Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
HK
HK
Lengjudeild kvenna
Kórinn
Það er kosý herna inn í Kórnum
4 - 2
Fjölnir
Fjölnir
María Lena Ásgeirsdóttir 8'1 - 01 - 19' Sara Montoro 1 - 256' Sara Montoro María Lena Ásgeirsdóttir 74'2 - 2Isabella Eva Aradóttir 83'3 - 2Arna Sól Sævarsdóttir 92'4 - 2
Dómari: Viktor Steingrímsson
Leik lokið!
Frábær leikur hér í Kórnum þar sem liðin voru bæði mjög jöfn, en HK náði sér í 3 stig hér í lokinn. María Lena var valin maður leiksins og stuðningsmenn sungu afmælisöng fyrir Maríu eftir leikinn. Viðtöl og skýrsla koma seinna í kvöld, takk fyrir mig!
HK
92. mín
MAAAARK!

Arna Sól Sævarsdóttir (stoðsending: María Lena Ásgeirsdóttir)

Sofia ætlar að sparka boltanum úr markteig Fjölnis en boltinn fer í Momolaoluwa í vörninni og hún missir boltann frá sér. María Lena vinnur boltann og sendir boltann inn í teig til Örnu Sól sem stendur alein fyrir framan mark Fjölnis. Arna skallar svo boltanum léttilega inn í mark.
88. mín
Magðalena tekur aukaspyrnu sem fer alla leið framhjá mark Fjölnis.
Fjölnir
85. mín
Gult spjald

Silja Fanney Angantýsdóttir

HK
83. mín
MAAAARK!

Isabella Eva Aradóttir (stoðsending: Magðalena Ólafsdóttir)

HK komnir yfir! Isabella skallar boltanum frábærlega inn í mark eftir hornspyrnu sem Magðalena tekur. Sofia hefur enga séns í að ná boltanum og horfir á boltann fara inn í mark.
81. mín
Arna Sól með drauma sendingu inn í teig, en María Lena nær ekki að reikna rétt út hraðann á sendingunni og boltinn rennur framhjá henni.
77. mín
Sara svo nálægt því að ná þrennu, en skýtur boltanum framhjá
HK
75. mín
InnKatrín Rósa Egilsdóttir
ÚtÍsold Kristín Rúnarsdóttir
HK
74. mín
MAAAARK!

María Lena Ásgeirsdóttir

María Lena er að skora mark á 20 ára afmælisdeginum sínum! Frábært að fagna afmæli með marki í Lengjudeildinni!
70. mín
Sara og Henríetta klessast í loftinu og fengu báðar smá högg í höfuðið. Þær fara báðar til hliðar á meðan er athugað með meiðsli.
Fjölnir
66. mín
InnHrafnhildur Árnadóttir
ÚtÍsabella Sara Halldórsdóttir
64. mín
Á meðan ég er að skrifa um það að María Lena á afmæli, á hún flott hlaup að marki Fjölnis og skýtur í hliðarnet marksins.
64. mín
Gaman að nefna það að María Lena á 20 ára afmæli í dag. Væri gaman fyrir hana að skora á þessum stóra afmælis degi.
60. mín
HK vinnur hornspyrnu hægra megin. Leikmenn flokkast að Sofiu í markinu, en hún nær að slá boltann út úr teignum.
Fjölnir
57. mín
InnAdna Mesetovic
ÚtLaila Þóroddsdóttir
Fjölnir
56. mín
MAAAARK!

Sara Montoro (stoðsending: Anniina Sankoh)

Fjölnir komnir yfir! Fjölnir áttu hornspyrnu sem skoppar um í teignum. Anniina fær boltann til sín fyrir opnu marki og skýtur boltann beint í stöngina. Sara fær svo endurkastið og skýtur boltanum beint í mark.
53. mín
Fjölnir vinna aukaspyrnu vinstra megin fyrir utan teig.
48. mín
HK-ingar aftur með svaka færi þar sem Momolaoluwa Adesanm skorar næstum sjálfsmark.
46. mín
HK-ingar strax með færi! Ísold sem stendur inn í teig fær boltann beint á fæturnar sínar, en skýtur framhjá.
46. mín
HK-ingar sparka leiknum aftur í gang!
45. mín
Leikmenn eru að labba hér aftur inn á völlinn. Leikurinn fer að hefjast aftur eftir smá!
45. mín
Hálfleikur hér í Kórnum. Fjölnir hafa verið öflugari liðið þegar þær eru með boltann, en samt mjög jafnt í þessum leik.
45. mín
Anna María með mjög flott hlaup upp hægri vængin þar sem hún sendir inn í teigin. Leikmaður HK-inga skallar svo boltann yfir mark og Fjölnir fær hornspyrnu.
41. mín
Momolaoluwa Adesanm með svaka tæklingu á Maríu Lenu á vallarhelmingi Fjölnis. Adesanm nær að tækla boltanum út í innkast fyrir HK-ingum.
31. mín
Svakalegt færi hjá Fjölnir Fjölnir vinna sókn eftir klúður sendingu hjá leikmanni HK-inga, Sara Montoro nær að hlaupa að markmanni HK og er með skot sem Audrey nær að verja. Annina nær svo að skalla boltanum að opnu marki, en Valgerður Lilja nær rétt að fara fyrir boltann og Fjölnir vinna horn. HK-ingar heppnir að vera ekki einu undir eftir þetta færi.
27. mín
Annina fær aftur mjög flotta sendingu beint á sig, en er enn og aftur dæmt rangstæða. Þetta fannst mér vera rangur dómur sem gæti hafa haft áhrif á leikinn.
24. mín
Annina leimaður Fjölnis lendir ein á móti markvörð eftir flotta sendingu og skorar, en aðstoðardómari leiksins dæmir hana rangstæða.
22. mín
Síðustu mínútur leiksins hafa verið rólegar. HK reynir að sækja á Fjölnir, en sendingarnar hjá sókn HK-inga eru alltaf of fastar og fer boltinn oftast úr leik.
17. mín
Fjölnir fá aukaspyrnu á þeirra helming. HK-ingar eru meiri að spila með boltann, en skyndisóknir Fjölnis eru að gefa vörn HK-inga smá hausverk.
Fjölnir
9. mín
MAAAARK!

Sara Montoro

Ég var ennþá að skrifa um fyrsta markið þegar Fjölnir frá upphafssókn skoruðu strax jöfnunarmark. Sara fær sendingu á vinstri vængi og sér að Audrey í markinu er komin langt frá markinu sínu. Sara tekur skot rétt inn í teig og boltinn lekur hægt inn í mark.
HK
8. mín
MAAAARK!

María Lena Ásgeirsdóttir

Markið HK-inga kom alveg upp úr þurru. Ég var því miður ekki að horfa þegar markið kom, en heyrði alveg vel lætin þegar þau skoruðu.
6. mín
HK-ingar fá hornspyrnu hægra megin. Boltinn er hreinsaður í burtu af Fjölnis leikmanni.
5. mín
Það eru 3 leikmenn hjá Fjölnir að spila sinn fyrsta leik hér í kvöld. Fjölnir vöntuðu markmann í fyrsta leik og hafa fengið það í Sofiu. Að auki er Anniina Sankoh og Momolaoluwa Adesanm að spila í fyrsta skiptið fyrir Fjölnir.
1. mín
Fjölnis konur hefja hér leik!
Fyrir leik
Aðaldómari leiksins er Viktor Steingrímsson. Með honum til hliðar eru Þórarinn Einar Engilbertsson og Abdelmajid Zaidy
Fyrir leik
Byrjunarlið leiksins eru komin! HK gerir 3 breytingar eftir góðan 1-3 sigur gegn Fylkir í síðustu umferð. Inná: Valgerður Lilja Arnarsdóttir, María Lena Ásgeirsdóttir og Ísold Kristín Rúnarsdóttir Útaf: Hildur Björk Búadóttir, Sóley María Davíðsdóttir og Gabriella Lindsay Coleman Fjölnir gerir 5 breytingar eftir erfitt 6-1 tap gegn Fjarðab/Höttur/Leiknir í síðustu umferð Inná: Sofia Manner, Ísabella Sara Halldórsdóttir, Anniina Sankoh, Momolaoluwa Adesanm og Anna María Bergþórsdóttir Útaf: Hrafnhildur Árnadóttir, Aníta Björg Sölvadóttir, Adna Mesetovic, Guðrún Helga Guðfinnsdóttir og Anna Kolbrún Ólafsdóttir
Fyrir leik
Fyrir leik
Þetta er 2. umferð Lengjudeild kvenna. HK tóku með sér 3 frábær stig á útivelli frá nýliðum Fylkir í síðustu umferð. Isabella Eva átti 2 mörk og Gabriella Lindsay með 1 mark fyrir HK í þeim leik. HK eru 3. sæti deildarinnar með jafna markatölu og Tindastóll. Fjölnir töpuðu gríðalega gegn nýliðum Fjarðab/Höttur/Leiknir. Leikurinn fór 6-1 og skoraði Alda Ólafsdóttir eina mark Fjölnis. Fjölnir liggja í neðsta sæti útaf slæma markatölu.
Fyrir leik
Þjálfarar, fyrirliðar og forráðamenn félaga deildarinnar sáu um að spá fyrir Lengjudeild kvenna. Hér er spáin: 1. FH 2. Vík­ing­ur R. 3. Tinda­stóll 4. HK 5. Fylk­ir 6. Grinda­vík 7. Hauk­ar 8. Fjöln­ir 9. Fjarðab./Hött­ur/Leikn­ir 10. Augna­blik
Fyrir leik
Góða kvöldið og verið hjartanlega velkomin í þessa beina textalýsingu á leik milli HK og Fjölnis. Leikurinn fer fram í Kórnum í Kópavogi og hefst klukkan 18:00
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.