SKÝRSLAN: Öruggur sigur Keflavíkur á Meistaravöllum
Hvað réði úrslitum?
Eftir að Keflavík skoraði fyrsta markið þá tóku þær öll völd á vellinum. Keflavík spilaði góðan sóknarleik á meðan KR gekk illa að skapa sér nokkuð fram á við.
Bestu leikmenn
1. Dröfn Einarsdóttir
Tvær stoðsendingar og mark er ansi gott dagsverk. Dröfn var mjög öflug í dag og olli varnarmönnum KR miklum vandræðum hefði hæglega getað lagt upp allavega 4 mörk með eitruðum fyrirgjöfum sínum.
2. Ana Paula Santos Silva
Skoraði þrennu í sínum fyrsta leik í íslenska boltanum og við getum fagnað komu hennar í deildina, gríðarlega góð í fótbolta, tæknileg og var rosalega góð í dag.
Atvikið
Ana Paula Santos Silva skoraði fyrstu tvö mörk leiksins með tveggja mínútna millibili á 34. og 36. mínútu. Við þessi tvö mörk slökknaði algjörlega á liði KR.
Hvað þýða úrslitin?
Keflavík byrjar mótið á þremur stigum og er á toppi deildarinnar eftir fyrstu umferðina. KR-ingar þurfa að bíða eftir lengur eftir fyrstu stigum sumarsins.
Vondur dagur
Það var engin ein sem átti áberandi slæman dag en KR liðið í heild átti frekar vondan dag og þurfa þær að spila betur ætli þær sér að gera eitthvað í sumar.
Dómarinn - 8,5
Guðmundu Páll stóð sig vel á þægilegum degi á skrifstofunni.



