SKÝRSLAN: Valur Meistari meistaranna
Hvað réði úrslitum?
Það er nú ekki flóknara en það að Valur nýtti sín víti betur heldur en Breiðablik í vítaspyrnukeppninni.
Bestu leikmenn
1. Arna Sif Ásgrímsdóttir
Var örugg í öllum sínum aðgerðum í varnarlínu Vals. Gaf engin færi á sér.
2. Telma Ívarsdóttir
Gerði allt rétt í leiknum og varði vítaspyrnu frá Þórdísi Hrönn. Það var þó ekki nóg í dag.
Atvikið
Eftir þungar sóknir Vals undir lok leiks hefðu Blikar getað stolið sigrinum. Fyrirliðinn, Ásta Eir átti stórhættulega fyrirgjöf ætlaða Helenu Ósk sem var alein og fjærstönginni en Helena náði ekki til boltans og það endaði ekki betur en það að Helena endaði á stönginni og þurfti aðhlynningu.
Hvað þýða úrslitin?
Valur er Meistarar meistaranna.
Vondur dagur
Sóknarleikur beggja liða var ekki upp á marga fiska. Helena Ósk sem klúðraði sinni vítaspyrnu í vítaspyrnukeppninni fékk fá tækifæri í leiknum en hefði getað stolið sigrinum undir lokin er hún var hársbreidd frá því að stanga boltann í netið. Hinum megin var Elín Metta, Ída Marín og Ásdís Karen sem áttu að leiða sóknarleik Vals en þær virtust vera reimaðar í krummskóinn í leiknum. Í vítaspyrnukeppninni virtust þær hafa reimt á sig markaskónna því þær skoruðu allar úr sinni vítaspyrnu.
Dómarinn - 8
Þægilegur dagur á skrifstofunni.



