Fotbolti.net
Besta deildin
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Besta-deild karla
Víkingsvöllur
Frábærar!
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 1
FH
FH
0 - 11' Steven LennonAri Sigurpálsson 28'1 - 1Helgi Guðjónsson 61'2 - 1
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Víkingar voru slegnir niður en stóðu upp og komu til baka

Hvað réði úrslitum?

Víkingar sköpuðu sér heilt yfir betri færi og betri stöður í leiknum fannst mér. Það var aragrúi af hornspyrnum í leiknum, svipað margar á bæði lið og liðið sem nýtti eina slíka vann leikinn.

Bestu leikmenn

1. Guðmundur Kristjánsson (FH)

Guðmundur var frábær í dag og kom margoft í veg fyrir að Víkingar kæmust í gegn. Mikill hraði, styrkur og leiklestur hjá miðverðinum.

2. Ari Sigurpálsson (Víkingur)

Skoraði jöfnunarmarkið, kláraði það færi mjög vel og það er varla hægt að vera með hærra í 'expected assist' og hann var með þegar hann fann Kristal í skyndisókninni í fyrri hálfleik. Halldór Smári gerir einnig sterkt tilkall.

Atvikið

Sigurmarkið og varsla Ingvars gegn Lennon. Kristall bætti upp fyrir ótrúlegt klúður í fyrri hálfleik með því að leggja upp sigurmarkið á Helga. Stundarfjórðungi síðar fékk Lennon svo dauðafæri inn á vítateig Víkings en Ingvar náði að verja með líkamanum og kom í veg fyrir mark.

Hvað þýða úrslitin?

Íslands- og bikarmeistararnir byrja á sigri og hefna á sama tíma fyrir tapið í úrslitaleik Lengjubikarsins í síðasta mánuði.

Vondur dagur

Finnur Orri gerir tilkall vegna jöfnunarmarksins en hann sendi boltann akkúrat þar sem Baldur Logi var sekúndu áður og fimm sekúndum seinna var Víkingur búinn að jafna.

Dómarinn - 8.5

Öflug frammistaða hjá Vilhjálmi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.