Fyrir leik
Góðan dag lesendur góðir Fótbolta.net. Hér fer fram bein textalýsing frá leik ÍBV og Keflavíkur í 16.umferð Pepsi deildar karla. Leikurinn hefst kl 18:00
Fyrir leik
Keflavík eru án Jóhanns Birnis sem er að taka út leikbann. Þeir hafa einnig misst Arnór Ingva sem að er farinn á lán til Noregs. Hjá Eyjamönnum eru enginn bönn.
ÍBV stillir upp sama liði og í síðustu tveimur leikjum. Hjá Keflavík eru 2 breytingar, Jóhann Birnir og Arnór Ingvi fara út fyrir Bojan Stefán og Einar Orra.
Fyrir leik
Gaman að vitna í það að Zoran Daníel Ljubicic þjálfari Keflvíkinga spilaði árið 1994 fyrir ÍBV. Var þar eitt tímabil.
Fyrir leik
Leikmenn liðanna að ganga inná völlinn. Þar með fer allt að verða klárt í að leikurinn hefjist.
1. mín
Leikurinn er hafinn og það eru Keflvíkinga sem að byrja með vindinn í bakið og sækja í átt að Herjólfsdal.
4. mín
Frans Elvarsson brýtur á Brynjari Gauta en sleppur við spjald. Verður að teljast heppinn með það.
9. mín
Guðmundur Þórarinsson tók hornspyrnu og þar barst boltinn út frá Rasmus og þar náði Tonny skoti sem fór framhjá.
11. mín
MAAAARK!
Guðmundur Steinarsson
Jóhann Ragnar tók langt innkast og þar var að sjálfsögðu Guðmundur Steinarsson mættur og setti boltann yfir Abel í marki ÍBV. Mjög vel gert hjá Guðmundi !.12. mín
InnÁrni Freyr Ásgeirsson
ÚtÓmar Jóhannsson
Ómar Jóhannsson er farinn meiddur af velli. Ekki er vitað hvað er að angra hann.
15. mín
Garner var með boltann nálægt hornfána og kom með góða fyrirgjöfn sem fór í gegnum vítateiginn án þessd að neinn Eyjamaður kom á fjarstöngina til að pota boltanum í markið.
17. mín
Baldock með frábæra skiptingu yfir á Víði sem átti misheppnaða sendingu út úr teignum en þar gaf Keflvíkingurinn á Olsen sem var með lélega móttöku og því varð ekkert meira úr þessu færi hjá ÍBV.
20. mín
Eyjamenn eru að taka völdinn hægt og rólega. George Baldock náði skoti en varnarmaður Keflvíkinga komst fyrir en svo náði Víðir Þorvarðarson skoti en Keflvíkingar komust einnig fyrir það.
21. mín
Gult spjald
Magnús Þór Magnússon (f)
Fyrir brot á George Baldock.22. mín
Gult spjald
Frans Elvarsson
Fyrir brot á Tonny Mawejje. Guðmundur Þórarinsson tók aukaspyrnuna sem ekkert varð úr.36. mín
Garner með fyrirgjöf sem fór á hausinn á Rasmus og þar fór boltinn út að endalínu þar sem Olsen kom með sendingu fyrir markið en enginn eyjamaður var mættur til að setja boltann í markið. Svo fengu Eyjamenn horn og þar fór boltinn á hausinn á Brynjar Gauta sem setti hann á markið en Árni Freyr varði vel.
40. mín
Eyjamenn voru margir frammi og Keflavík náðu skyndisókn á þá þar sem Magnús Sverrir var kominn nánast einn í gegn en Þórarinn Ingi var fljótur til baka og náði að bjarga.
43. mín
Olsen með frábæra syrpu. Lék á nokkra leikmenn Keflavíkur og átti svo skot sem fór framhjá markinu.
45. mín
Tonny skaut í Erlend dómara og Frans Elvarsson var kominn í gegn en virtist vera lengi að átta sig á því og þar með náði Abel boltanum.
45. mín
Kominn hálfleikur á Hásteinsvelli þar sem Keflavík leiðir 0-1. Verðum hér með seinni hálfleikinn innan skamms.
45. mín
Veðrið hér í eyjum orðið aðeins verra en áðan.. Rigning inn á milli og hundleiðinlegur vindur í átt að Herjólfsdal... Basic
46. mín
Seinni hálfleikur hér á Hásteinsvelli er byrjaður!
46. mín
Eyjamenn byrja að krafti og reyna að ná skoti á markið, Keflvíkingar eru á tánum og fórna sér fyrir hvaða bolta sem er!
50. mín
Guðmundur Þórarinsson með skot 25 metrum frá marki, smellur beint í slánna.
52. mín
Eyjamenn sterkari aðilinn í leiknum þessa stundina, með vindi og Keflvíkingar eru komnir vel aftur í þessum leik!
55. mín
Gult spjald
Einar Orri Einarsson
Fyrir brot á Matt Garner, sennilega 4 brot hans í leiknum. Grjótharður.57. mín
Gult spjald
Tonny Mawejje
Fyrir brot á Einari. Þessi leikur er orðinn harðari.59. mín
InnAndri Ólafsson
ÚtVíðir Þorvarðarson
61. mín
Þórarinn Ingi með skot langt frá marki sem er fast og Árni Freyr markvörður Keflvíkinga þarf að hafa sig allan við að verja þetta, frábær varsla.
63. mín
Allt orðið vitlaust á vellinum, George Baldock virtist fá olnbogann frá Einari beint í andlitið og þarfnast aðhlynningar.
66. mín
InnSigurbergur Elísson
ÚtMagnús Sverrir Þorsteinsson
66. mín
InnHörður Sveinsson
ÚtBojan Stefán Ljubicic
67. mín
George Baldock er kominn inn á aftur í númeralausri treyju þar sem hann þurfti að skipta vegna blóðsins sem kom við höggið, vel teipaður á hausnum.
71. mín
Gult spjald
Christian Olsen
Fær gult spjald fyrir að toga í treyjuna hjá Hilmari Geir.73. mín
InnIan Jeffs
ÚtBrynjar Gauti Guðjónsson
76. mín
Lítið að gerast í leiknum þannig séð, boltinn mikið á vallarhelmgini Keflvíkinga þessa stundina og eyjamenn ná ekki að nýta sér það.
79. mín
Jæja, keflvíkingar eru komnir fram á völlin og fá hér hornspyrnu.
Guðmundur Steinarsson tekur hana og ekkert verður úr henni!
80. mín
Rautt spjald
Frans Elvarsson
Fær hér sitt annað gula spjald í leiknum fyrir brot á Tonny Mawejje. ÍBV eru þar með einu fleiri inn á vellinum síðustu 10 mín!87. mín
Gult spjald
Árni Freyr Ásgeirsson
Tekur of mikinn tíma í að sparka út.88. mín
Arnór Eyvar með frábæra sendingu fyrir markið og þar er það Andri Ólafsson sem stekkur manna hæst inn í teig og nær skallanum á markið en Árni Freyr með heimsklassa markvörslu.. frábærlega gert hjá honum.
90. mín
Gult spjald
Þórarinn Ingi Valdimarsson
90. mín
2 mínútur í viðbót hér á Hásteinsvelli og virðast Keflvíkingar ætla sigla þessu heim!
Leik lokið!
Keflvíkingar vinna hér flottan sigur á eyjamönnum, 3 dýrmæt stig sem Árni Freyr Ásgeirsson markvörður Keflvíkinga sá um að halda vil ég meina. Frábær leikur hjá honum!
Vil óska Bjössa Einars innilega til hamingju með sigurinn.
Takk fyrir mig.
-Jóhann Norðfjörð



