Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Pepsi-Max deild kvenna
HS Orku völlurinn
SA gjóla skýjað og hiti um 13 gráður
Keflavík
Keflavík
1 - 1
Breiðablik
Breiðablik
Kristín Dís Árnadóttir (sjm) 4'1 - 01 - 188' Selma Sól Magnúsdóttir
Dómari: Jóhann Atli Hafliðason

SKÝRSLAN: Breiðablik bjargaði stigi í lokin gegn Keflavík

Hvað réði úrslitum?

Var það sú staðreynd að Breiðablik var fyrirmunað að nýta sín færi eða það að heimakonur í Keflavík hentu sér fyrir allt og alla og börðust eins og ljón? Sennilega bæði í bland og úrslitin eftir því.

Bestu leikmenn

1. Tiffany Sornpao

Það sem þessi stelpa hefur bætt sig í sumar. Flott á milli stanganna framan af en í vandræðum með fyrirgjafir og fótavinnu. Hún hefur heldur betur unnið í því þetta sumarið og drottnaði yfir teignum í leiknum. Missti algjörlega töluna á hversu oft hún greip inn í en heilt yfir frábær leikur hjá markverðinum.

2. Kristrún Ýr Holm

Dugnaður, kraftur og áræðni í varnarleiknum. Þótt hún beri ekki fyrirliðabandið er hún klárlega karakter í það. Rífur sínar stelpur áfram og gengur fram með góðu fordæmi og vinnusemi. Margar fyrirkallaðar samt í liði Keflavíkur en Kristrún fær mitt auka hrós í kvöld.

Atvikið

Jöfnunarmark Blika. Líklegast stóð það tæpt og ekkert ólíklegt að um rangstöðu hafi verið að ræða. Leiknum er þó lokið og þýðir lítið að tuða yfir því.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik situr í 2.sæti og verður þar til mótsloka að öllum líkindum. Stigið er stórt fyrir Keflavík sem situr í 8.sæti deildarinnar stigi á undan liði Fylkis.

Vondur dagur

Sóknarlína Blika á það skuldlaust. Þrátt fyrir talsverða yfirburði úti á velli virtist þeim fyrirmunað að koma tuðrunni í netið. Það skrifast þó að vissu leyti á hetjulegan varnarleik heimakvenna en betur má ef duga skal fyrir annað af betri liðum landsins.

Dómarinn - 6

Heilt yfir ágætur leikur. Spurningamerki við jöfnunarmark Blika að sjálfsögðu en fínt að öðru leyti.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.