Fotbolti.net
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Lengjudeild karla
Domusnovavöllurinn
Kórdrengir
Kórdrengir
4 - 0
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
Leonard Sigurðsson 7'1 - 0Gunnlaugur Fannar Guðmundsson 15'2 - 0Magnús Andri Ólafsson 83'3 - 0Axel Freyr Harðarson 92'4 - 0
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Kórdrengir of stór biti fyrir Víkinga frá Ólafsvík

Hvað réði úrslitum?

Yfirburðir Kórdrengja réði þessu. Kórdrengir mættu vel gíraðir til leiks og var liðið komið í 2-0 eftir 15.mínútna leik og þá var þetta strax orðin brekka fyrir Víkinga eftir það stjórnuðu Kórdrengir tempóinu og bættu við tveimur mörkum undir lok leiks.

Bestu leikmenn

1. Daníel Gylfason (Kórdrengir)

Daníel Gylfason var virkilega öflugur í liði Kórdrengi í kvöld. Hljóp mikið og var að ógna mikið á vörn Ólafsvíkur ásamt því kom hann liðsfélugum sínum í góð færi.

2. Axel Freyr Harðarson (Kórdrengir)

Erfitt að velja næsta besta en þetta var góð liðs frammistaða hjá Kórdrengjum í kvöld. Axel Freyr var mikið í boltanum og kom sér í margar góðar stöður. Skoraði fjórða mark Kódrengja undir lokin.

Atvikið

Fyrsta markið sem kveikti í Kórdrengjum - Daníel Gylfason fékk boltann út til vinstri og á fyrirgjöf á hættusvæðið sem Ólsarar skalla beint fyrir fætur Leonards sem náði skoti í fyrsta beint niður í nærhornið. Óverjandi fyrir Marvin Darra og alvöru spyrnutækni hjá Leonard.

Hvað þýða úrslitin?

Kórdrengir halda sínu sæti en liðið situr áfram í þriðja sæti deildarinnar með 37.stig. Víkingar frá Ólafsvík eru áfram á botni deildarinnar en liðið er með aðeins fimm stig.

Vondur dagur

Marvin Darri Steinarsson (Víkingur Ólafsvík) - Fékk á sig fjögur í dag og gerði hræðileg mistök í öðru marki Kórdengja þegar hann átti að grípa aukaspyrnu Loic Mbang Ondo en missti boltann fyrir fætur Gunnlaugs Fannars sem kláraði í netið.

Dómarinn - 10

Jóhann Ingi og hans menn voru virkilega góðir í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.