Fotbolti.net
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjudeild karla
Hásteinsvöllur
Þoka, völlurinn blautur og smá gola
ÍBV
ÍBV
4 - 1
Grindavík
Grindavík
0 - 137' Dion Jeremy AcoffJose Enrique Seoane Vergara 47'1 - 1Guðjón Pétur Lýðsson 58'2 - 1Stefán Ingi Sigurðarson 62'3 - 1Tómas Bent Magnússon 77'4 - 1
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Verður grátið eða hlegið í Vestmannaeyjum í kvöld?

Hvað réði úrslitum?

Eyjamenn mættu bara dýrvitlausir í seinni hálfleikinn og það skilaði þeim sigri. Eftir annað markið, þá virtust Grindvíkingar vankaðir og þeir voru aldrei líklegir að koma til baka eftir það.

Það var tilkynnt um hertar aðgerðir innanlands í hálfleik í kvöld. Þjóðhátíð getur ekki farið fram um Verslunarmannahelgina og óvíst hvort hún verði í sumar. Vestmannaeyingar ætla að reyna að halda hana seinna í sumar en hvort það sé hægt, það er óvíst. Það er spurning hvort það verði hlegið eða grátið í Vestmannaeyjum í kvöld.

Bestu leikmenn

1. Sito (ÍBV)

Spænski sóknarmaðurinn er verulega heitur og það var alltaf hætta í kringum hann í dag. Skoraði eitt og lagði upp eitt.

2. Guðjón Pétur Lýðsson (ÍBV)

Kóngurinn á miðju ÍBV. Þvílík afgreiðsla í öðru markinu hjá honum!

Atvikið

Ég ætla að segja að það hafi verið mark Guðjóns Péturs. Frábærlega afgreitt hjá honum og Grindvíkingar voru aldrei líklegir eftir það.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV styrkir stöðu sína í öðru sæti. Grindavík hefur ekki unnið í síðustu sex leikjum sínum; fimm jafntefli og eitt tap. Þeir eru núna sex stigum frá öðru sæti og það er ekki góð staða að vera í á þessum tímapunkti.

Vondur dagur

Ég hefði sett markvörð ÍBV, Jón Kristinn, í þennan flokk eftir fyrri hálfleikinn. Aron Dagur í marki ÍBV var líka á góðri leið með að vera maður leiksins eftir fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik breyttist allt. Ég set Josip Zeba, miðvörð Grindavíkur, í þennan flokk. Ekki dagurinn hans í hjarta varnarinnar.

Dómarinn - 8,5

Virkilega vel dæmdur leikur hjá Jóhanni! Mikið hrós á hann.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.