Leik lokið!
Breiðablik mætir Gintra frá Litháen eða Flora Tallinn frá Eistlandi um sæti í 2. umferð Meistaradeildar kvenna en sá leikur verður á laugardaginn.
93. mín
MAAAARK!
Selma Sól Magnúsdóttir
Flott skot frá Selmu fyrir utan teig og Óluva nær ekki að verja þó hún hafi verið í boltanum.90. mín
3 mínútur í uppbótartíma.
88. mín
Vigdís Lilja með skot naumlega framhjá.
86. mín
Heiðdís Lillýardóttir með hörkuskot í þverslána og í bakið á markverðinum en inn fer boltinn ekki!
85. mín
Breiðabliksliðið fengið nokkrar hornspyrnur hér með stuttu millibili.
73. mín
InnEydvör Klakstein
ÚtTóra Mohr
71. mín
Hildur Antonsdóttir með skot eftir hornspyrnu en hitti boltann illa. Beint á markvörðinn.
68. mín
Heiðdís í dauðafæri en hitti boltann afskaplega illa.
64. mín
InnVigdís Edda Friðriksdóttir
ÚtTiffany Janea Mc Carty
64. mín
InnVigdís Lilja Kristjánsdóttir
ÚtÁslaug Munda Gunnlaugsdóttir
59. mín
Það eru tvíburasystur að spila fyrir KÍ. Rannvá Andreasen og Ragna Patawary. Héldu upp á 40 ára afmæli á síðasta ári. Þá er Jórun Patawary dóttir Rögnu einnig að spila. Fjölskyldufestival.

Það eru tvíburasystur að spila fyrir KÍ. Rannvá Andreasen og Ragna Patawary. Héldu upp á 40 ára afmæli á síðasta ári. Þá er Jórun Patawary dóttir Rögnu einnig að spila. Fjölskyldufestival.
58. mín
Mark úr víti!
Agla María Albertsdóttir
Breiðablik fékk víti og Agla María skoraði af miklu öryggi. Hún sótti vítið og skoraði úr spyrnunnin sjálf.57. mín
Birta með sláarskot! Þarna var sjötta markið nálægt því að koma.
54. mín
Jórun Patawary fékk boltann í höfuðið og þarf aðhlynningu. Leikurinn er því stopp.
52. mín
Tiffany kemst framhjá markverði KÍ en skýtur í hliðarnetið.
48. mín
Breiðablik fær aukaspyrnu. Boltanum rennt á Selmu Sól sem á marktilraun framhjá.
47. mín
KÍ á sína fyrstu marktilraun í leiknum! Stórtíðindi. Rannvá Andreasen með skot sem er varið.
46. mín
InnMaria Biskopstö
ÚtMalena Olsen
46. mín
InnRannvá Andreasen
ÚtMalena Josephsen
46. mín
InnHildur Antonsdóttir
ÚtKaritas Tómasdóttir
46. mín
InnBirta Georgsdóttir
ÚtÁsta Eir Árnadóttir
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
Sigurliðið, sem verður auðvitað Breiðablik, mætir Gintra frá Litháen eða Flora Tallinn frá Eistlandi um sæti í 2. umferð keppninnar. Sá leikur verður á laugardaginn.
Sigurliðið, sem verður auðvitað Breiðablik, mætir Gintra frá Litháen eða Flora Tallinn frá Eistlandi um sæti í 2. umferð keppninnar. Sá leikur verður á laugardaginn.
45. mín
Hálfleikur
Rosalegir yfirburðir Breiðabliks. Um leið og fyrsta markið kom þá opnuðust allar flóðgáttir.
45. mín
MAAAARK!
Karitas Tómasdóttir
Þetta er að breytast i handboltaleik! Misskilningur í vörn KÍ og boltinn dettur fyrir Karitas sem skorar í tómt markið.45. mín
MAAAARK!
Agla María Albertsdóttir
Fallegt mark! Leikur á varnarmann og setur boltann svo alveg út við stöngina.44. mín
Hummeland hársbreidd frá því að skora sjálfsmark en bjargar sjálf á síðustu stundu á línu. Svo á Selma Sól skot sem Óluva ver.
40. mín
Chloé með skot yfir. Einstefnan heldur áfram og þetta er algjör gönguferð í garðinum fyrir lið Breiðabliks.
39. mín
InnTaylor Marie Ziemer
ÚtKristín Dís Árnadóttir
Kristín fer af velli vegna meiðsla.
36. mín
MAAAARK!
Tiffany Janea Mc Carty (stoðsending: Karitas Tómasdóttir)
Tiffany skorar af stuttu færi eftir að Karitas skallaði boltann til hennar.34. mín
MAAAARK!
Karitas Tómasdóttir (stoðsending: Ásta Eir Árnadóttir)
Fyrirgjöf sem Karitas skallar í netið.33. mín
Dauðafæri. Ásta skallar framhjá.
31. mín
Gríðarlega mikill gæðamunur á þessum liðum. KÍ mætti til leiks með 5-3-2 leikkerfi og pakkaði í vörn en nú þarf liðið að breyta leikskipulagi sínu. Það gæti opnað flóðgáttir fyrir Blikaliðið.
28. mín
Ekki mjög fast skot en í hornið. Óluva Joensen átti að gera betur í marki KÍ.
MAAAARK!
Selma Sól Magnúsdóttir
ÞAÐ HLAUT AÐ KOMA AÐ ÞVÍ! Yfirburðir Breiðabliks í þessum leik og þarna kom loksins markið. Selma skorar með skoti fyrir utan teig.Ekki mjög fast skot en í hornið. Óluva Joensen átti að gera betur í marki KÍ.
24. mín
Áslaug Munda með flott tilþrif í teignum og á skot naumlega yfir.
22. mín
Hættuleg fyrirgjöf og Tiffany kastar sér á boltann en hann endar í fanginu á Óluvu Joensen í marki KÍ. Færeyska liðið hefur ekki enn átt marktilraun og í raun ekki átt alvöru sókn ennþá.
17. mín
Agla María með misheppnaða skottilraun himinhátt yfir. Leikurinn fer einvörðungu fram á vallarhelmingi KÍ sem pakkar í vörn.
11. mín
Agla María kemur boltanum í netið en búið að flagga rangstöðu. Þetta telur ekki.
10. mín
Selma Sól með skot eftir hornspyrnu en beint í fangið á markverði KÍ.
Sturluð staðreynd. Það eru mæðgur í liði Klaksvíkur. Jórun Patawary er dóttir Rögnu Patawary en þær eru báðar í byrjunarliðinu.
Sturluð staðreynd. Það eru mæðgur í liði Klaksvíkur. Jórun Patawary er dóttir Rögnu Patawary en þær eru báðar í byrjunarliðinu.
8. mín
Einstefna hjá Breiðabliki í upphafi leiks. Ásta Eir Árnadóttir átti skottilraun en framhjá markinu.
2. mín
Stórsókn hjá Breiðabliki strax í byrjun og Klaksvík í algjörri nauðvörn. Agla María átti skot í varnarmann og mikill darraðadans stiginn í teignum.
1. mín
Leikur hafinn
Það er búið að flauta til leiks. Breiðablik sparkaði leiknum af stað.
Dómari er Emanuela Rusta frá Albaníu. Annar aðstoðardómarinn er einnig frá Albaníu en hinn frá Noregi. Fjórði dómarinn kemur einnig frá Noregi. Alþjóðlegt samstarf.
Dómari er Emanuela Rusta frá Albaníu. Annar aðstoðardómarinn er einnig frá Albaníu en hinn frá Noregi. Fjórði dómarinn kemur einnig frá Noregi. Alþjóðlegt samstarf.
Fyrir leik
Æfðu á ómerkilegu túni
Vegna votviðris þá var keppnisvöllurinn í Litháen hvíldur í gær og lið Breiðabliks æfði ekki á honum. Liðið æfði a túni rétt hjá hótelinu eins og kemur fram í viðtali sem Bjarni Helgason tók við Ástu Eir Árnadóttur fyrir mbl.is.
"Við æfðum þess í stað á einhverju heldur ómerkilegu æfingasvæði eða túni, rétt hjá hótelinu, en það voru tvö mörk á staðnum og þetta reddaðist allavega," sagði Ásta.

KÍ Klaksvík er með besta lið í sögu færeyska kvennaboltans. Liðið hefur orðið meistari síðustu tvö tímabil, EBS/Skála varð meistari 2017 og 2018 en þar á undan hafði KÍ unnið titilinn sautján ár í röð!

Leiknum er textalýst í gegnum sjónvarpsútsendinguna á Stöð 2 Sport þar sem leikurinn er sýndur í beinni
Fyrir leik
Breiðablik tapaði raunverulegum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn gegn Val um helgina og beinir nú allri sinni orku að öðrum markmiðum.
Breiðablik á eftir að spila úrslitaleik í Mjólkurbikarnum við Þrótt R. eftir að hafa slegið Val út í undanúrslitum. Þar að auki eru Blikastúlkur í forkeppni Meistaradeildarinnar þar sem þær mæta til leiks gegn frænkum sínum í KÍ frá Klaksvík innan skamms.
"Auðvitað er svekkelsi hjá öllum í kvöld en svo vöknum við í fyrramálið og förum að einbeita okkur að ferðalaginu til Litháen," sagði Vilhjálmur Kári Haraldsson, þjálfari Breiðabliks, eftir tapið gegn Val í deildinni.
"Það eru tveir leikir og þetta er virkilega spennandi verkefni. Við erum að mæta yfirburðaliðum í sínum deildum en ég held að við eigum möguleika á móti þeim. Við þurfum bara að spila góða leiki."
Karitas Tómasdóttir, leikmaður Blika, tók í svipaða strengi.
"Nú þurfum við bara að horfa á framhaldið, Meistaradeildina og bikarúrslitin. Það er spennandi að fara í svona verkefni og vonandi gerum við vel þar. Við förum og gerum okkar besta og vonandi uppskerum við góðu."

Breiðablik mætir KÍ Klaksvík frá Færeyjum í 1. umferð Meistaradeildar kvenna núna klukkan 9 en leikið er á Siaulai-vellinum í Litháen klukkan 12 að hádegi á staðartíma.
Sigurliðið mætir Gintra frá Litháen eða Flora Tallinn frá Eistlandi um sæti í 2. umferð keppninnar.
Vilhjálmur Kári Haraldsson, þjálfari Breiðabliks, gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu frá 0-1 tapi gegn Val í mikikvægum toppslag í Pepsi Max-deildinni á föstudag.
Tiffany Janea Mc Carty og Chloé Nicole Vande Velde koma inn í byrjunarliðið. Taylor Marie Ziemer og Hildur Antonsdóttir setjar á bekkinn.
Bjarni