Fotbolti.net
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lengjudeild karla
Extra völlurinn
Veisluaðstæður frá mér séð, mjög blautur völlur.
Fjölnir
Fjölnir
2 - 1
ÍBV
ÍBV
0 - 12' Jose Enrique Seoane VergaraMichael Bakare 60'1 - 1Michael Bakare 85'2 - 1
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: Sanngjörn endurkoma Fjölnis gegn leiðinlegum Eyjamönnum

Hvað réði úrslitum?

Fjölnir var talsvert betra liðið í dag og átti sigurinn skilinn. Í stöðunni 1-1 var bara eitt lið sem var líklegt til að vinna leikinn og Fjölnir kláraði það verkefni. Gestirnir virkuðu eilítið þreyttir og lítið gekk upp í þeirra spili. Leikstíll ÍBV í þessum leik var ekki heillandi, gestirnir lágu til baka og var fullmikill kick and hope fílingur í þessu.

Bestu leikmenn

1. Michael Bakare

Lunkinn við að koma sér í góðar stöður og kann þá list að vera á réttum stað á réttum tíma. Tvisvar sinnum fyrstur á boltann í teignum og skorar tvö mörk.

2. Jóhann Árni Gunnarsson

Virkilega góður í dag, dugnaður sem maður hefur ekki alltaf séð og gæði í ákvörðunartökum. Jóhann á ekki að spila í næstefstu deild á næsta ári.

Atvikið

Sigurmarkið, glæsilegir taktar og svo heppni í því að skottilraunin endi hjá Bakare í teignum og hann svo klárar.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnir er áfram í smá séns á sæti í efstu deild, 2% líkur kannski?
ÍBV er einum sigri frá því að tryggja sér sæti í efstu deild.

Vondur dagur

Breki Ómarsson, Telmo og Felix heilluðu ekki mikið. Þá var Gaui Lýðs svo sýnilega pirraður að það hafði áhrif á spilamennskuna í kringum hann.

Dómarinn - 7

Var mjög flottur framan af leik en dalaði í restina fannst mér.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.