SKÝRSLAN: FH með endurkomusigur á nýliðum Fram
Hvað réði úrslitum?
FH voru í miklu basli í varnarlega sérstaklega í fyrri hálfleik og fengu á sig tvö klaufaleg mörk en seinni hálfeikurinn hjá heimamönnum réði þessu og má segja að varamennirnir hafi silgt þessu heim fyrir FH en þeir Máni Austmann, Vuk Oskar , Oliver Heiðarsson og Baldur Logi komu allir frábærlega inn og Máni og Vuk skoruðu báðir eftir að þeir komu inná.
Bestu leikmenn
1. Matthías Vilhjálmsson (FH)
Matti var frábær á vellinum í kvöld og skapaðist alltaf mikil hætta þegar hann komst í boltann. Matti skoraði og lagði upp í kvöld.
2. Máni Austmann Hilmarsson (FH)
Máni byrjaði á bekknum í kvöld en kom inn á í hálfleik og kom inn með gríðarlegan kraft og gerir stórt tilkall í byrjunarlið FH í næstu umferð.
Atvikið
Þriðja mark FH - Kristinn Freyr fékk boltann við teiginn hægra megin og lyftir boltanum fyrir á Matthías Vilhjálmsson sem tók hjólhestaspyrnu í varnarmann Fram og boltinn hrökk á Mána Austmann sem hamraði boltann í netið.
Hvað þýða úrslitin?
FH er komið á blað í Bestu deildinni og fara í Kópavoginn í næstu umferð og mæta Breiðablik. Framarar eru enþá stigalausir og fá Skagamenn í heimsókn í næstu umferð.
Vondur dagur
Finnur Orri Margeirsson var ekki upp á sitt besta í fyrri hálfleik í vörn FH kvöld og var skipt útaf í hálfleik. Hann átti stóran þátt í fyrsta marki Fram í kvöld þegar hann missti boltann undir sig áður en að boltinn hrökk á Albert Hafsteinsson sem skoraði.
Dómarinn - 8
Ívar Orri og hans menn dæmdu þennan leik vel.




