Fotbolti.net
Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
Lengjudeild karla
SaltPay-völlurinn
Mjög heitt og dálítill suð-vestan vindur. Sólin í felum á bakvið skýin.
Þór
Þór
4 - 2
Grótta
Grótta
Ásgeir Marinó Baldvinsson 26'1 - 0Jóhann Helgi Hannesson 30'2 - 0Fannar Daði Malmquist Gíslason 39'3 - 0Ásgeir Marinó Baldvinsson 55'4 - 04 - 167' Kjartan Kári Halldórsson4 - 286' Pétur Theódór Árnason
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Þór kláraði Gróttu í fyrri hálfleik

Hvað réði úrslitum?

Þórsarar völtuðu yfir Gróttu á 13 mínútna kafla í fyrri hálfleik. Þar skoruðu heimamenn þrjú mörk og gestirnir áttu í raun ekki möguleika eftir það. Björn Axel Guðjónsson fékk frábært færi til að jafna leikinn í 1-1 andartaki eftir að Ásgeir Marinó hafði komið Þór yfir en í stað þess kom Jóhann Helgi heimamönnum í 2-0. Eftir það misstu Gróttumenn hausinn og í raun aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda, þrátt fyrir tvö mörk Gróttu í síðari hálfleik.

Bestu leikmenn

1. Ásgeir Marinó Baldvinsson (Þór)

Það mætti í raun setja copy/paste á umsögn mína um tvo bestu menn vallarins. Gríðarlega duglegir án boltans og skoruðu þrjú af fjórum mörkum Þórs. Sömuleiðis voru þeir öflugir á boltanum og tengdu sérstaklega vel við Sigurð Marinó og Jóhann Helga.

2. Fannar Daði Malmquist (Þór)

Sjá texta að ofan! Skoraði stórglæsilegt mark þar sem að hann spretti frá miðjum vallarhelmingi og inn í teig Gróttu áður en hann kláraði vel framhjá Jóni í markinu. Flottur leikur.

Atvikið

Glæsimark Fannars Daða. Sýndi hraða, styrk og yfirvegun í aðdraganda marksins.

Hvað þýða úrslitin?

Þór stökkva upp fyrir Gróttu og fara í 6. sætið með 19 stig, þremur stigum frá 3. sætinu. Lengra er þó upp í 2. sætið sem Eyjamenn verma, eða 7 stig. Þeir fá topplið Fram í heimsókn í næstu umferð og mæta Safamýrarliðinu fullir sjálfstrausts. Seltirningar kíkja á Vestfirði í næstu umferð og spila þar gegn Vestra. Grótta situr nú í 8. sæti Lengjudeildarinnar.

Vondur dagur

Gróttumenn munu vilja gleyma þessum fyrri hálfleik sem fyrst. Náðu ekki að opna Þórsvörnina af neinu viti og misstu algjörlega hausinn þegar þeir lentu 2-0 undir. Þeir hættu algjörlega að pæla í því hvernig væri best að koma sér aftur inn í leikinn og hugsuðu heldur mikið um Gunnar Odd dómara, ásamt því að pirra sig á mótherjanum.

Dómarinn - 7

Gekk áfallalaust fyrir sig í dag hjá Gunnari.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.