot á Tómasi Joð.
45. mín
Kenny Chophart í fínu færi eftir sendingu Atla en skaut framhjá Fylkismarkinu.
45. mín
Það er kominn hálfleikur á Fylkisvelli. Staðan 1-2 fyrir Stjörnuna í hálfleik.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn. Liðin koma óbreytt til leiks.
Fylkir
49. mín
Gult spjald

Ásgeir Börkur Ásgeirsson

60. mín
Kenny Chophart með skot langt utan af velli sem fór rétt yfir Fylkismarkið.
Fylkir
63. mín
MAAAARK!

Davíð Þór Ásbjörnsson

Í kjölfar hornspyrnu datt boltinn dauður í teignum fyrir framan Davíð Þór Ásbjörnsson sem var fljótur að átta sig og þrumaði í markið af stuttu færi.
Stjarnan
67. mín
InnGunnar Örn Jónsson
ÚtKennie Chopart
70. mín
Jóhann Þórhallsson skallar hátt yfir mark Stjörnunnar úr fínu færi.
Stjarnan
72. mín
MAAAARK!

Halldór Orri Björnsson

Halldór Orri kemur Stjörnunni aftur yfir. Varamaðurinn Gunnar Örn Jónsson fór upp að endamörkum og kom boltann í teiginn á Halldór Orra sem lagði boltann í markið.
Fylkir
77. mín
Gult spjald

Ingimundur Níels Óskarsson

Fylkir
82. mín
MAAAARK!

Ingimundur Níels Óskarsson

Ingimundur Níels slapp einn í gegn eftir góða sendingu Björgólfs Takefusa innfyrir vörnina og afgreiddi boltann auðveldlega framhjá Ingvari í markinu.
Fylkir
84. mín
InnMagnús Þórir Matthíasson
ÚtBjörgólfur Takefusa
85. mín
Áhorfendur á Fylkisvelli í kvöld eru 1017.
88. mín
Alexander Scholz með skot í stöng Fylkismarksins og í kjölfarið var Doninger með skot sem Bjarni Þórður varði.
Fylkir
89. mín
InnRúrik Andri Þorfinnsson
ÚtJóhann Þórhallsson
90. mín
Þremur mínútum er bætt við venjulegan leiktíma.
Fylkir
93. mín
Gult spjald

Finnur Ólafsson

94. mín
Hörður Árnason með hörkuskot að marki sem Bjarni Þórður varði í horn.
Leik lokið!
Leiknum er lokið með 3-3 jafntefli. Frekari umfjöllun og viðtöl hér á Fótbolta.net síðar í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.