Fotbolti.net
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Mjólkurbikar karla
Meistaravellir
7° Hvasst en hiti í stuðningsmönnum
Vestri
Vestri
0 - 3
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 126' Kristall Máni Ingason0 - 270' Kristall Máni Ingason0 - 382' Kristall Máni Ingason
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Kristall Máni afgreiddi Vestra menn með þrennu

Hvað réði úrslitum?

Víkingar voru einfaldlega með meiri gæði fram á við og komust í betri færi sem þeir kláruðu.

Bestu leikmenn

1. Kristall Máni Ingason (Víkingur)

Skorar þrennu og var potturinn og pannan í sóknarleik Víkinga.

2. Pablo Punyed (Víkingur)

Pablo er alltaf eins og stríðsmaður á miðjunni og var það aftur í dag. Það komst enginn framhjá honum og svo var hann aðal tengill varnar og sóknar í dag.

Atvikið

Þegar Pétur Bjarnason fellur við í teig Víkinga og þeir fara svo upp og skora sekúndum seinna. Ég er handviss um að þetta hafi verið vítaspyrna án þess að hafa séð þetta aftur og hefði verið dæmt svo þá hefði þetta getað orðið allt öðruvísi leikur.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur fer í úrslitin og mæta ÍA þar þann 16. september Vestri klárar tímabilið sitt með sóma í undanúrslitum bikarsins.

Vondur dagur

Brenton Muhammad markvörður Vestra var í rosalegu veseni með rokið í Vestubænum og tapaði boltanum alltof oft fyrir sína menn með sínum útspörkum. Svo átti hann líkast til að gera betur í marki númer 2 þar sem hann er með hendina í boltanum en hann lekur í gegn og þá varð út um vonir Vestra.

Dómarinn - 3

Ef horft er framhjá þessum tveimur vítaspyrnu atvikum sem Vestri átti mögulega að fá hafði Egill fín tök á leiknum en þessi atvik eru bara það stór að hann fær falleinkun frá mér.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.