Fotbolti.net
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Lengjudeild kvenna
Fagverksvöllurinn Varmá
Topp aðstæður
Afturelding
Afturelding
4 - 0
FH
FH
Sigrún Gunndís Harðardóttir 69'1 - 0Ragna Guðrún Guðmundsdóttir 74'2 - 0Ragna Guðrún Guðmundsdóttir 78'3 - 0Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir 84'4 - 0
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Áhorfendur: ca 600
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Afturelding spilar í Pepsi-Max deildinni 2022

Hvað réði úrslitum?

Úrslitin réðust í seinni hálfleiknum. Fyrri hálfleikurinn var heldur rólegri og spennustigið hátt, eðlilega. FH voru í við meira með boltann og voru kannski aðeins líklegri til að skora. Það leit á tímabili út fyrir að Afturelding ætlaði bara að verja jafnteflið, en eftir að þær náðu inn fyrsta markinu þá þurftu FH að taka sénsa. Við það galopnaðist allt fyrir Aftureldingu sem gengu á lagið, gerðu út um leikinn og tryggðu sér sæti í Pepsi-Max deildinni. Stuðningurinn sem Afturelding fékk í kvöld hjálpaði alveg pottþétt til.

Bestu leikmenn

1. Ragna Guðrún Guðmundsdóttir (Afturelding)

Var frábær í kvöld. Skoraði tvö mörk sem gerðu út um leikinn og átti hornspyrnuna sem skilaði fyrsta markinu. Með gríðarlega gott vald á boltanum og góðar spyrnur.

2. Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir (Afturelding)

Erfitt að taka bara tvær úr frábæru liði Aftureldingar í kvöld. Guðrún var sífellt ógnandi og alltaf hættuleg þegar hún var með boltann. Gerir frábærlega í marki tvö þegar hún vinnur boltann og á stoðsendingu á Rögnu Guðrúnu. Skorar svo fjórða markið og kórónar þetta draumatímabil hjá henni. Það væri hægt að nefna restina af Aftureldingarliðinu, sérstaklega í seinni hálfleik. Eva Ýr var örugg í öllum sínum aðgerðum í markinu, Taylor frábær í vörninni, Sesselja Líf og Sigrún Gunndís góðar á miðjunni.

Atvikið

Verð að segja lokaflautið! Fagnaðarlætin þegar dómarinn flautaði leikinn af og flugeldasýning hófst í kjölfarið! Ógleymanleg stund í Mosó, til hamingju Afturelding!

Hvað þýða úrslitin?

Afturelding spilar í Pepsi-Max deildinni 2022, endar í 2. sæti í deildinni. FH situr eftir með sárt ennið og leikur aftur í Lengjudeildinni að ári.

Vondur dagur

Ekki góður dagur FH liðið sem ætlaði sér upp í Pepsi-Max deildina. Svekkjandi endir á góðu tímabili hjá þeim, en úrslitin úr síðustu 3 leikjum gerði út um þeirra plön.

Dómarinn - 8

Flott frammistaða hjá Einari Inga. Fór lítið fyrir honum sem er alltaf gott. Lét leikinn fljóta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.