0. mín
Heil og sæl! Hér á KR-vellinum er ansi athyglisverður leikur KR og Fram sem hefst klukkan 18. Framarar hafa ekki fengið stig í Frostaskjólinu síðan 2000 en eru taplausir í þremur síðustu leikjum sínum, gerðu tvö jafntefli og unnu síðan Val 3-1 í síðustu umferð.
Staða þessara liða í deildinni er gjörólík. KR er með tveggja stiga forystu á toppnum og á þar að auki leik inni. Fram er í fallsæti, situr í 11. sæti og er sex stigum frá öruggu sæti sem stendur.
0. mín
Dómgæslan hefur mikið verið til umræðu hjá KR-ingum að undanförnu. Dómari kvöldsins er Þorvaldur Árnason sem hefur verið einn besti dómari deildarinnar í sumar.
0. mín
Guðjón Baldvinsson í KR og Almarr Ormarsson í Fram taka út leikbönn í kvöld. Þá eru sterkir menn á meiðslalistanum hjá báðum liðum.
0. mín
Tvær breytingar á liði KR frá jafnteflisleiknum gegn ÍBV. Ásgeir Örn Ólafsson er farinn aftur til Noregs og Guðjón Baldvinsson er í banni. Magnús Már Lúðvíksson er kominn aftur eftir meiðsli og Egill Jónsson er mættur í byrjunarliðið.
Hjá Fram er ein breyting. Þar sem Almarr er í leikbanni kemur hinn ungi og efnilegi Hólmbert Aron Friðjónsson í byrjunarliðið. Hólmbert kom til Fram frá HK í sumar.
0. mín
Skúli Jón Friðgeirsson er enn meiddur en hann er að jogga á vellinum í þessum skrifuðu orðum. Halldór Hermann Jónsson mætti á undan samherjum sínum út að hita sem gæti þýtt að hann sé eitthvað smá tæpur vegna meiðsla.
Minnum fólk á að vera duglegt á Twitter og nota hashtagið #fotbolti þegar skrifað er um Pepsi-deildina. Valdar færslur verða birtar í textalýsingunni á meðan leik stendur.
0. mín
Sólin er farin að láta sjá sig og vilja gárungar meina að það sé alltaf gott veður þegar KR á heimaleik.
0. mín
Heyr mína bæn farið að hljóma meðan liðin ganga út á völlinn. Athyglisverður leikur framundan. Ég bið allavega um meiri skemmtun en ég fékk á Kópavogsvellinum í gær.
1. mín
Leikurinn er hafinn. Það er ansi fámennt Fram-megin í stúkunni en vonum að það eigi eftir að fjölga. KR-ingar byrjuðu með boltann en þeir sækja í átt að félagsheimili sínu.
6. mín
Guðmundur Reynir Gunnarsson með fast skot eftir góða spilamennsku KR. Ögmundur í marki Fram kýldi boltann frá. Fyrsta alvöru marktilraun leiksins.
10. mín
KR-ingar hættulegri í upphafi leiks. Egill Jónsson í hörkufæri sem Ögmundur varði, boltinn barst út á Aron Bjarka sem átti annað skot en aftur varði Ögmundur.
12. mín
Fyrsta skot Fram. Frábær sending innfyrir á Steven Lennon sem var í fínu færi en skot hans ekki nægilega öflugt svo boltinn fór framhjá.
15. mín
Framarar að lifna við og hafa skapað miklu hættu upp við mark KR síðustu mínútur. Hafa átt tvær hættulegar hornspyrnur með stuttu millibili en Hannes Þór verið vel vakandi í markinu. Þá fékk Jón Gunnar Eysteinsson dauðafæri en náði ekki skoti að marki.
21. mín
Sam Tillen leikur á varnarmenn KR og kemst inn í teiginn. Lipurlega gert en skot hans ekki nægilega gott og boltinn fer framhjá.
23. mín
Fram hefur einfaldlega verið betra liðið það sem af er og er líklegra til að setja mark eins og þetta er að spilast.
27. mín
Þarna munaði engu að Fram tæki forystuna! Steven Lennon fór illa með varnarmenn KR og komst í dauðafæri en Hannes varði svo boltinn skaust upp í loftið og stefndi svo í markið áður en Grétar Sigfinnur bjargaði á línu.
28. mín
Gult spjald
Hlynur Atli Magnússon
Fyrir groddalegt brot á Kjartani Henry Finnbogasyni. Hárréttur dómur.32. mín
Fyrsta af viti sem KR-ingar gera í langan tíma. Kjartan Henry komst í fínt færi í teignum en skot hans fór í varnarmann og þaðan í hornspyrnu. Annars eru KR-ingar í raun stálheppnir að vera ekki undir í þessum leik.
33. mín
HANNES VARÐI VÍTI! Bjarni Guðjónsson dæmdur brotlegur en Steven Lennon féll í teignum. KR-ingar hafa verið í miklum vandræðum með Lennon sem steig sjálfur á punktinn en spyrna hans laus og gríðarlega döpur svo Hannes varði.
33. mín
Gult spjald
Hólmbert Aron Friðjónsson
36. mín
Baldur Sigurðsson spólaði sig í gegnum vörn Fram og markverði en missti boltann frá sér. Munaði engu að KR refsaði Fram þarna fyrir að klúðra vítinu.
37. mín
Maður getur ekki annað en rifjað upp leik FH og KR fyrr í sumar. Þá voru FH-ingar búnir að vera talsvert betri þar til Hannes varði vítaspyrnu, þá snérist dæmið við og KR-ingar vöknuðu og kláruðu leikinn. Spurning hvort það verði sagan núna?
42. mín
Björn Jónsson með skot sem fer framhjá. KR-ingar komist betur inn í þetta þessar fyrstu mínútur eftir vítavörslu Hannesar.
45. mín
Það er markalaust í hálfleik. Framarar mun betra liðið þar til Hannes varði ömurlega vítaspyrnu Lennon. Eftir það voru KR-ingar örlítið betri.
46. mín
InnJón Orri Ólafsson
ÚtHólmbert Aron Friðjónsson
Hólmbert sem var kominn með gult spjald fer af velli. Þorvaldur með tilfærslur, Daði Guðmunds fer á miðjuna og Jón Orri í hægri bakvörðinn. Seinni hálfleikur er farinn af stað.
48. mín
Steven Lennon heldur áfram að vera ógnandi. Fékk sendingu frá Jóni Orra og átti lúmskt skot sem fór naumlega framhjá.
50. mín
Úr stúkunni er það helst að frétta að stuðningsmenn KR hafa ekkert sungið um Hödda Magg og Stöð 2 Sport. Fengu kannski nóg af laginu eftir síðasta leik.
52. mín
Mikill darraðadans við mark Fram! Boltinn skoppaði um markteiginn áður en hann barst út á Viktor Bjarka sem skaut yfir. Þarna hefur hjartsláttur Framara orðið örari!
54. mín
InnMagnús Otti Benediktsson
ÚtBjörn Jónsson
Björn Jónsson farinn meiddur af velli. Fékk högg þegar darraðadansinn var við mark Fram.
63. mín
InnDofri Snorrason
ÚtMagnús Már Lúðvíksson
65. mín
Gult spjald
Alan Lowing
Það er jafnræði með liðunum þessa stundina.70. mín
KR virðist hægt og bítandi vera að ná yfirhöndinni í þessum leik.
78. mín
InnÁsgeir Gunnar Ásgeirsson
ÚtDaði Guðmundsson
Spurning hvort Arnar geti búið til sigurmark í þessum leik. Annars hefur leikurinn róast talsvert hérna í seinni hálfleiknum.
81. mín
MAAAARK!
Kjartan Henry Finnbogason
KR-ingar skora úr vítaspyrnu! Hendi dæmd á varnarmann Fram innan teigs og Þorvaldur Árnason benti samstundis á vítapunktinn, virtist alveg öruggur á þessu. Kjartan Henry Finnbogason fór á punktinn og skoraði af öryggi þó Ögmundur hafi farið í rétt horn. Steven Lennon ætti að skoða þessa spyrnu betur þegar heim er komið.86. mín
MAAAARK!
Alan Lowing (sjm)
Lowing verður fyrir því óláni að setja boltann í eigið mark eftir góða sókn KR-inga. Óhætt er að segja að ekkert hafi fallið með Fram í þessum leik. Meistaraheppni hjá KR-ingum?91. mín
MAAAARK!
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson
Arnar Gunnlaugsson með fallegasta mark leiksins beint úr aukaspyrnu. Of Seint fyrir Fram sem átti ekki skilið að fara tómhent úr þessum leik. Leik er lokið með 2-1 sigri KR.


