SKÝRSLAN: Leikur sem hafði allt nema mörk
Hvað réði úrslitum?
Guy Smit í marki Leiknis og færanýting heimamanna. Leiknir hefði getað komist yfir en Fylkir fékk mikið af færum og mikið af álitlegum upphlaupum. Leiknismenn geta verið ánægðir með að fá stig og Fylkismenn geta verið virkilega ánægðir með frammistöðuna en svekktir með niðurstöðuna.
Bestu leikmenn
1. Guy Smit
Kom einfaldlega í veg fyrir sigur Fylkis í kvöld. Varði nokkrum sinnum stórkostlega. Stig unnið hjá þeim hollenska.
2. Ásgeir Eyþórsson
Ásgeir heillaði mig í dag, virkilega sannfærandi í sínum aðgerðum og var mikið í kringum Sævar Atla sem fékk úr mjög litlu að moða. Seðlabankastjórinn flottur.
Atvikið
Varslan hjá Guy Smit frá Guðmundi Steini og svo rauða spjaldið í lokin.
Hvað þýða úrslitin?
Stig á lið, annað stig Leiknis á útivelli. Ekki úrslitin sem Fylkismenn vildu en frammistaðan hún sýnir að liðið ætti ekki að vera í veseni að slíta sig frá fallbaráttunni.
Vondur dagur
Færanýting Fylkis. Guðmundur Steinn fékk færi til að skora allavega tvö mörk og Arnór Borg fékk svo dauðafæri en setti boltann í hliðarnet. Þetta var líka mjög mikið næstum því leikur hjá Degi Dan en hlutirnir duttu ekki alveg með honum við vítateig Leiknis.
Dómarinn - 5,5
Ég hallast að því að Orri Sveinn hefði átt að fá víti í fyrri hálfleik og að Daði Ólafsson átti að fá rautt spjald.
Ég get samt skilið rökin fyrir gulu á Daða og að sleppa því að dæma vítið. Annars fannst mér Egill vera aðeins grimmur við Guðmund Stein í leiknum, einu sinni aukaspyrna sem virkaði ekki eins og neitt og svo grimmt gult spjald.



