SKÝRSLAN: Fyrsti deildarsigur Blika í Vesturbæ í tíu ár
Hvað réði úrslitum?
Þessi augnabliksgæði í Blikaliðinu, gekk illa framan að skapa sér nokkuð en gæðaleikmenn þurfa ekki nema eitt móment. Það móment fundu Blikar á meðan að KR nýtti ekki sín færi.
Bestu leikmenn
1. Damir Muminovic
Stóð vel varnarlega og stöðvaði mörg upphlaup KR þá sérstaklega í síðari hálfleik. Öruggur á boltann og solid frammistaða. Annars ætti Anton Ari að vera hér en hann hafði það það náðugt í seinni hálfleik að ég var hreinlega búinn að gleyma vörslum hans úr þeim fyrri...... Sorry Siggi Helga og eflaust fleiri.
2. Ísak Snær Þorvaldsson
Ekki í sömu hæðum og gegn Keflavík en heldur alltaf áfram. Svolítið eins og boxari sem stendur alltaf upp sama hvað og heldur áfram. Uppskar stoðsendingu fyrir það. En annars átti Blikaliðið nokkuð jafnan leik. Engin sem skein eitthvað sérlega skært.
Atvikið
Þrefalt dauðafæri KR í fyrri hálfleik. Ótrúlegt að boltinn hafi ekki farið inn en það gerði hann ekki og fyrir það refsuðu Blikar.
Hvað þýða úrslitin?
Blikar með 6 stig á toppi deildarinnar. Gestirnir með 3 ósköp einfalt svona snemma móts.
Vondur dagur
Fremstu þrír hjá KR reyndu mikið en voru ansi mislagðir fætur í dag. Stíga þó vonandi upp og þar að auki er Kjartan Henry laus úr leikbanni svo slagkraftur KR framarlega á vellinum er bara að aukast.
Dómarinn - 7
Jóhann heilt yfir flottur. Hélt sinni línu ágætlega. Auðvitað spurning með brot í aðdraganda marksins en hann hafði sleppt sambærilegum brotum fyrr í leiknum og hví að breyta því í flæðandi leik.



