SKÝRSLAN: Arna Eiríksdóttir hetja norðankvenna í jöfnum leik
Hvað réði úrslitum?
Hornspyrnan á 82. mínútu, það var ekki meira sem að liðin að í dag. Leikurinn var mjög jafn og bæði lið hefðu getað tekið þrjú stig.
Bestu leikmenn
1. Arna Eiríksdóttir
Arna stóð vaktina mjög vel í vörninni í dag og stoppaði sóknarmenn Aftureldingar oft á tíðum mjög vel. Hún var svo hetja Akureyringa þegar hún skorar mark úr hornspyrnu í lok leiks og tryggir Þór/KA sigurinn.
2. Hulda Ósk Jónsdóttir
Koma nokkrar til greina en Hulda Ósk kom inn á í hálfleik og lífgaði mikið upp á sóknarleik Þór/KA kom sér sífellt í góðar stöður, átti margar fyrirgjafir og fór nokkrum sinnum illa með varnarmenn Aftureldingar.
Atvikið
Sandra María Jessen skorar eftir 19 sekúnda leik, markið er 75. mark Söndru fyrir Þór/KA og varð hún í leiðinni sá leikmaður sem skorað hefur flest mörk fyrir Þór/KA í efstu deild.
Hvað þýða úrslitin?
Þór/KA nær í sinn annan sigur í sumar, eru komnar með 6 stig og tilla sér tímabundið í 3. sæti deildarinnar.
Afturelding er aftur á móti enn í leit að sínum fyrstu stigum og sitja án sigurs á botni deildarinnar.
Afturelding er aftur á móti enn í leit að sínum fyrstu stigum og sitja án sigurs á botni deildarinnar.
Vondur dagur
Það var engin sem átti áberandi slæman dag en sóknarmenn Aftureldingar eru líklega svekktar með að hafa ekki nýtt færin sín betur.
Dómarinn - 8,5
Mjög fín leikur hjá Twana sem leyfði leiknum að fljóta mjög vel og var lítið að stoppa leikinn.



