SKÝRSLAN: Stjarnan skoraði fimm gegn KR
Hvað réði úrslitum?
Stjörnukonur voru betra á öllum sviðum leiksins í dag og KR-ingar réðu bara ekkert við hraðan sóknarleik Stjörnukvenna.
Bestu leikmenn
1. Alma Mathiesen
Alma var rosalega góð í kvöld og skilaði tveimur stoðsendingum og marki. Hún var síógnandi á hægri kantinum og lét varnarmenn KR-inga líta illa út.
2. Arna Dís Arnþórsdóttir
Átti mjög góðan leik í hægri bakverðinum, hún og Alma náðu mjög vel saman og sköpuðu mikið í dag. Var einnig örugg varnalega þegar á þurfti og kórónaði góða frammistöðu með glæsilegu marki.
Atvikið
Annað mark leiksins á 9. mínútu, Katrín á þá frábæra bakfallsspyrnu yfir vörn KR á Jasmín sem er komin ein á móti Laufeyju, í markinu, en rennir boltanum á Gyðu sem setur hann í netið. Skemmtilegt liðsmark sem á sama tíma gaf tónin fyrir leikinn, elfdi Stjörnuna á meðan trúin hjá KR-ingum dvínaði.
Hvað þýða úrslitin?
Stjörnukonur vinna sinn fyrsta leik í sumar og eru með 4. stig í 3. sæti eftir 1. umferðina.
KR-ingar eru hins vegar í smá brekku og sitja stigalausar á botni deildarinnar.
KR-ingar eru hins vegar í smá brekku og sitja stigalausar á botni deildarinnar.
Vondur dagur
Vörn KR í heild réð mjög illa við hraðan sóknarleik Stjörnunar en Margaux Marianne Chauve er örugglega sérstaklega svekkt með sína frammistöðu í kvöld í vinstri bakverðinum þar sem Alma og Arna fóru oft illa með hana.
Dómarinn - 8
Frekar þægilegut leikur fyrir Ásmund að dæma engin vafaatriði og hann komst bara vel frá þessu.



