Fotbolti.net
Helga Katrín Jónsdóttir
Helga Katrín Jónsdóttir
Pepsi-Max deild kvenna
Würth völlurinn
Fínt veður, logn og teppið í góðu standi
Fylkir
Fylkir
3 - 4
Selfoss
Selfoss
0 - 15' Brenna Lovera0 - 28' Brenna LoveraEva Rut Ásþórsdóttir 17'1 - 21 - 345' Magdalena Anna Reimus Þórhildur Þórhallsdóttir 53'2 - 32 - 462' Brenna LoveraHalldór Steinsson 78'Sara Dögg Ásþórsdóttir 87'3 - 4
Dómari: Birgir Þór Þrastarson
Áhorfendur: 179
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Brenna gerði gæfumuninn í markaleik í Lautinni

Hvað réði úrslitum?

Selfoss byrjaði leikinn frábærlega og var komið í 0-2 eftir átta mínútur. Þá vaknaði Fylkir til lífsins og spiluðu þær vel og hefðu átt skilið að jafna en í staðin komust Selfyssingar aftur tveimur mörkum yfir undir lok hálfleiksins. Fylkir minnkaði aftur muninn í seinni og voru fínar í byrjun hálfleiksins en eftir að Selfyssingar skoruðu fjórða markið hallaði undan fæti og Selfyssingar stjórnuðu ferðinni til leiksloka. Fylkir náði þó að minnka muninn aftur undir lokin en það dugði ekki til.

Bestu leikmenn

1. Brenna Lovera

Alvöru framherji með svakalegan skrokk sem hún kann að nota. Hún var komin með tvö mörk eftir 8 mínútur og fullkomnaði svo þrennuna í seinni hálfleik.

2. Caity Heap

Frábær í dag og ógnaði mikið. Átti þrjár stoðsendingar og var frábær fram á við með Brenna Lovera.

Atvikið

Gæti nefnt nokkra hluti hér en ég ætla að velja sláarskotin tvö hjá Helenu Ósk. Ef og hefði og allt það en þau hefðu breytt leiknum ef þau hefðu farið inn.

Hvað þýða úrslitin?

Þetta lítur ekkert alltof vel út fyrir Fylki en liðið er í 9. sæti með 12 stig, jafnmörg og Keflavík en lakari markatölu. Selfoss er í fínum málum í 4. sæti deildarinnar með 22 stig, jafnmörg og Þróttur en lakari markatölu.

Vondur dagur

Enginn sem á þessa tilnefningu skilið í dag.

Dómarinn - 8,0

Fínasti leikur hjá tríóinu, maður getur alltaf sett út á eina og eina ákvörðun en ekkert stórt sem hafði áhrif á gang leiksins.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.