Leik lokið!
FH sigla þrem stigum í höfn.
Minni á viðtöl og skýrslu síðar í kvöld.
90. mín
Gult spjald
Emma Steinsen Jónsdóttir
Fær gult fyrir að stöðva Elísu Lönu á síðustu mínútunum.90. mín
Elín með ótímabært skot sem fer framhjá.
90. mín
Þrem mínútum bætt við. Nægur tími fyrir mark.
87. mín
DAUÐAFÆRI!
Svanhildur vinnur boltann vel, Hafdís og Christabel með gott samspil upp völlinn, Christabel sendir á Hafdísi inn í teig sem nær góðu skoti enn Fanney Inga með frábæra vörslu!
85. mín
Sunneva tekur hornspyrnu sem Víkingar skalla frá.
85. mín
Hafdís Bára brýtur á Shaina.
84. mín
Freyja með sendingu á Christabel sem nær að snúa og skjóta á markið enn rangstaða dæmt.
81. mín
InnElísa Lana Sigurjónsdóttir
ÚtKristin Schnurr
81. mín
InnHildur María Jónasdóttir
ÚtRannveig Bjarnadóttir
80. mín
Elín vinnur boltann af Emmu Steinsen þegar hún er að reyna skýla boltanum í markspyrnu. Elín Björg með hættulegt skot sem Andrea ver í horn. Virkilega vel gert
77. mín
MAAAARK!
Christabel Oduro (stoðsending: Tara Jónsdóttir)
Tara með flotta aukaspyrnu hægra megin. Hún setur boltann á milli markvarðar og varnar, þar er Christabel sem nær að henda sér á boltann!75. mín
Dagný Rún með góðan snúning, brunar upp völlinn og sendir á Hafdísi Báru sem nær að koma boltanum áfram á Christabel inn í teig enn Halla með frábæra tæklingu.
74. mín
InnSvanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir
ÚtBrynhildur Vala Björnsdóttir
70. mín
Andrea blakar boltanum burt.
70. mín
Elín Björg vinnur horn.
69. mín
Hafdís Bára með sendingu inn á teig FH enn boltinn kemst ekki framhjá fyrsta varnarmanni.
68. mín
Sísí brýtur af sér á miðjunni.
67. mín
Colleen með góða skiptingu yfir á Rannveigu en Freyja með góða vörn og tekur boltann.
66. mín
Sunneva tekur innkast, fær boltann aftur og sendir háa sendingu inn á teig sem fer yfir alla hausa.
64. mín
InnElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
ÚtEva Núra Abrahamsdóttir
64. mín
InnEsther Rós Arnarsdóttir
ÚtTelma Hjaltalín Þrastardóttir
61. mín
Víkingar ekki að ná að koma sendingum á Christabel upp á topp.
59. mín
Tara með sendingu innfyrir vörn FH á Christabel enn rangstæð dæmd.
58. mín
InnHafdís Bára Höskuldsdóttir
ÚtHulda Ösp Ágústsdóttir
58. mín
InnÓlöf Hildur Tómasdóttir
ÚtArnhildur Ingvarsdóttir
55. mín
Sísí með skalla beint á Andreu.
55. mín
Kiley tæklar boltann af Evu Núru í horn eftir sendingu frá Shainu.
53. mín
Christabel brýtur á Evu Núru fyrir framan miðjubogann. FH tekur aukaspyrnuna enn rangstaða dæmd.
51. mín
Telma Hjaltalín rekur boltann frá hægri kantinum alveg inn á miðjan völl og á síðan laust skot á markið.
48. mín
Colleen með fyrirgjöf fyrir markið, Víkingar skalla út úr teig og Rannveig tekur skot í fyrsta sem fer yfir markið.
47. mín
Víkingur gera þetta vel og spila upp í hægra horn, Dagný Rún með sendingu fyrir en FH sparka frá.
46. mín
FH byrja þann seinni.
45. mín
FH fá horn enn dómarinn flautar til hálfleiks.
42. mín
MAAAARK!
Shaina Faiena Ashouri (stoðsending: Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir)
Sunneva með frábæra fyrirgjöf og enn og aftur dekka Víkingur ekki Shaina sem er alein! Skýtur fyrst beint á Andreu en tekur frákastið og klikkar ekki aftur.39. mín
Telma Hjaltalín með skot fyrir utan teig sem Andrea ver.
35. mín
MAAAARK!
Tara Jónsdóttir
Víkingur minnka muninn! Hulda Ösp með fyrirgjöf sem Christabel nær að skalla á mark. Fanney Inga í marki FH ver út í teig og Tara fyrst í boltann.30. mín
MAAAARK!
Kristin Schnurr
FH tvöfaldar forystuna strax! Kristin Schnurr skýtur enn boltinn fer af varnarmanni og inn. Afar óheppilegt.29. mín
MAAAARK!
Shaina Faiena Ashouri (stoðsending: Colleen Kennedy)
Colleen með frábæra fyrirgjöf sem Shaina stangar í netið!27. mín
Víkingar að verjast fyrirgjöfum inn í teig.
25. mín
Kiley með góðan varnarleik og tæklar í horn.
23. mín
Christabel kemur úr rangstöðu og sækir boltann. Rangstaða dæmd.
22. mín
Sísí verið mjög sterk í loftinu og vinnur alla bolta.
21. mín
Sunneva með háa sendingu inn í teig sem Andrea grípur.
18. mín
Víkingar enn og aftur í vandræðum með uppspil frá marki. FH vinna boltann en ekkert verður úr því.
17. mín
Colleen gerir þetta listavel! Tekur skæri, brunar upp kantinn og vinnur horn.
16. mín
Rannveig með skot frá miðju sem endar rétt framhjá!
15. mín
Sísí með peysutog á Christabel.
12. mín
FH með hættulegt horn en Víkingar ná að bjarga á línu! FH að gera sig líklega í að skora.
11. mín
Hættulegt færi!
Eva Núra kemst að endalínu vítateigs og sendir fyrir markið, Telma Hjaltalín nær að klafsa í boltann sem endar í höndum Andreu Fernandes.
9. mín
Víkingar eru að spila stutt útfrá marki en það gengur brösulega á meðan FH pressar hátt.
7. mín
Víkingar keyra hratt upp en frábær tækling hjá Höllu þarna og vinnur síðan aukaspyrnu
5. mín
Fanney í marki FH kemur út og sparkar bolta sem var ætlaður Christabel
4. mín
Colleen með fyrirgjöf sem fer yfir alla og í innkast
3. mín
FH með góða hápressu og vinna boltann hátt upp á velli
2. mín
Sunneva með fyrirgjöf sem fer yfir mark Víkinga
1. mín
Víkingur byrja leikinn!
Fyrir leik
Breytingar á byrjunarliðum frá síðasta leik
Telma Hjaltalín Þrastardóttir og Eva Núra Abrahamsdóttir koma inn í lið FH fyrir Elísu Lönu Sigurjónsdóttur og Esther Rós Arnarsdóttur.
Víkingur gerir eina breytingu, Kiley Norkus kemur inn á kostnað Hafdísar Báru Höskuldsdóttur.
Fyrir leik
Báðum liðum er spáð upp í ár svo búast má við hörku leik.
Spá fyrir Lengjudeild kvenna í boði þjálfara, fyrirliða og forráðamenn félaga deildarinnar
1. FH
2. Víkingur R.
3. Tindastóll
4. HK
5. Fylkir
6. Grindavík
7. Haukar
8. Fjölnir
9. Fjarðab./Höttur/Leiknir
10. Augnablik
Fyrir leik
Bæði lið fara vel af stað, FH gerði sér lítið fyrir og unnu Hauka 0-4. Víkingur vann þá 3-2 á móti Augnablik.
Fyrir leik
Veriði hjartanlega velkomin á beina textalýsingu frá leik FH og Víkings í 2. umferð Lengjudeild kvenna. Leikar hefjast kl 19:15 hér í Kaplakrika.


