Fotbolti.net
Þorgeir Leó Gunnarsson
Þorgeir Leó Gunnarsson
Lengjudeild kvenna
Fagverksvöllurinn Varmá
Afturelding
Afturelding
0 - 3
KR
KR
0 - 131' Unnur Elva Traustadóttir0 - 255' Aideen Hogan Keane0 - 379' Laufey Björnsdóttir (víti)83' Aideen Hogan Keane84' Gísli Þór EinarssonRuth Þórðar Þórðardóttir 85'
Dómari: Reynir Ingi Finnsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: KR nálgast Pepsi Max deildina!

Hvað réði úrslitum?

KR stúlkur sköpuðu sér betri færi í kvöld og voru heilt yfir sterkari í leiknum. Eftir 0-2 var þetta aldrei spurning. Ekki oft sem Afturelding skorar ekki mark svo varnarleikur KR var það sem skóp sigurinn.

Bestu leikmenn

1. Aideen H Keane

Algjörlega frábær í kvöld og var allt í öllu í sóknarleik KR. Því miður fékk hún seinna gula undir lok leiks og verður því í banni í næstu umferð.

2. Rebekka Sverrisdóttir

Fyrirliði KR fór fyrir vörn gestanna í kvöld og gerði það frábærlega, Afturelding fékk ekki nein afgerandi dauðafæri í leiknum og var það Rebekka sem batt saman öfluga vörn KR.

Atvikið

Vítaspyrnan og framkvæmd hennar. Dómurinn virtist vera réttur, klárt brot en spurning hvort það var fyrir utan teig. Aftur á móti var framkvæmdin stórfurðuleg enda virtist Reynir dómari hafa flautað og því var spyrnan tekin. Frábær tvöföld varsla frá Evu Ýr en samkvæmt mínum heimildum var Reynir að flauta á leikmenn sem áttu í deilum fyrir utan teig. Því var spyrnan endurtekin. Stórt atvik en líklega rétt að endurtaka þar sem Reynir var ekki einu sinni að horfa á punktinn þegar fyrsta flautið kom. 0-3 eftir þetta og leikurinn búinn.

Hvað þýða úrslitin?

KR fer upp fyrir Aftureldingu í 2.sæti og stjórna nú sínum örlögum sjálfar. Afturelding þarf að treysta á kraftaverk til að enda í Pepsi Max deildinni á næsta ári.

Vondur dagur

Sóknarleikur Aftureldingar fær þetta. Þær virtust ekki vera í takt og voru í raun ólíkar sjálfum sér á síðasta þriðjung. Þær skora vanalega alltaf nokkur mörk nefnilega.

Dómarinn - 6

Reynir Ingi var heilt yfir fínn í kvöld. Erfiður leikur að dæma og mikill hiti á vellinum. Spurning með seinna gula á Jaideen og svo þetta víta bíó sem hefur áhrif á einkunn hans í kvöld. Líklegast rétt að endurtaka eins og kom fram í ,,atvikinu" en þetta leit illa út fyrir hann.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.