SKÝRSLAN: Sannfærandi Selfyssingar
Hvað réði úrslitum?
Selfoss var bara betra liðið í kvöld og stýrði leiknum frá fyrstu mínútu. Þær ná að skora tvö mörk á fyrstu 10 mínútum leiksins sem gerði þetta strax erfiðara fyrir Aftureldingu. Það var meiri kraftur í heimakonum á köflum í síðari hálfleik, þær skora mark úr víti en fá svo strax mark í andlitið svo þær ná ekki að koma sér almennilega inn í leikinn. Þær gera svo algjörlega út um leikinn þegar þær bæta fjórða markinu við.
Bestu leikmenn
1. Brenna Lovera (Selfoss)
Markadrottningin byrjar með látum. Gerði varnarmönnum Aftureldingar sífellt erfitt fyrir, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt.
2. Bergrós Ásgeirsdóttir (Selfoss)
Bergrós var mjög kraftmikil á hægri vængnum í kvöld. Átti mikið af hættulegum fyrirgjöfum og var með tvær stoðsendingar í kvöld. Það eru fleiri leikmenn Selfoss sem gera tilkall og erfitt að pikka bara tvær út. Allt liðið spilaði vel.
Atvikið
Þriðja mark Selfoss sem Brenna skoraði, strax í andlitið á Aftureldingu eftir að þær minnkuðu muninn í 1-2 eftir víti. Þegar Afturelding virtist vera að koma sér inn í leikinn var Brenna fljót að koma í veg fyrir það.
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss nær í 3 stig og er í 3. sæti með jafn mörg stig og Keflavík, Breiðablik og Valur. Afturelding þarf að bíða lengur eftir fyrstu stigunum sínum en er í 8. sæti eftir fyrstu umferð.
Vondur dagur
Nýliðarnir taka þetta á sig saman, engin draumabyrjun að fá skell í fyrstu umferð. Stemningin í Mosó er búin að vera geggjuð síðan í fyrra og það var vel mætt í kvöld á fyrsta leik liðsins í efstu deild síðan 2015. Meiðslavandræði sem komu upp korter í mót setti strik í reikninginn.
Dómarinn - 6.5
Ágætis frammistaða hjá Helga. Virtist ekki ætla að dæma víti þegar Þórhildur var toguð niður í teignum en aðstoðardómarinn flaggaði. Annars engin stór vafaatriði.



