Fotbolti.net
Sigríður Dröfn Auðunsdóttir
Lengjudeild kvenna
Vivaldivöllurinn
Grótta
Grótta
0 - 3
KR
KR
0 - 119' Kathleen Rebecca Pingel0 - 244' Kathleen Rebecca Pingel0 - 377' Aideen Hogan Keane
Dómari: Przemyslaw Janik
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: KR sigurvegari Lengjudeildar kvenna 2021 en Grótta fellur

Hvað réði úrslitum?

Það eru bara meiri gæði í KR liðinu. Baráttan og viljinn var til staðar hjá Gróttu en það dugði ekki til.

Bestu leikmenn

1. Aideen Hogan Keane

Góður leikur hjá Aideen í dag. Olli vörn Gróttu miklum vandæðum með hraða sínum. Gerði út um leikinn þegar hún kom KR í 0-3.

2. Kathleen Rebecca Pingel

Flottur leikur hjá Kathleen. Skoraði tvö mörk og var lykilmaður í sóknaruppbyggingu KR í fyrri hálfleik. Var tekin útaf í hálfleik.

Atvikið

Það voru miklar tilfinningar á Vivaldivellinum þegar Przemyslaw Janik flautaði til leiksloka. Deildarmeistaratitill KR-inga í höfn og sæti í Pepsi Max deildinni á næsta tímabili, en Gróttukonur fúlar enda fallnar niður í 2. deild.

Hvað þýða úrslitin?

Afdrifarík úrslit. KR vinnur deildina og spilar í Pepsi Max á næsta ári.
Grótta endar mótið í 9. sæti og eru þar með fallnar niður í 2. deild.

Vondur dagur

Það var engin sem átti sérstaklega vondan leik í kvöld. Aftur á móti er þetta vondur dagur fyrir Gróttu sem enda mótið á falli en þær voru einungis í fallsæti síðustu 20 mínútur mótsins.

Dómarinn - 7

Fínn leikur en tók nokkrar furðulegar ákvarðanir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.