Fotbolti.net
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeild karla
SaltPay-völlurinn
Þór
Þór
0 - 1
ÍBV
ÍBV
0 - 161' Breki Ómarsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Eyjamenn mættir úr sóttkví og tóku þrjú stig úr Þorpinu

Hvað réði úrslitum?

Breki Ómarsson var mjög líflegur í leiknum í dag. Daði sá vel við honum nokkrum sinnum í fyrri hálfleik en honum tókst loksins að brjóta ísinn eftir klukkutíma leik.

Bestu leikmenn

1. Breki Ómarsson

Skoraði sigur markið og hefði alveg geta skorað fleiri og lagt einhver upp. Hann var mjög líflegur í leiknum.

2. Felix Örn Friðriksson

Flottur í vinstri bakverðinum. Færðist ofar í síðari hálfleik þegar Eyjamenn fóru í þriggja manna vörn og leysti það mjög vel. Þórsarar voru ekkert að fara auðveldlega í framhjá honum.

Atvikið

Verðum bara að setja það á mark leiksins. Enn og aftur, Breki frábær í dag og átti þetta mark skilið. Þór átti góðan kafla rétt áður en Breki skoraði. Mörk breyta leikjum sagði einhver.

Hvað þýða úrslitin?

Gríðarlega sterk úrslit fyrir ÍBV í baráttunni um að komast upp í Pepsi Max deildina. Mjög góður sigur í fyrsta leik eftir 10 daga sóttkví. Eyjamenn með fjögurra stiga forskot á Kórdrengi sem eru í 3. sæti og ÍBV á leik til góða. Þór er í 10. sæti 9 stigum á undan Þrótti og 9 stig í pottinum en Þór með mun betri markatölu. Enn fræðilegur möguleiki á að falla.

Vondur dagur

Það gengur hvorki né rekur hjá Þórsliðinu að skora þessa dagana, eða vikurnar. Sjötti leikurinn í röð sem þeir skora ekki!

Dómarinn - 8

Flottur leikur hjá Helga Mikael. Ekkert um vafaatriði og hann hafði bara góða stjórn á þessu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.