SKÝRSLAN: Hungraðir Þróttarar sóttu þrjú dýrmæt stig á Selfoss
Hvað réði úrslitum?
Það er svo sem gömul tugga en vilji og hungur Þróttara var mun meira í leiknum. Mörkin telja í fótbolta og þar höfðu Þróttarar yfirburði, Selfyssingar mikið með boltann en fengu fá ef nokkur færi.
Bestu leikmenn
1. Róbert Hauksson
Tvær stoðsendingar og mark. Það þarf ekki að ræða þetta frekar. Líflegur allan leikinn.
2. Kairo Edwards-John
Verð að gefa Kairo þetta þó að hann hafi einungis dugað í 60 mínútur. Hann skapaði alls konar usla í vörn Selfoss þegar Þróttarar unnu fram á við.
Atvikið
Fyrsta mark leiksins breytti gangi leiksins. Selfyssingar voru líflegir fram að því og með ágæta stjórn á leiknum en Þróttarar höfðu alla stjórn á leiknum eftir markið. Ótrúlegt skipbrot hjá heimamönnum við að fá þetta mark í andlitið.
Hvað þýða úrslitin?
Að fallbaráttan er opin upp á gátt. Virkilega mikilvægur, sannfærandi og sanngjarn sigur gestanna hér í kvöld,
Vondur dagur
Fyrir Selfossliðið í heild sinni sem, þrátt fyrir mjög gott veður á Selfossi, sáu ekki til sólar eftir fyrsta mark Þróttara.
Dómarinn - 9
Stýrði leiknum vel um leið og hann leyfði honum að fljóta. Var ekkert að flauta á smámuni en þó komust menn ekki upp með neinn fautaskap.


